Wuxi: Stórborg í suðurhluta Jiangsu-héraðs í Austur-Kína

Wuxi (kínverska: 無錫; rómönskun: Wúxī; er stórborg í suðurhluta Jiangsu-héraðs í austurhluta Alþýðulýðveldisins Kína.

Wuxi
無錫
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar
Wuxi er staðsett í Kína
Wuxi
Wuxi
Staðsetning Wuxi í Jiangsu héraði í Kína.
Hnit: 31°29′28″N 120°18′43″A / 31.491°N 120.312°A / 31.491; 120.312
LandFáni Kína Kína
HéraðJiangsu
Stjórnarfar
 • FlokksritariDu XiaoGang
 • BorgarstjóriZhao JianJun
Flatarmál
 • Samtals4.628 km2
Mannfjöldi
 (2020)
 • Samtals7.462.135
TímabeltiUTC+8
Póstnúmer
214000 (þéttbýli)
214200, 214400 (annars staðar)
Svæðisnúmer510
Vefsíðawww.wuxi.gov.cn
Jichang garðurinn í Liangxi hverfi Wuxi er frægur kínverskur garður. Hann er sagður fyrirmynd Xiequ garðsins í Sumarhöll Pekingborgar og Guo Ran Da Gong í Yuanming Yuan í Peking.
Jichang garðurinn í Liangxi hverfi Wuxi er frægur kínverskur garður byggður á tíma Mingveldisins (1368-1644). Hann er sagður fyrirmynd Xiequ garðsins í Sumarhöll Pekingborgar og Guo Ran Da Gong í Yuanming Yuan í Peking.

Wuxi er staðsett meðfram Miklaskurði á mótum þess farvegs við staðbundnar ár nálægt norðausturhorni Tai-vatns. Í gegnum borgina liggur þétt net skurða og skipgengra vatnaleiða í suðurhluta Jangtse- fljótsins. Borgin er um 135 kílómetra norðvestur af miðborg Sjanghæ, á milli borganna Changzhou og Suzhou.

Wuxi er fræg sögu- og menningarborg Kína og ein helsta ferðamannaborg landsins. Borgin státar af meira en 3.000 ára sögu og djúpstæðum menningararfi. Hún var heimili Wu-menningar í fornöld og hefur ríka sögulega arfleifð. Í henni eru 31 mikilvægir sögustaðir er njóta verndar ríkisins, 11 staðir sem hafa sterka skírskotun til kínversks menningararfs, auk 60 safna og minnisvarða.

Wuxi er ekki aðeins hefðbundin fisk- og hrísgrjónavatnaborg við Jangtse fljót, heldur einnig vagga nútíma kínverskrar þjóðariðnaðar og ein efnahagsmiðstöða Kína, með öflugum fyrirtækjum í viðskiptum, ekki síst sterkum einkafyrirtækjum.

Á kínverskan mælikvarða er Wuxi borg hagsældar. Sterk vísbending um efnahagslega velferð er landsframleiðsla á mann. Þar var Wuxi borg árið 2021 efst allra stórra og meðalstórra kínverskra borga Kína.

Héraðsborgin Wuxi nær yfir 4.627 ferkílómetra lands. Hún hefur lögsögu yfir 5 hverfum og tveimur sýsluborgum. Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Wuxi um 7,5 milljónir manna en 4 milljónir í kjarnaborginni.

Saga

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Stytta af Taibo í Taibo hofinu í Xinwu hverfi. Taibo stofnaði Wu-ríkið í Wuxi á 11. öld f.Kr.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Mahavira salur Nanchan búddahofsins í suðurhluta Wuxi.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
„Magu býður langlífi“ í Wuxi safninu. Magu er gyðja langlífs og verndari kvenna í fornum kínverskum goðsögnum og Taoisma.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Kort af Wuxi árið 1881.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Qingming brúin yfir Miklaskurð í Liangxi hverfi Wuxi.

Wuxi státar af meira en 3.000 ára sögu og djúpstæðum menningararfi sem einn af elstu þéttbýlisstöðum við Jangtsefljót. Borgin er ein vagga Wu-menningar í fornöld og hefur ríka sögulega arfleifð. Wu vísar til þess svæðis í Kína sem miðast við Tai-vatn á Jiangnan svæðinu er liggur suður af Jangtse fljóti.

Fornsaga

Í borginni eru 31 mikilvægir sögustaðir er njóta verndar ríkisins, 11 staðir sem hafa sterka skírskotun til kínversks menningararfs og 60 söfn og minnisvarðar.

Á svokölluðu vor- og hausttímabili í sögu Kína (770–476 f.Kr.) bjuggu staðbundnir Baiyue ættbálkar sem nefndir voru „Gou Wu“ á landsvæði þar sem nútímaborgirnar Wuxi og Suzhou liggja. Þessir ættbálkar mynduðu þorp í hæðunum við votlendið umhverfis Tai-vatn.

