Georg 6.: Konungur Stóra Bretlands og Írlands (1936-1952), síðasti keisari Indlands (1936-1947)

Georg 6.

desember 1895 - 6. febrúar 1952) varð konungur breska heimsveldisins og keisari Indlands þann 11. desember 1936 og ríkti til dauðadags. Hann tók við völdum þegar eldri bróðir hans, Játvarður 8., afsalaði sér konungdómi til þess að geta gifst unnustu sinni, en hún var fráskilin. Georg var síðasti keisari Indlands (til 1947) og síðasti konungur Írlands til 1948, þegar Írland yfirgaf heimsveldið. Hann var þriðji breski konungurinn sem notaði nafnið Windsor, en faðir hans, Georg 5., tók það upp.

Skjaldarmerki Windsor-ætt Konungur
Bretlands og Írlands
og breska samveldisins
og keisari Indlands
Windsor-ætt
Georg 6.
Georg VI
Ríkisár 10. desember 1936 -
6. febrúar 1952
SkírnarnafnAlbert Frederick Arthur George
Fæddur14. desember 1895(1895-12-14)
 York Cottage í Norfolk
Dáinn6. febrúar 1952 (57 ára)
 Sandringhamhöll, Norfolk, Englandi
GröfÍ kapellu heilags Georgs, Windsorkastala
Konungsfjölskyldan
Faðir Georg 5.
Móðir María af Teck
DrottningLafði Elísabet Bowes-Lyon
BörnElísabet 2. drottning (f. 1926)
Margrét Rós (f. 1930),
greifaynja af Snowdon

Georg 6. fæddist í York Cottage í Norfolk. Foreldrar hans voru Georg prins, hertogi af York (síðar Georg 5. konungur) og kona hans María hertogaynja af York (síðar María Bretadrottning). Föðurforeldrar hans voru Játvarður prins af Wales, síðar konungur, og kona hans Alexandra prinsessa af Danmörku og síðar drottning. Móðurforeldrar Georgs voru Frans prins og hertogi af Teck og María Adelaide prinsessa af Cambridge.

Hann giftist 26. apríl 1923 lafði Elísabet Bowes-Lyon. Hún taldist til alþýðu samkvæmt reglum hirðarinnar, þó að hún væri afkomandi bæði Róberts 1. Skotakonungs og Hinriks 7. Englandskonungs, en við giftingu þeirra hlaut hún titilinn „hennar konunglega hátign, hertogaynjan af York“. Þau eignuðust tvær dætur: Elísabetu prinsessu (f. 21. apríl 1926), síðar drottningu, og Margréti prinsessu (f. 21. ágúst 1930, d. 9. febrúar 2002).

Georg 6. fékk krabbamein í lungu og var annað lunga hans fjarlægt í september 1951. Jólaræða hans það ár var hljóðrituð í mörgum hlutum sem voru svo sameinaðir í eina heild og útvarpað. Hann andaðist sex vikum síðar.


Fyrirrennari:
Játvarður 8.
Bretakonungur
(1936 – 1952)
Eftirmaður:
Elísabet 2.


Tags:

11. desember14. desember18951936194719526. febrúarGeorg 5.HeimsveldiIndlandJátvarður 8.KeisariStóra-BretlandÍrland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

SpurnarfornafnLangskipÞýskalandMeltingarkerfiðBjörn Ingi HrafnssonKommúnismiÞungunarrof20. öldinStykkishólmurArnaldur IndriðasonVerg landsframleiðslaGuðni Th. Jóhannesson66°Norður22. aprílElvis PresleyMegindlegar rannsóknirLokiFiann PaulSkátahreyfinginAkureyriMesópótamíaVerkfallEinokunarversluninNaustahverfiAriel HenryNafnhátturUpplýsinginSiðaskiptinFranz LisztReykjavíkSjávarföllMcGSelfossPáskadagurÁramótBergþórshvoll2002Stari (fugl)SólarorkaVeik beygingThe Tortured Poets DepartmentBrad PittISIS-KÁbrystirLundiÞingvellirTaylor SwiftHafnarfjörðurAfturbeygt fornafnJ. K. RowlingFellibylurÁrnessýslaIngólfur ArnarsonBenito MussoliniHelgi Áss GrétarssonTeboðið í BostonÞjóðvegur 1RómaveldiJapanMannshvörf á ÍslandiGrikklandMargrét ÞórhildurLærdómsöldMünchen-sáttmálinnUmmálBerklarÞjóðernishyggjaListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiParísBæjarbardagiVatnsaflTækniskólinnStella í orlofiSagnmyndirFrumeindHeimdallurTölfræðiEnska🡆 More