Sumarólympíuleikarnir 1960

Sumarólympíuleikarnir 1960 voru haldnir í Rómaborg á Ítalíu frá 25.

ágúst">25. ágúst til 11. september. Mikið var lagt í umgjörð leikanna, þar sem heimamenn kappkostuðu að rifja upp forna sögu Rómar. Íslendingar bundu vonir við að Vilhjálmur Einarsson kæmist á verðlaunapall eins og fjórum árum fyrr, en hann hafnaði í fimmta sæti í þrístökkskeppninni.

Aðdragandi og skipulag

Rómaborg átti á sínum tíma að halda Ólympíuleikana 1908 en fallið var frá því, ekki hvað síst vegna eldgoss í Vesúvíusi árið 1906.

Ákvörðunin um staðarvalið var tekin sumarið 1955. Sex aðrar borgir sóttust eftir upphefðinni: Brussel, Búdapest, Detroit, Lausanne, Mexíkóborg og Tókýó. Fór Róm með sigur af hólmi eftir harða baráttu við Lausanne.

Íþróttamenn frá 83 löndum tóku þátt á leikunum, en líkt og á leikunum 1956 og 1964 kepptu Austur- og Vestur-Þjóðverjar saman undir merkjum Þýskalands. Suður-Afríka var meðal þátttökulanda í síðasta sinn uns aðskilnaðarstefnan var afnumin í landinu.

Keppnisgreinar

Keppt var í 150 greinum. Fjöldi keppna í einstökum íþróttaflokkum er gefinn upp í sviga.

Einstakir afreksmenn

Sumarólympíuleikarnir 1960 
Austur-þýska dýfingarkonan Ingrid Krämer var sigursæl á Ólympíuleikunum 1960.
Sumarólympíuleikarnir 1960 
Verðlaunahafar í kanóróðrakeppni leikanna. Gullverðlaunahafarnir voru sænskir: Gert Fredriksson og Sven-Olov Sjödelius. Sá fyrrnefndi vann til gullverðlauna á sínum fernu Ólympíuleikum í röð.

Bandaríski spretthlauparinn Wilma Rudolph vann gullverðlaun í 100 metrum, 200 metrum og 4*100 metra boðhlaupi. Hún öðlaðist miklar vinsældir heimafyrir og var mikið gert úr þeirri staðreynd að hún átti við lömunarveiki og fleiri alvarlega sjúkdóma að etja fram á unglingsár.

Abebe Bikila frá Eþíópíu varð fyrstur þeldökkra Afríkubúa til að vinna gullverðlaun á Ólympíuleikum þegar hann kom fyrstur í mark í Maraþonhlaupi. Undrun vakti að hann hljóp berfættur alla leiðina.

Rafer Johnson frá Bandaríkjunum hlaut gullverðlaunin í tugþraut. Meðan á æfingum fyrir leikana stóð bauðst honum hlutverk í stórmyndinni Spartacus, sem hann neyddist að lokum til að afþakka þar sem talið var að slíkur kvikmyndaleikur myndi stangast á við áhugamannareglur Ólympíuleikanna.

Tyrkir höfnuðu í sjötta sæti yfir fjölda gullverðlauna á leikunum, með sjö slík verðlaun. Þau unnust öll í fangbragðakeppninni.

Sovétmennirnir Júríj Vlasov sigraði í þungavigt kraftlyftinga. Vlasov þótti óvenjulegur lyftingakappi, skartaði þykkum gleraugum og lá í bókum. Hann sneri sér síðar að ritstörfum og stjórnmálum og átti um tíma sæti á rússneska þinginu.

Sumarólympíuleikarnir 1960 
Gríski krónprinsinn sigraði í siglingum á Ólympíuleikunum.