Skráð saga Wuxi hófst við lok tíma Shangveldisins (1600–1046 f.Kr.). Forn sagnfræðirit Sima Qian sagnfræðings (145 f.Kr.- 91 f.Kr.) greina frá því að Taibo (um 1150 f.Kr.) frændi konungs Zhouveldisins hafi stofnað Wu-ríkið í Wuxi á 11. öld f.Kr. Taibo siðað heimamenn og bætti landbúnað þeirra og áveitustjórn. Síðar flutti Wu hirðin til Gusu þar sem nútíma Suzhou liggur. Wu-ríkið stóð frá 12. öld f.Kr.– 473 f.Kr.

Keisaratímar

Í tíma Qinveldisins tilheyrði Wuxi Kuaiji-sýslu. Svæðið í Wuxi var upphaflega þekkt vegna tinnáma sem þar voru, en þegar sýslan var stofnuð árið 202 f.Kr. á tímum Vestur-Hanveldisins (206 f.Kr.–25 e.Kr.), voru þær námur uppurnar og þéttbýlið fékk fékk því nafnið Wuxi („án tins“). Frá lokum 3. aldar var borgin umdæmi undir stjórn herforingja Biling borgar (síðar nefnd Changzhou) og hélst svo nema í stuttan tíma undir stjórn Júanveldisins (1206– 1368), þegar svæðið var gert að sjálfstæðu héraði.

Frá fyrstu tíð hefur svæðið í kringum Tai-vatn verið mjög frjósamt. Landbúnaður og silkiiðnaður blómstraði í Wuxi. Eftir að gerð Miklaskurðar lauk árið 609 varð Wuxi umskipunarmiðstöð fyrir skattkorn ætlað höfuðborginni. Þar myndaðist einn stærsti kornmarkaður Kína, þar sem mikið magn hrísgrjóna var meðhöndlað.

Þróað hagkerfi hraðaði þéttbýlismyndun. Borgin varð aðsetur afar auðugra kaupmanna og milliliða. Þessi hagsæld viðskipta hafði mikil áhrif á bókmenntir og námstofnanir í svæðinu suðurhluta Jangtse. Wuxi varð einn af mikilvægum fæðingarstöðum koparprentunar og Kunqu formi Kínverskrar óperu.

„Kangxi suðurferðin“ árið 1698. - Á blómaskeiði Tjingveldisins (1636–1912) fóru Kangxi keisari (1654–1722) og Qianlong keisari (1711–1799) sex sinnum suður til Jangtse-fljóts og heimsóttu Jichang-garðinn í Huishan, Wuxi. Hirðmálarinn Wang Hui skóp þessa 29,32 metra (8.8 cm x 2932.4 cm) löngu málverkarollu árið 1698 um „Kangxi suðurferðina“. Auk listræns gildis er verkið talið ómetanlegur vitnisburður um ástand lands og borgar, ásamt lýsingu daglegs kínversks lífs þess tíma. Myndarolluna má skoða líkt og þú værir á ferð um borgina og umhverfi hennar. Myndin sýnir einungis hluta af sjöunda bindi „Kangxi suðurferðarinnar“. Frá hægri til vinstri eru: Wuxi Huishan; Xishan (nú hverfi í Wuxi); Qinyuan (nú Jiangyin undirborg Wuxi); Huangputun (nú Huangbutun); og síðan Wuxi sýsla, sem liggur framhjá Xin'an bænum (nú Binhu hverfi) til Hushu (nú undirhverfi) Suzhou.

Árið 1724 var Wuxi orðin mjög fjölmenn sýsla og því var austurhluti hennar aðskilinn og gerður að Jinkui-sýslu. Bæði Wuxi og Jinkui voru gjörsamlega eyðilögð í Taiping-uppreisninni (1850-1864), þegar næstum 2/3 íbúanna voru drepnir. Mannfallið var gríðarlegt. Fjöldi „hæfra karlmanna“ í sýslunum, sem hafði verið 339.549 og 258.934 árið 1830, féll niður í 72.053 og 138.008 árið 1865.

Á tíma Tjingveldisins (1636–1912) blómstraði bómullar- og silkiframleiðsla í Wuxi. Viðskipti jukust með alþjóðlegri opnun „sáttamálahafna“ byggðum á friðarsáttmála sem batt enda á fyrsta ópíumstríðið (1839–1842) milli Breska heimsveldisins og Tjingveldisins í Kína. Þetta voru Sjanghæ árið 1842; og Zhenjiang og Nanjing árið 1858. Woxi naut uppgangs þeirra borga. Hún varð miðstöð textíliðnaðar í Kína. Textílverksmiðjur voru byggðar árið 1894 og silkispólunarstöðvar byggðar árið 1904.

Þegar Mikliskurður hrundi eftir 1850, hélt Wuxi mikilvægi sínu sem svæðisbundinn hrísgrjónamarkaður. Þaðan var korn flutt til Sjanghæ, um 130 kílómetra til suðausturs; auk sjóleiðarinnar til Tianjin borgar í norðri. Viðskipti með korn jukust enn frekar eftir 1908 þegar komið var á járnbrautartengingu til Sjanghæ, Zhenjiang og Nanjing í norðvestri.

