Melina Kanakaredes (fædd Melina Eleni Kanakaredes, 23.
apríl">23. apríl 1967) er bandarísk leikkona sem er þekktust fyrir hlutverk sín í CSI: NY, The Guiding Light og Providence.
Melina Kanakaredes | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | Melina Eleni Kanakaredes 23. apríl 1967 |
Ár virk | 1987 - |
Helstu hlutverk | |
Eleni Andros Cooper í The Guiding Light Stella Bonasera í CSI: NY Dr. Sydney Hansen í Providence |
Kanakaredes fæddist í Akron, Ohio í Bandaríkjunum og er af grískum uppruna, ásamt því að vera altalandi á grísku.
Kanakaredes stundaði nám við Ohio State háskólann í tónlist, dansi og leikhúsi en fluttist síðan yfir til Point Park College. Útskrifaðist hún frá Point Park College í Pittsburg, Pennsylvaníu með B.A. gráðu í leiklistum.
Kanakaredes fluttist til New York eftir útskrift þar sem hún reyndi fyrir sér sem leikari í Broadway leikritum.
Fyrsta hlutverk Kanakaredes var í kvikmyndinni Carts frá árinu 1987. Síðan þá hefur hún leikið í nokkrum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Fyrsta hlutverk Kanakaredes í sjónvarpi var í sjónvarpsþættinum The Guiding Light sem Eleni Andros Spaulding Cooper frá 1991-1995. Var hún tilnefnd tvisvar sinnum til Emmy verðlauna fyrir hlutverk sitt.
Frægustu hlutverk hennar í sjónvarpi er fyrir hlutverk sitt sem Dr. Sydney Hansen í Providence frá 1999-2002 og sem Stella Bonasera í CSI: NY frá 2004-2010. Kanakaredes yfirgaf CSI: NY eftir sex þáttaraðir.
Hefur komið fram í kvikmyndum á borð við: The Long Kiss Goodnight, 15 Minutes og Percy Jackson & the Olympians: The Lightning Thief
Kvikmyndir | |||
---|---|---|---|
Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemd |
1987 | Carts | ónefnt hlutverk | |
1994 | Bleeding Hearts | Daphne | |
1996 | The Long Kiss Goodnight | Trin | |
1998 | Dangerous Beauty | Livia | |
1998 | Rounders | Barbara | |
2001 | 15 Minutes | Nicolette Karas | |
2010 | Percy Jackson & the Olympians: The Lightning Thief | Athena | |
2012 | Percy Jackson & the Olympians: The Sea of Monsters | Athena | |
Sjónvarp | |||
Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemd |
1991-1995 | The Guiding Light | Eleni Andros Cooper | 47 þættir |
1995 | Due South | Victoria Metcalf | 3 þættir |
1995 | New York News | Angela Villanova | ónefndir þættir |
1995 | NYPD Blue | Benita Alden | 5 þættir |
1997 | Leaving L.A. | Libby Galante | 6 þættir |
1997 | The Practice | Andrea Wexler | 2 þættir |
1998 | Oz | A.D.A. Marilyn Crenshaw | Þáttur: Great Men |
1998 | Saint Maybe | Rita | Sjónvarpsmynd |
1999-2002 | Providence | Dr. Sydney Hansen | 96 þættir |
2004 | CSI: Miami | Stella Bonasera | Þáttur: MIA/NYC Nonstop |
2005 | Into the Fire | Catrina/Sabrina Hampton | Sjónvarpsmynd |
2004-2010 | CSI: NY | Stella Bonasera | 140 þættir |
Daytime Emmy verðlaunin
Soap Opera Digest verðlaunin
TV Guide verðlaunin
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Melina Kanakaredes, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.