Danskur hjólreiðakappi, Knud Enemark Jensen, hneig niður í miðri hjólreiðakeppninni og var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi skömmu síðar. Hann varð þar með annar íþróttamaðurinn í sögu nútímaólympíuleikanna til að deyja í keppni. Síðar kom í ljós að lyfjanotkun Jensens hefði átt hlut að máli og varð það til þess að farið var að taka lyfjamisnotkun íþróttamanna fastari tökum en verið hafði.

Aladár Gerevich var í gullverðlaunasveit Ungverja í skylmingakeppninni, fimmtugur að aldri. Hann vann þar með til verðlauna á sínum sjöttu leikum, en hann keppti fyrst í Los Angeles árið 1932.

Kóngafólk var fyrirferðarmikið í siglingakeppninni. Gríski krónprinsinn (síðar Konstantín II Grikkjakonungur) vann til gullverðlauna fyrir þjóð sína, en Soffía systir hans (síðar drottning Spánar) keppti í kvennaflokki.

Pakistan rauf óslitna sigurgöngu Indverja í hokkíkeppninni frá leikunum 1928.

Sovésku stúlkurnar unnu fimmtán af sextán mögulegum verðlaunum í fimleikakeppninni.

Cassius Clay, sem síðar tók upp nafnið Muhammad Ali, sigraði í -81 kílógramma flokki hnefaleikakeppninnar.

Þátttaka Íslendinga á leikunum

Íslendingar sendu níu íþróttamenn til keppni á leikunum, sjö frjálsíþróttamenn og tvo keppendur í sundi. Ágústa Þorsteinsdóttir keppti í sundi og varð fyrsta konan til að keppa fyrir Íslands hönd á sumarólympíuleikum frá því á leikunum í Lundúnum tólf árum fyrr.

Svavar Markússon varð tuttugasti í 1.500 metra hlaupi á nýju Íslandsmeti, 3:47,1 mínútum. Var það eina Íslandsmetið á leikunum.

Mestar vonir voru bundnar við Vilhjálm Einarsson. Til að gefa honum kost á að prófa aðstæður, var Vilhjálmur einnig skráður til keppni í langstökki, þrátt fyrir að leggja ekki sérstaklega stund á þá grein. Í úrslitum þrístökkskeppninnar stökk Vilhjálmur 16,37 metra. Það var lengra en sigurstökkið á leikunum fjórum árum fyrr, en gaf að þessu sinni fimmta sætið.

Íslenska knattspyrnulandslíðið tók þátt í forkeppni Ólympíuleikanna og var í riðli með Danmörku og Noregi. Liðið komst ekki áfram en gerði jafntefli á útivelli gegn Dönum, þar sem litlu mátti muna að Íslendingar ynnu sinn fyrsta sigur á gömlu herraþjóðinni.

