Ptolemajaríkið

Ptólemajaríkið Rómaveldi

Tímabil og konungsættir
í Egyptalandi hinu forna
Ptolemajaríkið
Forsaga Egyptalands
Fornkonungar Egyptalands
Elstu konungsættirnar
1. 2.
Gamla ríkið
3. 4. 5. 6.
Fyrsta millitímabilið
7. 8. 9. 10. 11. (aðeins í Þebu)
Miðríkið
11. (allt Egyptaland) 12. 13. 14.
Annað millitímabilið
15. 16. 17.
Nýja ríkið
18. 19. 20.
Þriðja millitímabilið
21. 22. 23. 24. 25.
Síðtímabilið
26. 27. 28. 29. 30. 31.
Grísk-rómverska tímabilið
Alexander mikli

Ptolemajaríkið var hellenískt ættarveldi sem ríkti yfir Egyptalandi frá 305 f.Kr. til 30 f.Kr.. Stofnandi þess, Ptolemajos, var makedónskur herforingi í her Alexanders mikla og varð landstjóri (satrap) í Egyptalandi eftir dauða hans. 305 f.Kr. lýsti hann sig konung Egyptalands og Egyptar tóku Ptolemajum brátt sem arftökum faraóanna. Ætt Ptolemaja ríkti yfir Egyptalandi þar til Rómverjar lögðu það undir sig 30 f.Kr.

Ptolemajaríkið
Veldi díadókanna eftir lát Alexanders. Ptólemajaríkið er sýnt með bláum lit.

Allir karlkyns konungar tóku sér nafnið Ptolemajos. Drottningar Ptolemaja, sem stundum voru systur eiginmanna sinna, hétu yfirleitt Kleópatra, Bereníke eða Arsinóe. Frægasti Ptolemajinn var síðasta drottningin, Kleópatra (7.), sem varð þekkt fyrir afskipti sín af átökum, fyrst Caesars og Pompeiusar, og síðan Octavíanusar og Marcúsar Antoníusar.

Konungar og drottningar Ptólemaja

  • Ptólemajos 1. Sóter (303 f.Kr.-285 f.Kr.) átti líklega fyrst Þaís, síðan Artakama, svo Evridíke og að lokum Bereníke 1.
  • Ptólemajos 2. Fíladelfos (285 f.Kr.-246 f.Kr.) átti fyrst Arsinóe 1., síðan Arsinóe 2.; ríkti samhliða Ptólemajosi Epígónosi (267 f.Kr.-259 f.Kr.)
  • Ptólemajos 3. Evergetes (246 f.Kr.-221 f.Kr.) átti Bereníke 2.
  • Ptólemajos 4. Fílópator (221 f.Kr.-203 f.Kr.) átti Arsinóe 3.
  • Ptólemajos 5. Epifanes (203 f.Kr.-181 f.Kr.) átti Kleópötru 1.
  • Ptólemajos 6. Fílómetor (181 f.Kr.-164 f.Kr. og 163 f.Kr.-145 f.Kr.) átti Kleópötru 2.; ríkti um stutt skeið með Ptólemajos Evpator 152 f.Kr.
  • Ptólemajos 7. Neos Fílópator (ríkti aldrei)
  • Ptólemajos 8. Evergetes 2. (Fysgon) (170 f.Kr.-163 f.Kr., 145 f.Kr.-116 f.Kr.) átti Kleópötru 2., síðan Kleópötru 3.; Kleópatra 2. rak hann frá Alexandríu 131 f.Kr. en þau sættust 124 f.Kr.
  • Kleópatra 2. Fílómetora Sóteira (131 f.Kr.-127 f.Kr.) í andstöðu við Ptólemajos 8.
  • Kleópatra 3. Fílómetor Sóteira Díkaíósýne Níkefóros (Kokke) (116 f.Kr.-101 f.Kr.) ríkti með Ptólemajosi 9. (116 f.Kr.-107 f.Kr.) og Ptólemajosi 10. (107 f.Kr.-101 f.Kr.)
  • Ptólemajos 9. Sóter (Laþýros) (116 f.Kr.-107 f.Kr., 88 f.Kr.-81 f.Kr. sem Sóter 2.) átti Kleópötru 4. síðan Kleópötru Selenu; ríkti fyrst með Kleópötru 3.
  • Ptólemajos 10. Alexander 1. (107 f.Kr.-88 f.Kr.) átti fyrst Kleópötru Selenu, síðan Bereníke 3.; ríkti með Kleópötru 3. til 101 f.Kr.
  • Bereníke 3. Fílópator (81 f.Kr.-80 f.Kr.)
  • Ptólemajos 11. Alexander 2. (80 f.Kr.) átti og ríkti með Bereníke 3. en myrti hana svo og ríkti einn í 19 daga eftir það
  • Ptólemajos 12. Neos Díonýsos (Áletes) (80 f.Kr.-58 f.Kr., 55 f.Kr.-51 f.Kr.) átti Kleópötru 5. Tryfaena
  • Kleópatra 5. Trýfaena (58 f.Kr.-57 f.Kr.) ríkti með Bereníke 4. Epifaena (58 f.Kr.-55 f.Kr.) og Kleópötru 6. Trýfaena (58 f.Kr.)
  • Kleópatra 7. Fílópator (51 f.Kr.-30 f.Kr.) ríkti með Ptólemajosi 13. Þeos Fílópator (51 f.Kr.-47 f.Kr.), Ptólamajosi 14. (47 f.Kr.-44 f.Kr.) og Ptólemajosi 15. Caesarion (44 f.Kr.-30 f.Kr.).
  • Arsinóe 4. (48 f.Kr.-47 f.Kr.) í andstöðu við Kleópötru 7.

