Massimo D'Alema (f.
20. apríl 1949) er ítalskur stjórnmálamaður og fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, sá fyrsti í sögu lýðveldisins sem kemur úr röðum ítalska kommúnistaflokksins. Hann var formaður vinstri-lýðræðisflokksins og varaforseti alþjóðasamtaka sósíalista. D'Alema kemur úr fjölskyldu sem var virk í kommúnistaflokknum og hann skráði sig fjórtán ára gamall í flokkinn. Hann hefur stundum verið kallaður „barn flokksins“. Á umrótsárum 8. áratugarins reyndi hann að miðla málum milli kommúnistaflokksins og fjölmennra róttækra vinstrihreyfinga sem höfðu gefist upp á honum og þótti hann of íhaldssamur og varfærinn undir stjórn Enricos Berlinguer. D'Alema varð hægri hönd Berlinguers og fór meðal annars með honum í jarðarför Júrí Andropov 1984. Þegar Berlinguer lést úr hjartaáfalli 1988 var D'Alema ritstjóri L'Unità, málgagns kommúnistaflokksins 1991 átti hann þátt í stofnun nýs flokks, vinstrisinnaða lýðræðisflokksins, sem átti aðild að Ólífubandalaginu sem vann kosningarnar 1996. Í fyrstu ríkisstjórn Prodis var D'Alema forseti þingnefndar um stjórnsýsluumbætur og þegar ríkisstjórnin féll 1998 tók hann við sem forsætisráðherra og gegndi því embætti til 2000 þegar vinstri-miðjuflokkarnir töpuðu illa í sveitarstjórnarkosningum. Eftir afsögn hans tók Giuliano Amato við. Í annarri ríkisstjórn Prodis frá 2006 gegndi D'Alema stöðu utanríkisráðherra.
Fyrirrennari: Romano Prodi |
| Eftirmaður: Giuliano Amato |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Massimo D'Alema, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.