Jinkui sýsla sameinaðist að nýju Wuxi-sýslu við upphaf kínverska lýðveldisins árið 1912.

Lýðveldistími

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Japanskur innrásarher í Wuxi í desember 1937 á leið sinni til Nanking.

Þegar seinna stríðið við Japan braust út árið 1937 varð Wuxi fyrir miklu áfalli. Sjanghæ sem er nálægt Wuxi og mjög tengd efnahagslega, varð fyrir miklum árásum. Verksmiðjur og byggingar urðu fyrir miklu tjóni eða gjöreyðilagðust vegna sprengjuárása japanskra flugvéla.

Eftir sigur gegn Japönum árið 1945 var efnahagur Wuxi endurreistur og fjárfestingar jukust. Borgarastyrjöld milli Lýðveldissinna og Kommúnista hafði síðan óhjákvæmilega áhrif á efnahag borgarinnar. Frelsisher kommúnista hertók síðan borgina 23. apríl 1949. Um miðjan júní var yfirtöku borgarinnar í grundvallaratriðum lokið.

Tímar Alþýðulýðveldis

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Wuxi safnið í Liangxi hverfi er yfirgripsmikið safn staðbundinnar sögu og lista.

Frá 1949 eftir valdatöku kommúnista hefur vægi borgarinnar sem landsbundin viðskiptamiðstöð minnkað, þó að hlutverk hennar sem dreifingar- og söfnunarmiðstöð fyrir Tai vatnasvæðið hafi haldið.

Auk viðskipta með hrísgrjón og bómullar- og silkiframleiðslu voru aðrar mikilvægar atvinnugreinar borgarinnar hveitimölun, hrísgrjónavinnsla og olíuvinnsla. Frá fimmta áratug síðustu aldar hefur iðnþróun verið hröð. Textíl- og matvælaiðnaðurinn hefur stækkað og færður til nútímahorfs. Borgin er orðin miðstöð verkfræðiiðnaðar, sérstaklega fyrir vélasmíði auk framleiðslu rafbúnaðar, kapla og textílvéla af ýmsum toga; í seinni tíð hefur framleiðsla lyfja og ýmissa efna orðið æ mikilvægari.

Hraðbraut milli Sjanghæ og Nanjing liggur í gegnum borgina, með afreinum sem teygja sig frá borginni til sýsluborga Wuxi, norður til Jiangyin og suðvestur til Yixing. Frá árinu 2004 hefur staðbundinn flugvöllur veitir flugþjónustu til nokkurra stórborga landsins. Árið 2014 opnuðu fyrstu tvær borgarlestarlínur Wuxi. Nú eru þær fjórar og sex aðrar neðanjarðarlínur í undirbúningi.

Ferðaþjónusta hefur orðið sífellt mikilvægari. Umhverfi Wuxi inniheldur marga þekkta fallega staði sem hafa verið varðveittir vandlega, ásamt ýmsum borgargörðum og sögulegum stöðum. Í dag hefur iðnþróun verið takmörkuð nærri Tai-vatni, sem er eitt helsta aðdráttarafl ferðaþjónustu borgarinnar. Þar var þó iðnaðargarður með sérstakri áherslu á vísindi og tækni stofnaður árið 2006.

Borg hagvaxtar og mengunar

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Kirsuberjablómatré í blóma við Changchun brúna við Tai-vatn í Wuxi.

Með efnahagslegri opnun Kína á síðustu tveimur áratugum síðustu aldar, hefur efnahagur Wuxi náð sér á strik með miklum vexti einkafyrirtækja. Árið 1981 var hún opinberlega skráð sem ein 15 kínverskra borga sem tóku þátt í þessari efnahagslegu opnum og árið 1985 var borgin formlega viðurkennd sem opin borg í sérstöku efnahagssvæði Jangtse óshólmasvæðisins. Í kjölfarið voru fríverslunarsvæði og iðngarðar opnaðir fyrir miklum erlendum fjárfestingum. Wuxi tók þá flugið sem mikil iðnaðar- og viðskiptaborg.

Árið 2022 hefur borgin efnahags- og viðskiptatengsl við 224 ríki eða landssvæðisvæði. Fyrirtæki frá Wuxi hafa fjárfest í 92 löndum og svæðum.

Landsframleiðsla á mann er mikilvægur mælikvarði á efnahagslega velferð. Árið 2021 var var Wuxi borg þar í fyrsta sæti allra stórra og meðalstórra borga Kína.

