Svandís Svavarsdóttir: íslensk stjórnmálakona

Svandís Svavarsdóttir (fædd 24.

ágúst">24. ágúst 1964) er Innviðaráðherra Íslands en hún hefur verið alþingismaður fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð í Reykjavík frá árinu 2009. Hún var heilbrigðisráðherra í fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og matvælaráðherra í öðru ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur. Hún sat í borgarstjórn Reykjavíkur árin 2006–2009, þar til hún var kjörin á þing.

Svandís Svavarsdóttir (SSv)
Svandís Svavarsdóttir: Menntun og fyrri störf, Stjórnmálaferill, Heimildir

Svandís árið 2010

Fæðingardagur: 24. ágúst 1964 (1964-08-24) (59 ára)
Fæðingarstaður: Selfoss
3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður
Flokkur: Merki Vinstri grænna Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Þingsetutímabil
2009 í Reykv. s. fyrir Vg.
2013 í Reykv. s. fyrir Vg.
2016 í Reykv. s. fyrir Vg
2017 í Reykv. s. fyrir Vg
= stjórnarsinni
Embætti
2009-2012 Umhverfisráðherra
2012-2013 Umhverfis- og auðlindaráðherra
2017–2021 Heilbrigðisráðherra
2021-2024 Matvælaráðherra
2024- Innviðaráðherra
Tenglar
Æviágrip á vef Alþingis

Menntun og fyrri störf

Svandís er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og lauk BA-prófi við Háskóla Íslands í almennum málvísindum og íslensku árið 1989. Hún gegndi ýmsum störfum fyrir Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á árabilinu 1992-2005, með hléum. Svandís er gift og á fjögur börn. Hún er dóttir Svavars Gestssonar, (1944-2021) f.v. ráðherra og sendiherra og fyrri konu hans Jónínu Benediksdóttur (1943-2005) skrifstofukonu.

Stjórnmálaferill

Svandís hóf stjórnmálaferil sinn í Vinstri grænum skömmu eftir stofnun flokksins. Hún var formaður Reykjavíkurfélags VG frá 2003-2005 og framkvæmdastjóri flokksins 2005-2006.

Borgarstjórn

Hún leiddi lista VG í borgarstjórnarkosningunum 2006, þegar samstarf R-listans leið undir lok og flokkurinn bauð í fyrsta sinn fram undir eigin merkjum.

Svandís varð staðgengill borgarstjóra þann 16. október 2007, eftir að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sprakk. Björn Ingi Hrafnsson sagði skilið við borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins 11. október 2007, en dagana á undan hafði verið misklíð innan meirihlutans um tilveru útrásararms Orkuveitu Reykjavíkur, þ.e. Reykjavik Energy Invest. Meirihlutinn samanstóð af borgarfulltrúum Samfylkingarinnar, Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Framsóknarflokks og F-lista. Samstarfinu lauk skyndilega í ársbyrjun 2008.

Landsmál

Í febrúar 2009 tilkynnti Svandís um framboð sitt í forvali Vinstri grænna fyrir Alþingiskosningarnar 2009. Hún hlaut annað sætið, leiðtogasæti í Reykjavíkurkjördæmi suður og var kjörin á Alþingi þann 25. apríl 2009. Hún tók við embætti umhverfisráðherra 10. maí 2009 og varð umhverfis- og auðlindaráðherra við stjórnkerfisbreytingar 1. september 2012.

Svandís er í leiðtogasæti Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir Alþingiskosningar 2013. Hún var heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur frá 2017-2021 en frá 2021 hefur hún gegnt embætti matvælaráðherra.

Heimildir


Fyrirrennari:
Kolbrún Halldórsdóttir
Umhverfis- og auðlindaráðherra
(10. maí 2009 – 2013)
Eftirmaður:
Sigurður Ingi Jóhannsson
Fyrirrennari:
Óttarr Proppé
Helbrigðisráðherra
(30. nóvember 201728. nóvember 2021)
Eftirmaður:
Willum Þór Þórsson
Fyrirrennari:
Kristján Þór Júlíusson
Matvælaráðherra
(28. nóvember 2021 – 10. apríl 2024)
Eftirmaður:
Bjarkey Gunnarsdóttir
Fyrirrennari:
Sigurður Ingi Jóhannsson
Innviðaráðherra
(10. apríl 2024 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Tags:

Svandís Svavarsdóttir Menntun og fyrri störfSvandís Svavarsdóttir StjórnmálaferillSvandís Svavarsdóttir HeimildirSvandís Svavarsdóttir196424. ágústAnnað ráðuneyti Katrínar JakobsdótturBorgarstjórn ReykjavíkurFyrsta ráðuneyti Katrínar JakobsdótturHeilbrigðisráðherra ÍslandsJóhanna SigurðardóttirReykjavíkRíkisstjórnSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ÍslandsSjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti ÍslandsUmhverfis- og auðlindaráðherra ÍslandsVinstrihreyfingin - grænt framboð

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

HöfuðborgarsvæðiðBlóðbergRagnarökTjaldurStelpurnarHeiðlóaLýsingarorðHrafna-Flóki VilgerðarsonArion bankiEldborg (Hnappadal)HjartaListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaForsíðaMúmínálfarnirSkjaldarmerki ÍslandsKristniEmbætti landlæknis25. aprílEdgar Allan PoeLMennta- og menningarmálaráðherra ÍslandsSteina VasulkaLatibær29. apríl22. aprílUrtaSeyðisfjörðurSameinuðu þjóðirnarRagnhildur GísladóttirApp StoreSveinn BjörnssonHoldsveikiMannakornSæbjúguLandselurFranska byltinginSesínSonja Ýr ÞorbergsdóttirSjónvarpiðMóðuharðindinKristbjörg KjeldGrikklandAustur-ÞýskalandKarl 3. BretakonungurEsjaVeldi (stærðfræði)ReykjanesskagiÞór (norræn goðafræði)KirkjubæjarklausturEvrópska efnahagssvæðiðArentLabrador hundarÚkraínaListi yfir íslensk mannanöfnÁrni BergmannMaríustakkarListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969Sýslur Íslands1. maíKúluskíturGarðabærHelliseyjarslysiðÆgishjálmurSlóvakíaLanga24. aprílEndurreisninKýpur í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaMunnmökAlþingiskosningar 2021🡆 More