Haraldur Þorleifsson: Íslenskur athafnamaður

Haraldur Ingi Þorleifsson (f.

2. ágúst 1977) er íslenskur athafnamaður og stofnandi stafræna hönnunarfyrirtækisins Ueno.

Haraldur Ingi Þorleifsson
Fæddur2. ágúst 1977 (1977-08-02) (46 ára)
Reykjavík, Ísland
Önnur nöfnÖnnu Jónu Son
Störf
  • Frumkvöðull
  • athafnamaður
  • mannvinur
  • tónlistarmaður
Þekktur fyrirUeno
ForeldrarÞorleifur Gunnlaugsson (faðir)
Vefsíðaharaldurthorleifsson.com

Fjölskylda

Haraldur er fæddur í Reykjavík og foreldrar hans eru Anna Jóna Jónsdóttir (f. 2. júlí 1956, d. 11. júní 1988) klæðskerameistari og búningahönnuður og Þorleifur Gunnlaugsson (f. 1955) dúklagningameistari og fyrrverandi borgarfulltrúi.

Haraldur er í hjónabandi með Margréti Rut Eddudóttur myndlistarkonu og eiga þau tvö börn.

Menntun og störf

Hann gekk í Melaskóla og Hagaskóla, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, er með BA gráðu í heimspeki, BS gráðu í viðskiptafræði og stundaði meistaranám í hagfræði. Hann er sjálfmenntaður í grafískri hönnun sem hefur verið hans helsti starfsvettvangur.

Að námi loknu starfaði Haraldur sjálfstætt að ýmsum hönnunarverkefnum. Hann fluttist til New York árið 2006 og starfaði þar hjá litlu vefhönnunarfyrirtæki. Árið 2008 snéri hann aftur til Íslands og starfaði m.a. fyrir Íslenska erfðagreiningu og CCP. Eftir bankahrunið 2008 hóf hann aftur að starfa sjálfstætt og starfaði m.a. að hönnunarverkefnum fyrir Google og fleiri erlend stórfyrirtæki.

Ueno

Árið 2014 stofnaði Haraldur stafræna hönnunarfyrirtækið Ueno. Vöxtur fyrirtækisins varð mikill á skömmum tíma og meðal viðskiptavina þess voru stórfyrirtæki á borð við Google, Samsung, Microsoft, Economist, YouTube, Airbnb, Apple, Facebook og Uber.

Árið 2021 seldi Haraldur Ueno til Twitter og við söluna varð hann starfsmaður Twitter. Kaupverðið hefur ekki fengist uppgefið en talið er að það hafi hlaupið á milljörðum króna. Við söluna samdi Haraldur við Twitter um að stærstur hluti kaupverðsins yrði greiddur með launagreiðslum svo Haraldur gæti greitt skatta af sölunni á Íslandi. Hann sagðist með því vilja leggja sitt af mörkum til að greiða í sameiginlega sjóði og styðja þannig við íslenskt heilbrigðis,- mennta- og velferðarkerfi sem hafði gert honum kleift að dafna og njóta heilbrigðisþjónustu og menntunar.

Í febrúar 2023 virtist Haraldur ekki lengur vera starfsmaður Twitter og lokað var fyrir aðgang hans þó hann hafði ekki fengið staðfestingu á því. Í mars sendi hann Elon Musk spurningu á Twitter um uppsögn sína og fékk síðar staðfestingu á því frá mannauðsstjórn fyrirtækisins. Musk var á því að Haraldur þjónaði ekki nokkrum mikilvægum störfum á Twitter sem kallað gæti og væri að bera fyrir sig fötlun. Musk baðst síðar afsökunar og sagðist hafa fengið rangar upplýsingar og bauð honum að halda áfram hjá fyrirtækinu. Haraldur starfar ekki lengur fyrir Twitter.