Hröð iðnþróun og þéttbýli síðustu áratuga tekið sinn toll á umhverfi. Tai vatn sem er þriðja stærsta ferskvatnsvatn Kína, hefur undanfarin ár verið þjakað af mengun vegna iðnþróunar nærliggjandi svæða. Förgun efna og skólps úti í vatnið í upphafi 21. aldar hefur valdið myndun eitraðra blágerla eða þörungar á yfirborði vatnsins. Það hefur ógnað gæðum drykkjarvatns þeirra sem búa við vatnið. Á síðari árum hafa stjórnvöld ráðist í mjög kostnaðarsama umfangsmikla hreinsun og verndun vatnsins. Á þriðja þúsund verksmiðjum hefur nú verið lokað og reglum um umgengni við vatnið hertar til að bæta vatnsgæði og til að ná líffræðilegri endurheimt. Enn er þó mikið starf óunnið í þeim efnum.

Landafræði

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Amharclann Wuxi Grand
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Bambusskógur í Yixing undirborg Wuxi.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Frá Chang Guangxi votlendisgarðinum í Binhu hverfi Wuxi borgar.

Wuxi-borg er staðsett í suðausturhluta Jiangsu-héraðs. Hún liggur að Suzhou-borg í austri; með Tai vatnið í suðri, handan vatnsins frá Huzhou borg í Zhejiang héraði; og Changzhou borg í vestri.

Sýsluborgin Yixing, ein tveggja undirborga Wuxi, er aðskilin frá borginni af Wujin hverfi Changzhou borgar, og hefur sem hólmlenda enga landtenging við Wuxi. Með nýjum tæplega 11 kílómetra göngum undir Tai-vatn sem opnuðu í árslok 2021, er Binhu hverfi nú tengd undirborginni Yixing sem hluti af Suzhou-Wuxi-Changzhou suðurhraðbrautinni.

Heildarflatarmál Wuxi er 4.627 ferkílómetrar, þar af eru 782 ferkílómetrar fjöllótt og hæðótt land, sem eru 17% af heildarflatarmáli borgarinnar.

Wuxi er dæmigerður vatnabær í suðurhluta Jangtse-fljótsins, með þéttriðið net skurða og vatnaleiða, sem og fjölmörg vötn, er mynda frárennsli, flutninganet og votlendisgarða. Vatnsyfirborðið er 1.342 ferkílómetrar, eða 29% af heildarflatarmáli borgarinnar. Í vatnskerfi borgarinnar eru 5.983 árfarvegir með heildarlengd 6.998 kílómetra, þar á meðal Peking-Hangzhou hluti Miklaskurðar. Samkvæmt varfærnu mati hafa meira en 1.000 árfarvegir í borgarlandinu verið urðaðir til vegagerðar frá árinu 1949.

Jangtse óshólmasvæðið er láglent landslag sem einkennist af sléttum, yfirleitt undir 3,5 metrum yfir sjávarmáli, þar sem lægsti punktur er undir 2 metrum yfir sjávarmáli. Hluti svæðisins frá norðri til Jiangyin sýsluborgar Wuxi, var Furong vatn í fornöld sem hvarf smám saman á tíma Song- og Mingveldanna.

Mashan svæðið í Binhu hverfi borgarinnar er hæðótt landsvæði við Tai stöðuvatnið; Í Yixing-sýsluborginni eru Yili-fjöll, sem eru lág fjöll og hæðir. Hæsti punkturinn 611,5 metrar er Huangtading fjall í suðri, næsthæsta tinds Jiangsu-héraðs.

Veðurfar

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
„Stóra Búddastyttan“ er við norðurströnd Tai-vatns í Binhu hverfi Wuxi. Hún er ein stærsta Búddastytta Kína.

Í Wuxi hefur fjögurra árstíða rakt heittemprað loftslag undir áhrifum monsúnvinda, með heitum, rökum sumrum og svölum, skýjuðum, rökum vetrum með einstaka snjókomu. Sumur og vetur eru löng en vor og haust stutt.

Að neðan má sjá veðurupplýsingar fyrir Wuxi á árunum 1981 til 2010, þar sem ársmeðalhiti um 16,2°C og meðal ársúrkoma um 1.122 mm.

Almennt má segja að veðrið sé milt og rakt með fjórum mismunandi árstíðum. Borgin þykir rík af úrkomu árið um kring. Haustið er talið besta árstíðin til að heimsækja Wuxi. Þó veðrið sé breytilegt er vorið einnig góð árstíð til að heimsækja borgina í miklum blóma. Einna síst þykir að heimsækja Wuxi á hásumri þegar loftslagið er heitt og rigningasamt og hitinn getur farið yfir 30 °C.

Árlegt frostlaust tímabil er um 220 dagar og sólskinsstundir í þéttbýli Wuxi eru 2019,4 klukkustundir á ári.