Verðlaunaskipting eftir löndum

Nr. Land Gull Silfur Brons Samtals
1 Sumarólympíuleikarnir 1960  Sovétríkin 43 29 31 103
2 Sumarólympíuleikarnir 1960  Bandaríkin 34 21 16 71
3 Sumarólympíuleikarnir 1960  Ítalía 13 10 13 36
4 Sumarólympíuleikarnir 1960  Þýskaland 12 19 11 42
5 Sumarólympíuleikarnir 1960  Ástralía 8 8 6 22
6 Sumarólympíuleikarnir 1960  Tyrkland 7 2 0 9
7 Sumarólympíuleikarnir 1960  Ungverjaland 6 8 7 21
8 Sumarólympíuleikarnir 1960  Japan 4 7 7 18
9 Sumarólympíuleikarnir 1960  Pólland 4 6 11 21
10 Sumarólympíuleikarnir 1960  Tékkóslóvakía 3 2 3 8
11 Sumarólympíuleikarnir 1960  Rúmenía 3 1 6 10
12 Sumarólympíuleikarnir 1960  Bretland 2 6 12 20
13 Sumarólympíuleikarnir 1960  Danmörk 2 3 1 6
14 Sumarólympíuleikarnir 1960  Nýja Sjáland 2 0 1 3
15 Sumarólympíuleikarnir 1960  Búlgaría 1 3 3 7
16 Sumarólympíuleikarnir 1960  Svíþjóð 1 2 3 6
17 Sumarólympíuleikarnir 1960  Finnland 1 1 3 5
18 Sumarólympíuleikarnir 1960  Austurríki 1 1 0 2
Sumarólympíuleikarnir 1960  Júgóslavía 1 1 0 2
20 Sumarólympíuleikarnir 1960  Pakistan 1 0 1 2
21 Sumarólympíuleikarnir 1960  Eþíópía 1 0 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Grikkland 1 0 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Noregur 1 0 0 1
24 Sumarólympíuleikarnir 1960  Sviss 0 3 3 6
25 Sumarólympíuleikarnir 1960  Frakkland 0 2 3 5
26 Sumarólympíuleikarnir 1960  Belgía 0 2 2 4
27 Sumarólympíuleikarnir 1960  Íran 0 1 3 4
28 Sumarólympíuleikarnir 1960  Holland 0 1 2 3
Sumarólympíuleikarnir 1960  Suður-Afríka 0 1 2 3
30 Sumarólympíuleikarnir 1960  Argentína 0 1 1 2
Sumarólympíuleikarnir 1960  Sameinaða arabalýðveldið 0 1 1 2
32 Sumarólympíuleikarnir 1960  Kanada 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Tævan 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Ghana 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Indland 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Marokkó 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Portúgal 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Singapúr 0 1 0 1
39 Sumarólympíuleikarnir 1960  Brasilía 0 0 2 2
Sumarólympíuleikarnir 1960  Bresku Vestur-Indíur 0 0 2 2
41 Sumarólympíuleikarnir 1960  Írak 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Mexíkó 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Spánn 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1960  Venesúela 0 0 1 1
Alls 152 149 160 461

Tags:

Sumarólympíuleikarnir 1960 Aðdragandi og skipulagSumarólympíuleikarnir 1960 KeppnisgreinarSumarólympíuleikarnir 1960 Einstakir afreksmennSumarólympíuleikarnir 1960 Þátttaka Íslendinga á leikunumSumarólympíuleikarnir 1960 Verðlaunaskipting eftir löndumSumarólympíuleikarnir 196011. september25. ágústRómSumarólympíuleikarnir 1956Vilhjálmur EinarssonÍslandÍtalíaÞrístökk

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

SjálfstæðisflokkurinnGlymurDalvíkLýðveldið FeneyjarKópavogurFriðrik Þór FriðrikssonStýrivextirMarie AntoinetteSérsveit ríkislögreglustjóraVíkingarEiginfjárhlutfallEmmsjé GautiListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaÞrælastríðiðLatibærGuido BuchwaldKuiperbeltiLungaVíetnamstríðiðAlsírEinmánuðurDOI-númerSkoski þjóðarflokkurinnGugusarLionel MessiAlþingiskosningarFrançois WalthéryÞursaflokkurinnFæreyskaAsmaraHættir sagna í íslenskuHáhyrningurNasismiKjarnorkuslysið í TsjernobylÚtgarðurÓháði söfnuðurinnUppstigningardagurNígeríaFriðrik Friðriksson (prestur)BreiddargráðaÍsöldMartin Luther King, Jr.Hús verslunarinnarSteinn SteinarrHugtök í nótnaskriftBorgFriðrik SigurðssonLómagnúpurSjómannadagurinnLottóOSeyðisfjörðurKróatíaHöggmyndalistMegindlegar rannsóknirHallgrímur PéturssonSaga ÍslandsBamakóBóksalaSnorri SturlusonBandaríkinÍslendingabókVarmadælaBrúttó, nettó og taraLissabonSérhljóðVerðbréfSpilavítiTyrkjarániðÍraksstríðiðNegullLíffélagSaint BarthélemyGrænmetiH🡆 More