6. Ágúst: Dagsetning

6.

JúlÁgústSep
SuÞrMiFiLa
123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
2024
Allir dagar

ágúst er 218. dagur ársins (219. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 147 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1218 - Ormur Jónsson Breiðbælingur og Jón sonur hans voru drepnir af norskum kaupmönnum í Vestmannaeyjum.
  • 1228 - Þorvaldsbrenna: Synir Hrafns Sveinbjarnarsonar fóru að Þorvaldi Snorrasyni, goðorðsmanni frá Vatnsfirði, og brenndu hann inni.
  • 1414 - Jóhanna 2. varð drottning Napólí eftir lát Ladisláss bróður síns.
  • 1538 - Borgin Bogotá í Kólumbíu var stofnuð.
  • 1623 - Maffeo Barberini var kjörinn Úrbanus 8. páfi.
  • 1661 - Portúgal og Holland gerðu með sér Haagsáttmálann þar sem Portúgal fékk formlega viðurkennd yfirráð sín yfir Nýja Hollandi í Brasilíu.
  • 1759 - Björn Halldórsson í Sauðlauksdal fékk sendar útsæðiskartöflur frá Kaupmannahöfn. Hann setti þær niður í ker og fékk smávegis undan þeim seint um haustið en þó er jafnan miðað við að hann hafi hafið kartöfluræktun 1760. Þá hafði hann fengið nýtt útsæði.
  • 1806 - Hið Heilaga rómverska ríki var formlega leyst upp þegar síðasti keisarinn, Frans 2., sagði af sér. Austurríska keisaradæmið og Þýska bandalagið tóku við.
  • 1809 - Í Klúbbnum í Reykjavík (þar sem síðar var hús Hjálpræðishersins) efndi konungurinn, Jörgen Jörgensen, til dansleiks.
  • 1824 - Simón Bolívar sigraði spænskt riddaralið í orrustunni um Junín.
  • 1825 - Bólivía lýsti yfir sjálfstæði frá Spáni.
  • 1907 - Lárus Rist fimleikakennari vann það afrek að synda yfir Oddeyrarál. Hann lagði af stað alklæddur og í sjóklæðum og vaðstígvélum en tíndi fötin af sér á leiðinni. Markmið hans var að sýna fram á að sjómenn hefðu gagn af sundkunnáttu.
  • 1933 - Steinn Steinarr skáld og fjórir aðrir hlutu dóm fyrir að skera niður fána við hús þýska vararæðismannsins á Siglufirði.
  • 1937 - Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis var stofnað á stofnfundi þar sem mættir voru 93 fulltrúar frá Pöntunarfélagi verkamanna í Reykjavík, Kaupfélagi Reykjavíkur, Pöntunarfélagi Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnafirði og Pöntunarfélagi Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, en félög þessi ákváðu á þessum degi að sameinast í eitt félag.
  • 1945 - Kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki: Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á japönsku borgina Hiroshima og drápu með því allt að 180.000 manns.
  • 1960 - Steingrímsstöð, 26 Mw virkjun í Soginu, var tekin í notkun við hátíðlega athöfn.
  • 1962 - Jamaíka lýsti yfir sjálfstæði frá Sambandsríki Vestur-Indía.
  • 1965 - Hljómplata Bítlanna, Help!, kom út í Bretlandi.
  • 1974 - Gerald Ford tók við embætti Bandaríkjaforseta í kjölfar afsagnar Nixons.
  • 1983 - Friðarganga á vegum herstöðvaandstæðinga var gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur.
  • 1985 - Afhjúpaður var minnisvarði um Sigfús Sigfússon þjóðsagnasafnara í landi Miðhúsa á Fljótsdalshéraði, en þar var hann fæddur.
  • 1990 - Forseti Pakistan Ghulam Ishaq Khan setti forsætisráðherrann, Benazir Bhutto, af og sakaði hana um spillingu
  • 1990 - Fyrra Persaflóastríðið: Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna setti viðskiptabanna á Írak.
  • 1991 - Tim Berners-Lee sagði frá Veraldarvefnum á fréttahópnum alt.hypertext. Fyrsta vefsíðan, „info.cern.ch“, var búin til.
  • 1996 - Skáldsagan Game of Thrones, fyrsta sagan í bókaröð George R.R. Martin, kom út í Bandaríkjunum.
  • 1996 - NASA sagði frá því að loftsteinninn ALH 84001 gæti innihaldið leifar af frumstæðum lífverum.
  • 1997 - Microsoft keypti hlutabréf í Apple Computer að andvirði 150 milljóna dala til að aðstoða þá í fjárhagsvandræðum.
  • 1997 - Korean Air flug 801 fórst við Gvam. 228 létust.

Fædd

Dáin


Tags:

Gregoríska tímataliðHlaupárSólarhringurÁr

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

ForsetningSeldalurSvavar Pétur Eysteinsson26. aprílCarles PuigdemontKalkofnsvegurKnattspyrnufélagið HaukarWikiListi yfir páfaEinar Þorsteinsson (f. 1978)KlukkustigiDóri DNAJohn F. KennedyÞjóðleikhúsiðSnorra-EddaHjaltlandseyjarLuigi FactaIKEAÍslenska stafrófiðHæstiréttur BandaríkjannaDómkirkjan í ReykjavíkGuðmundar- og GeirfinnsmáliðÓlafsvíkUngfrú ÍslandSeinni heimsstyrjöldinOkKnattspyrnufélag ReykjavíkurSauðféWayback MachineViðskiptablaðiðBenedikt Kristján MewesÓslóMassachusettsJürgen KloppHryggsúlaAndrés ÖndÍþróttafélag HafnarfjarðarMaineSandra BullockStúdentauppreisnin í París 1968MarokkóLaxWashington, D.C.BrúðkaupsafmæliÞGísli á UppsölumSkákTjörn í SvarfaðardalKörfuknattleikurÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaBarnavinafélagið SumargjöfListi yfir íslenskar kvikmyndirBikarkeppni karla í knattspyrnuSvampur SveinssonHarvey WeinsteinGamelanFreyjaGaldurDropastrildiVladímír PútínRaufarhöfnKárahnjúkavirkjunc1358Ellen KristjánsdóttirReynir Örn LeóssonKeflavíkListi yfir þjóðvegi á ÍslandiSíliFjaðureikListi yfir íslensk póstnúmerNoregurÞykkvibærHelsingi🡆 More