Veðurfar í Wuxi borg á árunum 1981 til 2010
Mánuður Jan. Feb. Mar. Apr. Maí Jún. Júl. Ágú. Sep. Okt. Nóv. Des. Árið
Meðalhiti (°C) 3,5 5,4 9,4 15,2 20,7 24,5 28,5 27,8 23,6 18,2 12,1 5,9 16,2
Meðalúrkoma (mm) 58,8 57,3 92,0 79,9 96,1 182,9 172,1 143,5 91,5 57,4 56,7 33,8 1.122
Heimild: Veðurstofa Kína: Wuxi borg á árunum 1981 til 2010

Lýðfræði

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Kirkja heilags Jósefs er rómversk-kaþólsk kirkja í Beitang hverfi Wuxi borgar. Upphaflega kirkjan var byggð árið 1640, á tíma Mingveldisins (1368–1644).

Wuxi borg er fjölmenn borg. Þéttbýlast er miðborgasvæðið (Lianxi, Binhu og Xinwu hverfin, auk aðliggjandi hluta Huishan og Xishan hverfa). Í útjaðrinum, í sýsluborgunum Jiangyin og Yixing, er dreifbýlið meira með þorpum og nýbyggingasvæðum.

Árið 2020 þegar síðasta manntal var gert í Kína, var íbúafjöldi borgarkjarna Wuxi 3.956.985 en íbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar var 7.462.135.

Mikill meirihluti íbúa eru Han-kínverjar, en önnur þjóðarbrot á borð við Hui og Miao þjóðerni eru fámennari. Frumbyggjar Wuxi tala Wuxi mállýskuna eða Suzhou mállýsku.

Meirihluti þeirra sem trúaðir eru stundar búddisma, taóisma og þjóðtrú. Að auki hefur borgin umtalsverð samfélög múslima, kaþólikka og mótmælenda.

Stjórnsýsla

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Fjölmennið kallar á mörg hús. Hér er eitt hverfið nýbyggt 2009.

Undir lögsögu Wuxi borgar eru fimm hverfi og tvær borgir á sýslustigi. Þessi hverfi eru Liangxi, Xishan, Huishan, Xinwu, og Binhu (vatnahverfið). Undirborgirnar eru Jiangyin borg og Yixing borg.

Þessum stjórnsýslueiningum er síðan skipt niður í 73 sveitarfélög, þar af 59 bæi og 24 undirhverfi.

Borgin nær yfir svæði sem er um 4.628 ferkílómetrar og borgarstjórnin hefur aðsetur í Liangxi hverfi.

Að auki hefur Wuxi komið á fót eftirfarandi efnahagssvæðum og iðngörðum. Þar á meðal eru: Xishan efnahags- og tækniþróunarsvæðið; Wuxi Liyuan efnahagsþróunarsvæðið; „Wuxi landslagsborgin“ (þar eru á meðal: „Stafrænir iðnaðargarðar Wuxi“ og „Ferðaþjónustugarður Wuxi við Tai vatn“); Jiangyin hátæknisvæðið; og „Jiangsu Jiangyin Lingang efnahagsþróunarsvæðið“.

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Stjórnsýsluskipting Wuxi-borgar í hverfi og undirborgir
Stjórnsýsla Wuxi
Undirskipting Kínverska Fólksfjöldi 2018 Stærð (km2)
Miðborg
Liangxi hverfi 梁溪区 961.500 72
Hverfi
Xishan hverfi 锡山区 707.700 399
Huishan hverfi 惠山区 712.200 325
Binhu hverfi 滨湖区 716.000 628
Xinwu hverfi 吴江区 569.200 220
Undirborgir
Jiangyin borg 江阴市 1.651.800 987
Yixing borg 宜兴市 1.256.100 1.997
Alls: 6.574.500 4.627
Óformlegar stjórnsýsludeildir:Iðngarðar og atvinnuþróunarsvæði

Efnahagur og atvinnulíf

Borg vaxtar

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Byggingin „Center 66“ er í Chong'an miðlægu viðskiptahverfi Wuxi.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
„Fjármálatorg Wuxi“ (Wuxi IFS) sem opnaði 2014, er 339 metra hár, 68 hæða skýjakljúfur, í Liangxi hverfi Wuxi.

Á kínverskan mælikvarða er Wuxi borg hagsældar. Hún er svæðisbundin viðskiptamiðstöð með öflugum fyrirtækjum í viðskiptum, ekki síst sterkum einkafyrirtækjum. Áhersla er á fjölbreytt atvinnulíf með uppbyggingu stórra iðnaðargarða sem eru helgaðir nýjum atvinnugreinum.

Í matsrannsókn á samkeppnishæfni 291 borga Kína árið 2021 var Wuxi talin meðal þeirra 10 efstu.

Sterk vísbending um efnahagslega velferð er landsframleiðsla á mann. Þar var Wuxi borg árið 2021 efst allra stórra og meðalstórra kínverskra borga. Efnahagur borgarinnar blómstrar með fjölbreyttu atvinnulífi og alþjóðlegum fjárfestingum. Meiri hagsæld þýðir komu erlendra verslunar- og smásölufyrirtækja, á borð við IKEA, Bailian, Apple, svo nokkuð sé nefnt.

