CSI: NY (Crime Scene Investigation: New York) er bandarískur sjónvarpsþáttur sem fylgir eftir réttarrannsóknarmönnum New York borgar og rannsóknum þeirra.
Þátturinn var þróaður af Anthony E. Zuiker, Carol Mendelsohn og Ann Donahue.
CSI: NY | |
---|---|
Einnig þekkt sem | CSI: NY |
Tegund | Lögreglu réttarrannsóknir, Drama |
Þróun | Anthony E. Zuiker, Carol Mendelsohn, Ann Donahue |
Leikarar | Gary Sinise Sela Ward Carmine Giovinazzo Anna Belknap Robert Joy A.J. Buckley Hill Harper Eddie Cahill Melina Kanakaredes Vanessa Ferlito |
Upprunaland | Bandaríkin Kanada |
Frummál | Enska |
Fjöldi þáttaraða | 9 |
Fjöldi þátta | 195 |
Framleiðsla | |
Staðsetning | New York |
Lengd þáttar | 40-45 mín |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | CBS |
Myndframsetning | 480i (SDTV) 1081i (HDTV) |
Sýnt | 22. september 2004-22. febrúar 2013 – |
Tenglar | |
Vefsíða | |
IMDb tengill |
Framleiddar voru níu þáttaraðir og var fyrsti þátturinn sýndur 9. maí 2002 í þætti af CSI: Miami. CSI: NY er systur þáttaröð CSI: Crime Scene Investigation og CSI: Miami.
Þátturinn var framleiddur í samvinnu við kanadíska fjölmiðlafyrirtækið Alliance Atlantis og CBS Television Studios, en er núna aðeins framleiddur af CBS Television Studios.
Þann 10. maí 2013, tilkynnti CBS að þátturinn hafi verið aflýst.
Innisenur eru teknar upp í CBS Studio Center í Los Angeles, Kaliforníu. Margar útisenur eru teknar upp í miðbæ Los Angeles sem líkjast hverfum New York. Yfirlitstökur og útitökur eru teknar í sjálfri New York borginni þegar á við.
Þátturinn fylgir eftir New York réttarrannsóknar liði sem notar nýjustu tækni við rannsókn glæpamála. CSI liðið er stýrt af Rannsóknarfulltrúanum Mac Taylor (Gary Sinise) sem lifir fyrir vinnuna sína og er fyrrum sjóliði sem tók þátt í flugskeytaárás á Írak. Telur hann að allt sé tengt og allir hafi sögu að segja. Nýjasti meðlimur liðsins er Rannsóknarfulltrúinn Josephine “Jo‘‘ Danville (Sela Ward) frá Washington DC. Drifkraftur hennar er umhyggja fyrir fórnarlömbum. Auk þeirra eru í liðinu Danny Messer (Carmine Giovinazzo), sem er hress, en á erfiðleika heima fyrir, sem að hann notar mikið í starfi sínu. Messer var handvalinn af Mac í liðið og reynir hann að standast þann heiður og ábyrgð á hverjum degi. Sheldon Hawkes (Hill Harper) er fyrrverandi réttarlæknir liðsins sem færði sig yfir í rannsóknarstofuna. Ásamt þeim er Don Flack (Eddie Cahill), harður en virtur rannsóknarlögreglumaður með góðan húmor og úr fjölskyldu sem hefur mestöll unnið við lögreglustörf. Lindsay Monroe Messer (Anna Belknap), ung og virk CSI rannsóknarkona frá Montana sem er tilbúin að taka hvaða starf að sér en er hlédræg þegar kemur að upplýsa um leyndarmál sitt sem fékk hana til að taka að sér starfið. Lindsay og Danny eru gift og eina dóttur, Lucy. Aðstoðarmenn liðsins eru rannsóknarstofurottan Adam Ross (A.J. Buckley) og hinn sérvitri réttarlæknir Dr. Sid Hammerback (Robert Joy).
CSI: NY var gerður út frá þætti í annarri þáttaröð af CSI: Miami titlaður MIA/NYC Nonstop sem var frumsýndur 17. maí 2004. Í þeim þætti fer Horatio til NY í leit sinni að morðingja sem drap foreldra ungrar stúlku.
CSI: NY hafði önnur söguþráðs skipti í seríu tvö í þættinum, Manhattan Manhunt þegar Henry Darius flýr til New York og Horatio fylgir Mac til þess að klára rannsóknina. Áður hafði Mac Taylor komið til til Miami til að aðstoða Horatio í að elta uppi Henry Darius í CSI: Miami þættinum Felony Flight.
Í þriðju seríunni í þættinum Cold Reveal hafði CSI: NY söguþráðs skipti við Cold Case þegar rannsóknarfulltrúinn Scotty Valens ferðast til NY til að rannsaka gamalt morðmál tengt Stellu. Þetta er fyrsti þátturinn sem persónur úr öðrum þáttum en CSI veldinu hafa söguþráðs skipti í CSI-þætti.