Einfaldað ættartré

Sum af ættartengslunum sem sýnd eru í þessu tré eru umdeild.

Ptolemajaríkið 

Aðrir þekktir Ptólemajar

  • Ptólemajos Kerános (dó 279 f.Kr.) - elsti sonur Ptólemajosar 1. Varð konungur Makenóníu.
  • Ptólemajos Apíon (dó 96 f.Kr.) - sonur Ptólemajosar 8. Fyskon. Varð konungur í Kýrenæku sem hann afhenti Rómaveldi.
  • Ptólemajos Fíladelfos (fæddur 36 f.Kr.) - sonur Markúsar Antoníusar og Kleópötru 7.
  • Ptólemajos af Máretaníu (dó 40 e.Kr.) - sonur Júba 2. af Máretaníu og Kleópötru Selenu 2., dóttur Kleópötru 7. og Markúsar Antoníusar. Konungur Máretaníu.

Myndasafn

Tags:

Ptolemajaríkið Konungar og drottningar PtólemajaPtolemajaríkið Einfaldað ættartréPtolemajaríkið Aðrir þekktir PtólemajarPtolemajaríkið MyndasafnPtolemajaríkiðAegyptus (rómverskt skattland)Ptólemajaríkið

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

MassachusettsMicrosoft WindowsSkipSam HarrisEigindlegar rannsóknirStigbreytingÍslenski fáninnEgill Skalla-GrímssonSnæfellsjökullLandsbankinnAgnes MagnúsdóttirSkuldabréfEggert ÓlafssonSnæfellsnesISO 8601Listi yfir íslenska sjónvarpsþættiMyndlista- og handíðaskóli ÍslandsRagnhildur GísladóttirSauðféHarpa (mánuður)MoskvufylkiDóri DNAFimleikafélag HafnarfjarðarKonungur ljónannaUngverjalandKjarnafjölskyldaVestfirðirUppstigningardagurKarlsbrúin (Prag)Kristrún FrostadóttirDavíð OddssonHæstiréttur ÍslandsForsetakosningar á Íslandi 1980ÞjórsáFlóEfnafræðiAlþingiskosningarJóhann SvarfdælingurRússlandB-vítamínGunnar HámundarsonHektariÍslenska kvótakerfiðNúmeraplataTilgátaStella í orlofiÓfærðKeflavík, íþrótta- og ungmennafélagSæmundur fróði SigfússonIngvar E. SigurðssonHerðubreiðLofsöngurÁrbærGísli á UppsölumOkjökullÓlafur Darri ÓlafssonKjördæmi ÍslandsMegindlegar rannsóknirJón Páll SigmarssonHólavallagarðurFjalla-EyvindurFuglafjörðurÓfærufossMagnús Kjartansson (tónlistarmaður)MoskvaFáskrúðsfjörðurHamrastigiJapanGunnar HelgasonLaufey Lín JónsdóttirÞýskalandListi yfir risaeðlurHalldór LaxnessÞjóðminjasafn ÍslandsÞóra Arnórsdóttir🡆 More