Þessi þróun hefur einnig breytt ásýnd Wuxi með æ fleiri skýjakljúfum. Þannig opnuðu þrír slíkir árið 2014: Wuxi IFS (339 metrar), Wuxi Suning Plaza 1 (328 metrar) og Wuxi Maoye City - Marriott Hotel (304 metrar).

Hefðbundin framleiðsla

Auk hefðbundinna viðskipta með hrísgrjón og bómullar- og silkiframleiðslu voru aðrar mikilvægar atvinnugreinar borgarinnar framan af hveitimölun, hrísgrjóna- og olíuvinnsla. Frá fimmta áratug síðustu aldar hefur iðnþróun verið hröð. Textíl- og matvælaiðnaðurinn hefur stækkað og færður til nútímahorfs. Borgin er orðin svæðisbundin miðstöð verkfræðiiðnaðar, sérstaklega fyrir vélasmíði auk framleiðslu rafbúnaðar, framleiðslu reiðhjóla- og hemla; kapla og textílvéla af ýmsum toga. Í seinni tíð hefur framleiðsla lyfja og ýmissa efna orðið æ mikilvægari.

Ferðaþjónusta

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Vatnaborgin Wuxi er mikil ferðamannaborg.

Ferðaþjónusta í borginni er sífellt mikilvægari. Umhverfi Wuxi inniheldur marga þekkta og vel varðveitta staði,borgargarða og sögulega staði. Tai-vatn er eitt helsta aðdráttarafl ferðaþjónustu borgarinnar. Alþjóðlegar hótelkeðjur hafa keppst við að reisa glæsihótel til að anna aukinni eftirspurn: Marriott, Kempinski, Radisson Blu, Sheraton, o.s.frv.

Nýjar atvinnugreinar

Sterk áhersla er hjá borgaryfirvöldum að gera atvinnulífið enn fjölbreyttara með meiri þátttöku alþjóðlegra fyrirtækja. Áherslan er á ýmiskonar líftækni, öreindatækni, upplýsingatækni og gagnavinnslu, flug- og samgöngutækni, grænar raforkulausnir á borð við efnarafala fyrir vetnisframleiðslu, sem og iðnhönnun og aðrar skapandi greinar.

Til að ýta undir stafræna umbreytingu hefur borgin hvatt til framþróunar iðnaðar byggðum á „Interneti hlutanna“ (IoT), ekki síst á sviði heilbrigðistækni. Sama gildir um stafræna tækni í margskonar iðnframleiðslu. Vöxtur á þessu sviði hefur verið gríðarlegur í borginni á undanförnum árum. Borgin þykir fremst allra kínverskra borga á héraðsstigi hvað varðar þróun stafræns hagkerfis.

Atvinnuþróunarsvæði

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Í „Nýhverfi Wuxi“ (Xinwu hverfi) er „Þjóðarhugbúnaðargarðurinn“ sem er iðngarður og nýsköpunarsetur fyrir upplýsingatækni.

Til að styðja við þessa framþróun hafa nýjar atvinnugreinar verið vistaðar í sérstökum iðngörðum og fríverslunarsvæðum sem bjóða upp á klasastarfssemi ásamt nýsköpunar- og frumkvöðlasetur í viðkomandi atvinnugrein. Alls eru sex slíkir iðngarðar og atvinnuþróunarsvæði í borginni.

Árið 1992 var stofnað svokallað „Nýhverfi Wuxi“ (WND) nú nefnt Xinwu hverfi, sem nær yfir svæði sem er 220 ferkílómetrar. Þar er Wuxi hátæknþróunarsvæðið, Flugiðnaðargarður Wuxi, og „Þjóðarhugbúnaðargarðurinn“, svo nokkuð sé nefnt.

Sem dæmi þá eru þar um 1.000 hugbúnaðar- og útvistunarfyrirtæk á sviði upplýsingatækni, þar á meðal nokkur af stærstu fyrirtækjum heims, eins og Microsoft, Intel, Oracle, IBM, NTT data, Fujitsu, Pactera, ChinaSoft International og Unissoft.

Á Jiangyin hátæknisvæðinu sem stofnað var árið 1992, eru leiðandi atvinnugreinar á borð við framleiðslu nýrra málmefniþa, háþróaðs samskiptabúnaðar, og líftæknilyfja.

Önnur dæmi um iðngarða eða sérstök atvinnuvaxtarsvæði eru: Xishan efnahags- og tækniþróunarsvæðið; Wuxi Liyuan efnahagsþróunarsvæðið; „Wuxi landslagsborgin“ (þar sem eru meðal annars: „Stafrænir iðnaðargarðar Wuxi“ og „Ferðaþjónustugarður Wuxi við Tai vatn“); og „Jiangsu Jiangyin Lingang efnahagsþróunarsvæðið“.

