Sumarólympíuleikarnir 1964

Sumarólympíuleikarnir 1964 voru haldnir í Tókýó í Japan frá 10.

október">10. október til 24. október. Leikarnir voru í fyrsta sinn haldnir í Asíu. Með hjálp gervihnattatækni var leikunum sjónvarpað bæði víðar og meira mæli en nokkru sinni fyrr.

Aðdragandi og skipulagning

Sumarólympíuleikarnir 1964 
Frá setningarathöfn leikanna.

Tókýó átti upphaflega að halda ólympíuleikana 1940, en var svipt þeim vegna styrjaldar Japans og Kína. Borgin falaðist einnig eftir að halda leikana 1960, en fékk ekki. Á þingi Alþjóðaólympíunefndarinnar vorið 1959 hlaut Tókýó hins vegar yfirburðakosningu sem gestgjafi fimm árum síðar. Detroit, Vínarborg og Brussel sóttust einnig eftir hnossinu.

Miklu var kostað til vegna undirbúnings leikanna og fjöldi nýrra mannvirkja reistur. Mikil áhersla var lögð á að hátækni við skipulagninguna, s.s. varðandi sjónvarpsútsendingar. Þá var ljósmyndatækni beitt til að skera úr um sigurvegara í kappgreinum og tölvustýrðar klukkur notaðar við tímatökur. Markmiðið var ekki hvað síst að sýna hversu framarlega Japan stæði á tæknisviðinu.

Ungur íþróttamaður tendraði Ólympíueldinn við setningarathöfnina. Hann var fæddur í Hiroshima þann 6. ágúst 1945, sama dag og kjarnorkusprengju var varpað á borgina.

Suður-Afríku var neitað um keppnisrétt vegna kynþáttaaðskilnaðarstefnunnar. Norður-Kórea og Indónesía ákváðu að sniðganga leikana til að mótmæla þátttöku Ísraels og Tævan.

Keppnisgreinar

Keppt var í 163 greinum. Fjöldi keppna í einstökum íþróttaflokkum er gefinn upp í sviga.

Einstakir afreksmenn

Sumarólympíuleikarnir 1964 
Karin Balzer frá Austur-Þýskalandi varð hlutskörpust í 80 metra grindahlaupi.

Bandaríkin hlutu flest gullverðlaun, en Sovétmenn næstflest á leikunum. Gestgjafarnir komu svo í þriðja sæti.

Bandaríkjamaðurinn Bob Hayes sigraði í 100 metra hlaupi á nýjum heimsmetstíma, 10,06 sekúndum. Hann varð síðar kunnur ruðningskappi með Dallas Cowboys.

Abebe Bikila frá Eþíópíu varði gullverðlaun sín frá Ólympíuleikunum í Róm og varð þannig fyrstur allra til að sigra tvívegis í Maraþonhlaupi á Ólympíuleikum.

Sovésku systurnar Irina og Tamara Press unnu báðar til gullverðlauna, aðra leikana í röð. Irina sigraði í tugþraut en Tamara í spjótkasti og kringlukasti.

Haraldur krónprins Norðmanna tók þátt í siglingakeppni leikanna og var fánaberi norska liðsins við setningarathöfnina.

Tekin var upp keppni í blaki á leikunum, en greinin naut mikilla vinsælda í Japan. Talið er að sigur japanska kvennaliðsins í úrslitaleiknum hafi verið sá íþróttaviðburður leikanna sem flestir heimamenn fylgdust með í sjónvarpi.

Bandaríkjamaðurinn Joe Frazier hreppti gullverðlaunin í þungavigt í hnefaleikum. Hann varð síðar heimsmeistari í flokki atvinnumanna.

Fimleikakeppni kvenna snerist upp í einvígi Larissu Latyninu frá Sovétríkjunum og Veru Cáslavská fræa Tékkóslóvakíu, sem báðar eru meðal sigursælustu fimleikakvenna sögunnar.

Bandaríska liðið hafði lítið fyrir að vinna körfuknattleikskeppni leikanna. Í liði þeirra var Bill Bradley, sem síðar gerðist stjórnmálamaður og sóttist eftir að verða fulltrúi Demókrata í forsetakosningunum 2000.

Þátttaka Íslendinga á leikunum

Vegna mikils ferðakostnaðar treystu Íslendingar sér ekki til að senda nema fjóra íþróttamenn á leikana. Tvo sundmenn og tvo keppendur í frjálsum íþróttum.

Guðmundur Gíslason varð 22. Í 400 metra fjórsundi á nýju Íslandsmeti. Sundkonan Hrafnhildur Guðmundsdóttir varð hins vegar fyrir því óláni að fingurbrotna í fyrstu grein sinni.

Jón Þ. Ólafsson keppti í hástökki á leikunum og Valbjörn Þorláksson í tugþraut. Hafnaði Valbjörn í tólfta sæti í tugþrautarkeppninni.