Í seríu sex, hefur CSI: NY þriggja hluta söguþráðs skipti við CSI: Crime Scene Investigation og CSI: Miami með Laurence Fishburne sem Raymond Langston í aðalhlutverki.
Í seríu níu, hefur CSI: NY söguþráðs skipti við CSI: Crime Scene Investigation. Í CSI þættinum In Vino Veritas ferðaast Mac til Las Vegas til að hitta Christine kærustu sína, nema hann kemst að því að hún er týnd. Í CSI: NY þættinum Seth and Apep þá ferðast Mac og D.B. Russell til New York í leit sinni að Christine.
Leikkonan Vanessa Ferlito yfirgaf þáttinn eftir aðra þáttaröðina og í staðinn kom leikkonan Anna Belknap í byrjun þriðju þáttaraðar. Í lok sjöttu þáttaraðarinnar þá yfirgefur leikkonan Melina Kanakaredes þáttinn og í staðinn kom leikkonan Sela Ward.
Leikari | Persóna | Starf | Sería | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | |||
Gary Sinise | Mac Taylor | CSI Stig 3 / Yfirmaður CSI deildarinnar | Aðal | ||||||||
Sela Ward | Josephine "Jo" Danville | CSI Stig3 /Aðstoðaryfirmaður deildarinnar | Aðal | ||||||||
Carmine Giovinazzo | Danny Messer | CSI Stig 3 | Aðal | ||||||||
Anna Belknap | Lindsay Messer | CSI Stig 3 | Aðal | ||||||||
Robert Joy | Dr. Sid Hammerback | Yfir réttarlæknir | Auka | Aðal | |||||||
A.J. Buckley | Adam Ross | Sérfræðingur á rannsóknarstofuni | Auka | Aðal | |||||||
Hill Harper | Dr. Sheldon Hawkes | CSI Stig 2 | Aðal | ||||||||
Eddie Cahill | Donald "Don" Flack | NYPD Rannsóknarfulltrúi | Aðal | ||||||||
Vanessa Ferlito | Aiden Burn | CSI Stig 2 | Aðal | ||||||||
Melina Kanakaredes | Stella Bonasera | CSI Stig 3/Aðstoðaryfirmaður deildarinnar | Aðal |
Ung stúlka kemur heim eftir partýstand og finnur foreldra sína myrta, rannsóknin leiðir Horatio til New York í leit sinni að morðingjanum. Í NY hittir Horatio, Mac Taylor yfirmann CSI rannsóknarstofunnar í NY sem er að rannsaka morð á leynilögreglumanni, sem virðist vera aðalsökudólgurinn í máli Horatio í Miami. Rannsókn á morði lögreglumannsins leiðir í ljós að hefur verið látinn í 72 tíma og gat ekki verið í Miami þegar morðin áttu sér stað. Við frekari rannsókn komast Horatio og Taylor að því að hinn raunverulegi morðingi hafi drepið lögreglumanninn og notað nafn hans til þess að fara til Miami og er enn ófundinn.
American Society of Cinematographers
BMI Film & TV verðlaunin
Emmy verðlaunin
Image verðlaunin
Motion Picture Sound Editors
People´s Choice verðlaunin
Titill | Höfundur | Útgáfudagur |
---|---|---|
Dead of Winter | Stuart M. Kaminsky | Ágúst 2005 |
Blood on the Sun | Stuart M. Kaminsky | Mars 2006 |
Deluge | Stuart M. Kaminsky | Maí 2007 |
Four Walls | Keith R.A. DeCandido | Maí 2008 |
DVD nafn | Ep # | Útgáfudagur | ||||
---|---|---|---|---|---|---|
Svæði 1 | Svæði 2 | Svæði 4 | ||||
Heil sería | Heil sería | Heil sería | ||||
Sería 1 | 22 | 18. október, 2005 | 1. mars, 2010 | 13. febrúar, 2007 | ||
Sería 2 | 24 | 17. október, 2006 | 1. mars, 2010 | 7. febrúar, 2007 | ||
Sería 3 | 24 | 9. október, 2007 | 1. mars, 2010 | 4. mars, 2009 | ||
Sería 4 | 21 | 23. september, 2008 | 1. mars, 2010 | 19. október, 2009 | ||
Sería 5 | 25 | 29. september, 2009 | 1. mars, 2010 | 11. janúar, 2012 | ||
Sería 6 | 23 | 26. október, 2010 | 20. september, 2010 | 24. október, 2012 | ||
Sería 7 | 22 | 27. september, 2010 | 9. janúar, 2012 | 13. mars, 2013 | ||
Sería 8 | 18 | 25. september, 2012 | 24. júní, 2013 | NA | ||
Sería 9 | 18 | 25. júní, 2013 | NA | NA |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article CSI: NY, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.