Samgöngur

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Jiangyin Jangtse hengibrúin er 1.385 metra löng yfir Jangtse fljót í Wuxi borg. Um brúna liggur G2 Peking-Sjanghæ hraðbrautin.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Aðallestarstöð Wuxi er umfangsmikil flutningamiðstöð sem samþættir háhraðalestir, neðanjarðarlestir og strætisvagna.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Sjanghæ-Nanjing háhraðalestin fer á 300 km/klst. milli borganna með viðkomu í Wuxi.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
„Lestarlína eitt“ í nýlegu borgarlestarkerfi Wuxi. Til viðbótar við núverandi fjórar lestarlínur eru áform um mun fleiri.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Leiðarkerfi borgarlesta Wuxi.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Sunan Shuofang alþjóðaflugvöllur í Xinwu hverfi Wuxi. Um hann fóru 8 milljónir farþega 2019.
Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Jangtse-fljót er mikilvæg samgönguæð skipa og báta í Wuxi.

Sem samgöngumiðstöð er Wuxi vel staðsett. Frá fornu hefur þjóðbraut milli Sjanghæ -Nanjing legið um borgina. Í aldir hafa farþegar og vörur farið um vatnaleiðir Peking-Hangzhou hluta Miklaskurðar í borgarlandinu. Síðar voru ýmsir þjóðvegir byggðir, sem stuðluðu enn frekar að flutningum. Í þéttbýli gömlu vatnaborgarinnar var fyllt upp í skurði og árfarvegi til vegagerðar, sem útskýrir ýmsa krókótta vegi nútímans.

Í dag liggja margar hraðbrautir, þjóðvegir og háhraðalestir um Wuxi. Samgöngukerfið byggir á aðgengi að alþjóðaflugvöllum, höfnum og neðanjarðarlestum. Sú undirstaða gerir Wuxi að velmegandi svæðisbundinni borg.

Vegakerfið

Alls liggja 9 þjóðar- og héraðshraðbrautir í gegnum Wuxi. Meðal þeirra eru: # G2 Peking-Sjanghæ þjóðarhraðbrautin; #G42 Sjanghæ-Nanjing þjóðarhraðbrautin; sem opnaði árið 1996 og tengir Wuxi við borgirnar Sjanghæ, Suzhou, Changzhou, Zhenjiang og aðrar borgir Jiangsu héraðs; og #G42 Changshu-Hefei þjóðarhraðbrautin;

Meðal þjóðvega er #312 þjóðbrautin sem tengir Sjanghæ við mið- og norðvestur Kína; og #104 þjóðbrautin sem liggur alla leið frá Peking suður til Fuzhou.

Nýjasta risaframkvæmdin á sviði vegasamgangna er gerð lengstu neðansjávarganga Kína (10,79 kílómetrar) undir Tai-vatn sem hluti af Suzhou-Wuxi-Changzhou suðurhraðbrautinni. Göngin opnuðu í árslok 2021.

Að auki eru ýmsar aðrar þjóðarhraðbrautir, þjóðbrautir, héraðshraðbrautir og vegir.

Járnbrautir

Wuxi-svæðið er vel tengt með járnbrautum. Meðal þeirra eru: Sjanghæ–Nanjing háhraðalestin tengir Wuxi við Nanjing, Sjanghæ og Suzhou; Peking–Sjanghæ háhraðalestin stoppar einnig í borginni; Nanjing-Hangzhou háhraðalestin fyrir farþega; og Xinyi–Changxing-lestin um borgina.

Borgarlestir

Wuxi Metro er borgarlestakerfi sem þjónar Wuxi City, Jiangsu héraði, Kína. Fyrsta lína hennar, Wuxi Metro Line 1, var formlega opnuð til notkunar 1. júlí 2014, sem gerir Wuxi að 22. höfuðborgarsvæðinu á meginlandi Kína. Það er þriðja borgin í Jiangsu héraði sem opnar járnbrautarflutninga. Frá og með janúar 2024 eru 5 rekstrarlínur í Wuxi Metro, nefnilega Wuxi Metro Line 1, Wuxi Metro Line 2, Wuxi Metro Line 3 Phase I, Wuxi Metro Line 4 Phase I, Wuxi Metro Line S1, Þetta eru allar neðanjarðarlestarlínur með akstursakstur 145 kílómetrar og alls 97 stöðvar. Frá og með janúar 2024 eru 4 línur í byggingu í Wuxi Metro, nefnilega Wuxi Metro Line 4 Phase II, Wuxi Metro Line 5 Phase I, Wuxi Metro Line 6 Phase I, og Wuxi Metro Line S2, með heildarlengd um það bil 120 kílómetra. Þann 21. janúar 2024 náði daglegt farþegaflæði Wuxi neðanjarðarlestarkerfisins methámarki og náði 1,3 milljónum farþega.

Strætisvagnar

Innan Wuxi byggja almenningssamgöngur á strætisvögnum, neðanjarðarlestum, leigubílum og almenningshjólum. Meginstrætisvagnastöð borgarinnar er við aðallestarstöð Wuxi. Þar tengjast strætisvagnar, neðanjarðarlestir og háhraðalestir á einum stað.

