CSI: Miami (Crime Scene Investigation: Miami) er bandarískur sjónvarpsþáttur sem fylgir eftir réttarrannsóknarmönnum Miami borgar og rannsóknum þeirra á mismunandi glæpum og morðum í Miami.
Þátturinn var þróaður af Anthony E. Zuiker, Carol Mendelsohn og Ann Donahue.
CSI: MIAMI | |
---|---|
Einnig þekkt sem | CSI: MIAMI |
Tegund | Lögreglu réttarrannsóknir, Drama |
Þróun | Anthony E. Zuiker, Carol Mendelsohn, Ann Donahue |
Leikarar | David Caruso Emily Procter Jonathan Togo Rex Linn Eva LaRue Omar Benson Miller Eddie Cibrian Adam Rodríguez Megalyn Echikunwoke Sofia Milos Rory Cochrane Khandi Alexander Kim Delaney |
Upprunaland | Bandaríkin Kanada |
Frummál | Enska |
Fjöldi þáttaraða | 10 |
Fjöldi þátta | 232 |
Framleiðsla | |
Staðsetning | Miami |
Lengd þáttar | 40-45 mín (án auglýsinga); 90 mín (2 þættir, með auglýsingum) |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | CBS |
Myndframsetning | 480i (SDTV) 1081i (HDTV) |
Sýnt | 23. september 2002 – |
Tenglar | |
Vefsíða | |
IMDb tengill |
Framleiddar voru 10 þáttaraðir og var fyrsti þátturinn frumsýndur 9. maí 2002 í þætti af CSI. CSI: Miami er systur þáttur CSI: Crime Scene Investigation og CSI: NY.
Þátturinn var framleiddur af CBS Television Studios í samvinnu við kanadíska fjölmiðlafyrirtækið Alliance Atlantis.
Tilkynnt var 1. febrúar, 2012, af CBS að tíunda þáttaröðin af CSI: Miami myndi aðeins hafa nítján þætti svo hægt væri að gera pláss fyrir frumsýningu þáttarins NYC 22. Þann 13. maí, 2012, var tilkynnt af CBS að báðum seríunum hafi verið aflýst.
CSI: Miami var aðalega tekin upp í Bandaríkjunum. Tökustaðir voru í Miami-Dade, Flórída, á meðan innitökur voru teknar upp í Raleigh Manhattan stúdíói á Manhattan strönd, Kalíforníu. Sumar senur, þá aðallega utandyra, voru teknar upp á Long Beach, sem og hluta af Manhattan strandar og Redondo strandar. Strendur nálægt miðbæ Long Beach voru oft notaðar í útisenum þar á meðal: Marina Green Park, Rainbow Lagoon Park. Hinar nýju háhýsa íbúðir þar gefa gott yfirlit sem Miami.
Aðrir tökustaðir á Long Beach eins og Naples hverfið, þar sem háhýsi láta sviðsmyndina líta út fyrir að vera í miðju Miami borgar.
Bygging CSI sem lögreglustöð þáttarins er í raunveruleikanum höfuðstöðvar fluggæslu Bandaríkjanna, sem staðsett er í Hawthorne (við götuna Aviation Boulevard á milli Marine Avenue og Rosecrans Avenue).
Þátturinn fylgdi eftir réttarrannsóknar liði í Miami sem er stýrt af hinum áhyggjufulla en fyndna Horatio Caine. Honum til halds og traust er hin fallega og sunnlenska Calleigh Duquesne. Ásamt þeim eru Erick Delko, Ryan Wolfe, sem kom í staðinn fyrir Tim Speedle í seríu 3, DNA sérfræðingurinn Natalia Boa Vista, sem fyllti upp í skarðið fyrir Megan Donner sem hætti þremur árum áður en Natalia kom, rannsóknarfulltrúinn Frank Tripp aðstoðar CSI liðið, ásamt Yelina Salas (Sería 1 - 3). Nýir meðlimir bættust við í áttundu seríu, Walter Simmons og Jesse Cardoza. Í byrjun seríu níu deyr Jesse Cardoza. Réttarlæknirinn Alexx Woods vann náið með liðinu í sex ár, áður en hún ákvað að vinna sem bráðvaktalæknir aftur. Tara Price kom í staðinn fyrir hana í eitt ár, áður en hún var handtekin og skipt út fyrir Tom Loman.