Íslenska knattspyrnulandslíðið tók þátt í forkeppni Ólympíuleikanna og mætti þar Englendingum í tveimur leikjum sem samtals töpuðust 10:0. Var þó um áhugamannalandslið Englands að ræða.

Verðlaunaskipting eftir löndum

Nr. Land Gull Silfur Brons Samtals
1 Sumarólympíuleikarnir 1964  Bandaríkin 36 26 28 90
2 Sumarólympíuleikarnir 1964  Sovétríkin 30 31 35 96
3 Sumarólympíuleikarnir 1964  Japan 16 5 8 29
4 Sumarólympíuleikarnir 1964  Þýskaland 10 22 18 50
5 Sumarólympíuleikarnir 1964  Ítalía 10 10 7 27
6 Sumarólympíuleikarnir 1964  Ungverjaland 10 7 5 22
7 Sumarólympíuleikarnir 1964  Pólland 7 6 10 23
8 Sumarólympíuleikarnir 1964  Ástralía 6 2 10 18
9 Sumarólympíuleikarnir 1964  Tékkóslóvakía 5 6 3 14
10 Sumarólympíuleikarnir 1964  Bretland 4 12 2 18
11 Sumarólympíuleikarnir 1964  Búlgaría 3 5 2 10
12 Sumarólympíuleikarnir 1964  Finnland 3 0 2 5
12 Sumarólympíuleikarnir 1964  Nýja Sjáland 3 0 2 5
14 Sumarólympíuleikarnir 1964  Rúmenía 2 4 6 12
15 Sumarólympíuleikarnir 1964  Holland 2 4 4 10
16 Sumarólympíuleikarnir 1964  Tyrkland 2 3 1 6
17 Sumarólympíuleikarnir 1964  Svíþjóð 2 2 4 8
18 Sumarólympíuleikarnir 1964  Danmörk 2 1 3 6
19 Sumarólympíuleikarnir 1964  Júgóslavía 2 1 2 5
20 Sumarólympíuleikarnir 1964  Belgía 2 0 1 3
21 Sumarólympíuleikarnir 1964  Frakkland 1 8 6 15
22 Sumarólympíuleikarnir 1964  Kanada 1 2 1 4
Sumarólympíuleikarnir 1964  Sviss 1 2 1 4
24 Sumarólympíuleikarnir 1964  Bahamaeyjar 1 0 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Eþíópía 1 0 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Indland 1 0 0 1
27 Sumarólympíuleikarnir 1964  Suður-Kórea 0 2 1 3
28 Sumarólympíuleikarnir 1964  Trínidad og Tóbagó 0 1 2 3
29 Sumarólympíuleikarnir 1964  Túnis 0 1 1 2
30 Sumarólympíuleikarnir 1964  Argentína 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Kúba 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Pakistan 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Filippseyjar 0 1 0 1
34 Sumarólympíuleikarnir 1964  Íran 0 0 2 2
35 Sumarólympíuleikarnir 1964  Brasilía 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Ghana 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Írland 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Kenýa 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Mexíkó 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Nígería 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1964  Úrúgvæ 0 0 1 1
Alls 163 167 174 504


Tags:

Sumarólympíuleikarnir 1964 Aðdragandi og skipulagningSumarólympíuleikarnir 1964 KeppnisgreinarSumarólympíuleikarnir 1964 Einstakir afreksmennSumarólympíuleikarnir 1964 Þátttaka Íslendinga á leikunumSumarólympíuleikarnir 1964 Verðlaunaskipting eftir löndumSumarólympíuleikarnir 196410. október24. októberAsíaJapanTókýó

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Indóevrópsk tungumálBorgLotukerfiðOffenbach am MainKalda stríðiðYLettlandEnskaEgilsstaðirEignarfornafnTyrklandFranskaSólveig Anna JónsdóttirKleópatra 7.HeiðniÓskTyrkjarániðBoðhátturFramsöguhátturAlþjóðasamtök um veraldarvefinnPrótínSagnorðÖræfasveitRagnar loðbrókÍtalíaWTímabeltiTjadAtlantshafsbandalagiðSuðvesturkjördæmi26. júníBóndadagurSíleSeifurÍrlandVenesúelaKókaínBYKOHeiðlóaHrognkelsiElly VilhjálmsListLögmál NewtonsAgnes MagnúsdóttirBerdreymiÍslandJólaglöggPjakkurAdolf HitlerHvalfjarðargöngGeirvartaFöstudagurinn langiSkyrHöfuðborgarsvæðiðCarles PuigdemontListi yfir íslensk millinöfnLeifur heppniSvissSigmundur Davíð GunnlaugssonAustur-SkaftafellssýslaGuðnýJarðkötturVöluspáLandsbankinnÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaRjúpaÍsbjörnPArnar Þór ViðarssonAlnæmi28. maí2007🡆 More