Í borginni þjóna meira en 3.000 rútur yfir 200 strætisvagnalínum. Fargjaldið er tveir júan fyrir ferð með loftkælingu og einn júan fyrir sæti án loftkælingar.

Vatnaflutningar

Vöru- og fólksflutningar á skipgengum vatnaleiðum í Wuxi hafa staðið í aldir á Peking-Hangzhou hluta Miklaskurðar, um Wushen skurðinn og á Tai vatni. Árið 2013 var áætlað að vatnaleiðir borgarinnar séu alls 1.578 kílómetrar. Siglt er allar árstíðir.

Wuxi höfnin er hafnarsamlag tveggja hafna fyrir vöruflutninga og farþegaferjur: Jiangyin-höfn, sem er fjórða stærsta á Jangtse-fjóti, um 38 kílómetra frá miðborginni; og Innri höfn Wuxi sem nær til Huishan og Xishan hafnarsvæðanna.

Alþjóðaflugvöllur

Aðalflughöfn Wuxi er Sunan Shuofang alþjóðaflugvöllurinn, sem opnaði sem innanlandsflugvöllur árið 2004 og sem alþjóðaflugvöllur árið 2009. Hann er sameiginlegur flugvöllur nágrannaborganna Wuxi og Suzhou. Flugvöllurinn er staðsettur í Xinwu hverfi Wuxi, um 14 kílómetra frá miðborginni og um 20 kílómetra frá miðborg Suzhou.

Í tveimur farþegamiðstöðvum er boðið upp á beint flug til Peking, Guangzhou, Shenzhen, Chengdu, Chongqing, Kunming, Lijiang, Hong Kong, Makaó, Taípei, Bangkok, Osaka, Tókýó og Singapúr, svo nokkuð sé nefnt.

Árið 2019 fóru 8 milljónir farþega um völlinn og farm- og póstflutningar voru um 145 þúsund tonn.

Auk Sunan Shuofang vallarins er Wuxi borg vel tengd öðrum flughöfnum. Risavaxnir flugvellir nágrannaborga bjóða upp á millilandaflug um víða veröld. Wuxi er þannig í 120 kílómetra fjarlægð frá Sjanghæ Hongqiao alþjóðaflugvellinum, 180 kílómetra frá Sjanghæ Pudong alþjóðaflugvellinum og 180 kílómetra frá Nanjing Lukou alþjóðaflugvellinum, sem allir eru tengdir með hraðbrautum og háhraðalestum.

Tengt efni

Wuxi: Saga, Landafræði, Veðurfar 
Wuxi-óperan, aldargamalt óperuform Xiju, er enn vinsæl. Þar leika karlar bæði kyn í dreifbýlissögum siðferðisátaka og gráðugra húsráðenda.

Heimildir

  • Fyrirmynd greinarinnar var „Wuxi“ á ensku útgáfu Wiki. Sótt 20. ágúst 2022.
  • „Britannica: Wuxi“. The Editors of Encyclopaedia. 10. apríl 2013. Sótt 20. ágúst 2022.

Tilvísanir

Tags:

Wuxi SagaWuxi LandafræðiWuxi VeðurfarWuxi LýðfræðiWuxi StjórnsýslaWuxi Efnahagur og atvinnulífWuxi SamgöngurWuxi Tengt efniWuxi HeimildirWuxi TilvísanirWuxiJiangsuKínaKínverskaPinyin

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Árni Múli JónassonVerg landsframleiðslaHelförinÞýskaÖrlagasteinninnSveinn H. GuðmarssonNúmeraplataListi yfir íslenskar hljómsveitirUllVolodymyr Zelenskyj25. aprílSameinuðu þjóðirnarBlóðbaðið í MünchenIlmur KristjánsdóttirQFlosi ÓlafssonSkjaldarmerki ÍslandsHáskóli ÍslandsAnna Vigfúsdóttir á Stóru-BorgSúdanIngvar Eggert SigurðssonMaðurHvannadalshnjúkurBubbi MorthensKanaríeyjarÞingvallavatnLeikurVestmannaeyjarArentHæstiréttur ÍslandsSovétríkinÞorvaldur Lúðvík SigurjónssonFlateyriJarðvegurPíkaSifJón Múli ÁrnasonSmárakirkja29. aprílBerlínFrosinnFeneyjatvíæringurinn202321. septemberGrísk goðafræðiKúluskíturHús verslunarinnarMenntaskólinn í ReykjavíkMKristján 10.Sverrir StormskerEndurreisninListasafn Einars Jónssonar8Franska byltinginSesínDenverEnskaAukasólGrænlandHaraldur ÞorleifssonVera MúkhínaGóði hirðirinnDóri DNAÍslendingasögurBjörn Sv. BjörnssonÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaSvampur SveinssonSíli69 (kynlífsstelling)Þorleifur GunnlaugssonVatíkaniðRúnar Freyr GíslasonÍtalíaSeltjarnarnesStefán Hörður Grímsson🡆 More