CSI: Miami var myndaður út frá þætti úr upprunalega CSI titlað Cross Jurisdictions. Í þeim þætti þá fara Catherine Willows og Warrick Brown til Miami, til þess að rannsaka morð á eiginkonu fyrrverandi lögreglustjóra Las Vegas.
Að auki hefur CSI: Miami haft söguþráðs skipti við CSI: NY. Persónur úr CSI: NY voru kynntar í annarri seríu af CSI: Miami í þættinum, MIA/NYC NonStop sem var frumsýndur 17.maí 2004. CSI: Miami hafði önnur söguþráðs skipti í seríu fjögur í þættinum Felony Flight sem var frumsýndur 7. nóvember 2005. Þar sem Mac Taylor flýgur frá New York og kemur til Miami til að aðstoða Horatio í að elta uppi glæpamann að nafni Henry Darius. Sagan heldur áfram í CSI: NY í annarri seríunni, í þættinum, Manhattan Manhunt, sem var frumsýndur 9. nóvember 2005, þegar Henry Darius flýr til New York og Horatio fylgir Mac til þess að klára rannsóknina.
Í seríu átta, þá hefur CSI: Miami söguþráðs skipti við CSI: Crime Scene Investigation og CSI: NY í þriggja hluta sögu með Laurence Fishburne sem Raymond Langston, í aðalhlutverki.
CSI: Miami er eina CSI serían sem hefur ekki haft söguþráðs skipti við aðra þætti en CSI þættina.
Leikonan Kim Delaney yfirgaf þáttinn í seríu eitt en talið er að persóna hennar hafi verið skrifuð út þar sem enginn neisti var á milli hennar og Caruso.
Leikarinn Rory Cochrane yfirgaf þáttinn í seríu þrjú en persóna hans var skrifuð út eftir beiðni frá leikaranum Rory Cochrane, sem vildi einbeita sér að kvikmyndaferlinum og líkaði ekki hinar löngu tökur fyrir CSI: Miami.
Leikarinn Adam Rodríguez kom aðeins fram í hluta áttundu seríunnar. Þann 19. febrúar 2010 þá tilkynnti Adam Rodríguez á twitter síðu sinni að persóna hans mun snúa aftur á CSI rannsóknarstofuna sem einn af aðalleikurunum.
Í seríu átta bætast þrír nýjir leikarar Omar Benson Miller sem Walter Simmons, Eddie Cibrian sem Jessie Cardoza og Christian Clemenson sem Dr. Tom Loman.
Leikarinn Eddie Cibrian yfirgefur þáttinn í byrjun seríu níu þegar persóna hans deyr.