Samfélagsleg verkefni

Haraldur hefur stutt við bakið á ýmsum samfélagslegum verkefnum. Hann var helsti styrktaraðili og hvatamaður að verkefninu Römpum upp Reykjavík árið 2021. Verkefnið fólst í því að setja upp 100 rampa við fyrirtæki og verslanir í Reykjavík til að auðvelda aðgengi fyrir hjólastóla en Haraldur hefur notað hjólastól frá því hann var 25 ára gamall vegna meðfædds vöðvarýrnunarsjúkdóms. Árið 2022 kynnti Haraldur verkefnið Römpum upp Ísland sem felst í því að koma upp 1000 römpum víðsvegar um landið fyrir árið 2026. Í nóvember 2022, þegar 300. rampurinn var vígður við hátíðlega athöfn tilkynnti hann ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, að ramparnir yrðu 1500 talsins. Í júní 2023 tilkynnti Haraldur áform um að byggja rampa í Evrópu og þau muni byrja í París.

Hann hefur einnig vakið athygli fyrir að bjóðast til að styðja efnalitlar barnafjölskyldur í aðdraganda jóla og einnig fyrir að bjóðast til að greiða lögfræðikostnað í meiðyrðamálum sem Ingólfur Þórarinsson tónlistamaður höfðaði.

Árið 2022 stóð hann að stofnun Hafnarhaus, aðstöðu fyrir listafólk í Hafnarhúsinu í Reykjavík.

Fyrirtæki

Í apríl 2023 opnaði Haraldur veitingastaðinn Anna Jóna, sem er staðsettur á Tryggvagötu, og er nefndur í höfuðið á móður sinni sem lést þegar hann var 11 ára gamall.

Tónlistarferill

Haraldur semur tónlist undir nafninu Önnu Jónu Son. Plata er væntanleg árið 2023. Áður hafði hann leikið á bassa í pönkhljómsveitinni Tony Blair.

Viðurkenningar

Árið 2021 hlaut Haraldur hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands fyrir verkefnið Römpum upp Reykjavík og árið 2022 var hann sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf að nýsköpun og samfélagsmálum.

Haraldur var valinn maður ársins á Rás 2 árið 2022.

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Haraldur Þorleifsson FjölskyldaHaraldur Þorleifsson Menntun og störfHaraldur Þorleifsson UenoHaraldur Þorleifsson Samfélagsleg verkefniHaraldur Þorleifsson FyrirtækiHaraldur Þorleifsson TónlistarferillHaraldur Þorleifsson ViðurkenningarHaraldur Þorleifsson TilvísanirHaraldur Þorleifsson TenglarHaraldur Þorleifsson

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Listi yfir fylki og yfirráðasvæði Bandaríkjanna eftir stærðJón Baldvin HannibalssonListi yfir páfaEfnaformúlaGeysirGjaldmiðillGylfi Þór SigurðssonHalldór LaxnessBerlínFuglafjörðurSeglskútaLungnabólgaOkGunnar HelgasonSandra BullockÞorriBenedikt Kristján MewesSumardagurinn fyrstiKörfuknattleikurRagnar loðbrókSigríður Hrund PétursdóttirSauðféMerki ReykjavíkurborgarMaríuerlaViðtengingarhátturDóri DNAFlóJón Jónsson (tónlistarmaður)Ísland Got TalentPatricia HearstListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaKóngsbænadagurArnar Þór JónssonFyrsti maíKnattspyrnufélagið VíkingurGrikklandHæstiréttur BandaríkjannaKalda stríðiðListi yfir morð á Íslandi frá 2000Stefán MániTékklandLokiTyrkjarániðKrákaVikivakiKarlakórinn HeklaGrindavíkÁstþór MagnússonEiríkur Ingi JóhannssonÞrymskviðaHjaltlandseyjarKrónan (verslun)SpóiHryggsúlaListi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærðDýrin í HálsaskógiJóhannes Haukur JóhannessonFriðrik DórLitla hryllingsbúðin (söngleikur)HryggdýrSkjaldarmerki ÍslandsKötturHákarlSöngkeppni framhaldsskólannaUppstigningardagurB-vítamínEldurGeorges PompidouReykjanesbærGarðabærListi yfir íslensk póstnúmerPortúgalTilgátaAladdín (kvikmynd frá 1992)GæsalappirMargrét Vala Marteinsdóttir🡆 More