Elon Reeve Musk fæddist 28.
júní">28. júní 1971 í Suður-Afríku, er suður-afrískur og bandarískur eðlisfræðingur, athafnamaður og fjárfestir. Hann er stofnandi, forstjóri og yfirverkfræðingur flug- og geimferðafyrirtækisins SpaceX; , forstjóri rafbílafyrirtækisins Tesla, Inc.; eigandi og forstjóri Twitter, Inc.; stofnandi The Boring Company; með-stofnandi Neuralink og OpenAI.
Elon Musk | |
---|---|
Fæddur | 28. júní 1971 Pretoríu, Transvaal, Suður-Afríku |
Þjóðerni | Suður-afrískur, kanadískur og bandarískur |
Menntun | Pennsylvaníuháskóli (BA, BS) |
Störf | Athafnamaður |
Maki | Justine Wilson (g. 2000; sk. 2008) Talulah Riley (g. 2010; sk. 2012; g. 2013; sk. 2016) Grimes (í sambúð 2018–2021) |
Börn | 10 |
Undirskrift | |
Musk var talinn 21. af áhrifamesta fólki heims á lista Forbes frá 2016. Hann var 23. ríkasta manneskja heims árið 2020. Í janúar árið 2021 var hann metinn ríkasti maður í heimi en hann féll niður um sæti næsta mánuð eftir lækkun á hlutabréfaverði Tesla. Hann var aftur metinn ríkasti maður heims undir lok ársins.
Tímaritið Time valdi Musk sem mann ársins árið 2021. Árið 2022 keypti Musk samfélagsmiðilinn Twitter fyrir 44 milljarða Bandaríkjadala eða tæplega 5.700 milljarða íslenskra króna.
Árið 2022 sló Musk það heimsmet að tapa meiri fjármunum á einu ári en nokkur annar. Hann tapaði 165 milljörðum bandaríkjadala frá nóvember 2021 til desember 2022 vegna hruns í andvirði Teslu.
Athygli vakti árið 2023 þegar Haraldur Þorleifsson, athafnamaður, sendi Musk skilaboð um stöðu sína hjá fyrirtækinu en hann virtist ekki lengur vera starfsmaður Twitter og lokað var fyrir aðgang hans. Í mars sendi hann Musk spurningu á Twitter um uppsögn sína og fékk síðar staðfestingu á því frá mannauðsstjórn fyrirtækisins. Musk var á því að Haraldur þjónaði ekki nokkrum mikilvægum störfum á Twitter sem kallað gæti og væri að bera fyrir sig fötlun. Musk baðst síðar afsökunar og sagðist hafa fengið rangar upplýsingar og bauð honum að halda áfram hjá fyrirtækinu.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Elon Musk, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.