Nafn | Leikið af | Starf | Sería | |||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | |||
Lt. Horatio (H) Caine | David Caruso | Yfirmaður | Aðal | |||||||||
Det. Calleigh Duquesne | Emily Procter | Aðstoðaryfirmaður | Aðal | |||||||||
Det. Eric Delko | Adam Rodríguez | CSI Stig 3 | Aðal | Auka | Aðal | |||||||
Det. Ryan Wolfe | Jonathan Togo | CSI Stig 3 | Aðal | |||||||||
Sgt. Frank Tripp | Rex Linn | Yfirrannsóknarfulltrúi | Auka | Aðal | ||||||||
Natalia Boa Vista | Eva LaRue | CSI Stig 2 | Auka | Aðal | ||||||||
Walter Simmons | Omar Benson Miller | CSI Stig 1 | Aðal | |||||||||
Yelina Salas | Sofia Milos | Einkaspjæjari/Rannsóknarfulltrúi | Auka | Aðal | Gesta | |||||||
Lt. Megan Donner | Kim Delaney | CSI aðstoðaryfirmaður | Aðal | |||||||||
Det. Timothy (Tim) Speedle (Speed) | Rory Cochrane | CSI Stig 3 | Aðal | Gesta | ||||||||
Dr. Alexx Woods | Khandi Alexander | Réttarlæknir | Aðal | Gesta | ||||||||
Dr. Tara Price | Megalyn Echikunwoke | Réttarlæknir | Aðal | |||||||||
Jesse Cardoza | Eddie Cibrian | CSI Stig 2 | Aðal | Gesta | ||||||||
Tom Loman | Christian Clemenson | Réttarlæknir | Auka |
Fyrrverandi lögreglustjóri Las Vegas finnst látinn og sjö ára dóttir hans finnst á lífi í Miami. Catherine og Warrick ferðast til Flórída, þar sem þau aðstoða Miami CSIs í því að elta uppi morðingjann.
CSI: Miami hefur verið nefndur vinsælasti sjónvarpsþáttur heims samkvæmt áhorfendakönnunum í 20 löndum. Könnunin, sem var gerð af Informa Telecoms and Media, sýndi að CSI: Miami kom fram oftast fyrir í vinsældalistum meira en nokkur annar þáttur. Einnig í sömu könnun, þá kemur fram að CSI: Crime Scene Investigation hafði háar vinsældir en hann lenti í sjötta sæti.
ALMA verðlaunin
ASCAP Film and Television Music verðlaunin
American Society of Cinematographers
BMI Film & TV verðlaunin
California on Location verðlaunin
Edgar Allan Poe verðlaunin
Emmy verðlaunin
Image verðlaunin
Image Foundation verðlaunin
Motion Picture Sound Editors
People´s Choice verðlaunin
Prism verðlaunin
Young Artist verðlaunin
Titill | Höfundur | Útgáfudagur |
---|---|---|
Florida Getaway | Max Allan Collins | Ágúst 2003 |
Heat Wave | Max Allan Collins | Júlí 2004 |
Cult Following | Donn Cortez | Desember 2005 |
Riptide | Donn Cortez | Júlí 2006 |
Harm for the Holidays: Misgivings | Donn Cortez | Nóvember 2006 |
Harm for the Holidays: Heart Attack | Donn Cortez | Janúar 2007 |
Cut and Run | Donn Cortez | Mars 2008 |
Right to Die | Jeff Mariotte | September 2008 |
DVD nafn | Ep # | Útgáfudagur | ||||
---|---|---|---|---|---|---|
Svæði 1 | Svæði 2 | Svæði 4 | ||||
Heil sería | Heil sería | Heil sería | ||||
Sería 1 | 24 | 29. júní, 2004 | 1. mars, 2010 | 10. nóvember, 2006 | ||
Sería 2 | 24 | 31. desember, 2004 | 1. mars, 2010 | 7. febrúar, 2007 | ||
Sería 3 | 24 | 22. nóvember, 2005 | 1. mars, 2010 | 16. október, 2007 | ||
Sería 4 | 25 | 31. október, 2006 | 1. mars, 2010 | 9. júlí, 2008 | ||
Sería 5 | 24 | 30. október, 2007 | 1. mars, 2010 | 4. mars, 2009 | ||
Sería 6 | 21 | 9. september, 2008 | 1. mars, 2010 | 10. mars, 2010 | ||
Sería 7 | 25 | 15. september, 2009 | 7. júní, 2010 | 16. mars, 2011 | ||
Sería 8 | 24 | 12. október, 2010 | 25. júlí, 2011 | 18. apríl 2012 | ||
Sería 9 | 22 | 27. september, 2011 | 25. júní, 2012 | 12. september, 2012 | ||
Sería 10 | 19 | 25. september, 2012 | NA | NA |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article CSI: Miami, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.