Eyríki er ríki sem afmarkast af einni eða fleiri eyjum, það er það á sér ekki yfirráðasvæði á neinu meginlandi.
Til eru tvenns konar eyríki:
Ríki sem eiga sér yfirráðasvæði á einhverju meginlandi eru ekki talin til eyríkja, jafnvel þó að mesti hluti ríkisins sé á eyjum. Dæmi um slíkt er Danmörk (Jótland er meginland) og Malasía (Malakka er meginland). Sömuleiðis eru eylönd sem ekki eru að fullu sjálfstæð, þó að þau séu með heimastjórn, ekki talin til eyríkja. Dæmi um slíkt eru Færeyjar, Grænland og Gvam.
Eins og stendur eru eyríki heims 47 að tölu. Það stærsta og fjölmennasta er Indónesía. Það yngsta er Austur-Tímor, en sjálfstæði þess var viðurkennt árið 2002.
Eyríki heims eftir stærð:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Eyríki, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.