Volodymyr Zelenskyj: 6. og núverandi forseti Úkraínu

Volodymyr Oleksandrovytsj Zelenskyj (úkraínska: Володимир Олександрович Зеленський; rússneska: Владимир Александрович Зеленский, umritað Vladímír Aleksandrovítsj Zelenskíj; f.

25. janúar 1978) er úkraínskur stjórnmálamaður og gamanleikari sem er núverandi forseti Úkraínu. Hann var kjörinn forseti þann 21. apríl árið 2019 og tók við embættinu þann 20. maí sama ár.

Volodymyr Zelenskyj
Володимир Зеленський
Volodymyr Zelenskyj: Æviágrip, Einkahagir, Tilvísanir
Zelenskyj árið 2022.
Forseti Úkraínu
Núverandi
Tók við embætti
20. maí 2019
ForsætisráðherraVolodymyr Grojsman
Oleksíj Hontsjarúk
Denys Sjmyhal
ForveriPetro Porosjenko
Persónulegar upplýsingar
Fæddur25. janúar 1978 (1978-01-25) (46 ára)
Kryvyj Ríh, úkraínska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum
ÞjóðerniÚkraínskur
StjórnmálaflokkurÞjónn fólksins
MakiOlena Kíjasjko (g. 2003)
Börn2
StarfLeikari, stjórnmálamaður
VerðlaunKarlsverðlaunin (2022)
UndirskriftVolodymyr Zelenskyj: Æviágrip, Einkahagir, Tilvísanir

Æviágrip

Volodymyr Zelenskyj er fæddur 25. janúar 1978 í borginni Kryvyj Ríh í miðhluta Úkraínu, sem þá var hluti af Sovétríkjunum. Foreldrar hans voru menntafólk af Gyðingaættum. Afi hans barðist með sovéska hernum í seinni heimsstyrjöldinni og nokkrir ættingjar hans voru drepnir af nasistum í Helförinni. Zelenskyj nam lögfræði en skipti síðan um starfsvettvang og gerðist leikari og grínisti.

Zelenskyj varð þjóðþekktur gamanleikari í Úkraínu fyrir að leika aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Þjónn fólksins (úkraínska: Слуга народу) frá árinu 2015 til 2019. Í þáttunum lék Zelenskyj Vasyl Holoborodko, menntaskólakennara sem er óvænt kjörinn forseti Úkraínu eftir að myndband af honum að hallmæla kerfislægri spillingu í landinu fer á flug um netheima. Í þáttunum var gert grín að gerspilltri stjórnmálastétt Úkraínu með því að stilla henni upp við hlið hins heiðarlega en hrekklausa Holoborodko.

Framleiðendur sjónvarpsþáttanna stofnuðu stjórnmálaflokk undir nafninu Þjónn fólksins árið 2018. Zelenskyj staðfesti á gamlárskvöld árið 2018 að hann hygðist gefa kost á sér í forsetakosningum Úkraínu árið 2019. Hann hafði þá þegar hlotið mikinn meðbyr í embættið, sérstaklega meðal aðdáenda þáttanna sem töldu að Zelenskyj myndi líkt og persónan sem hann lék verða tilbreyting frá kerfislægri spillingu í stjórnkerfi landsins.

Zelenskyj mældist snemma með mikið forskot í skoðanakönnunum. Auk þess að njóta góðs af því að vera talinn utangarðsmaður í úkraínskum stjórnmálum var Zelenskyj einn fárra frambjóðenda sem gat sótt fylgi um allt landið. Fylgi annarra frambjóðenda var gjarnan mjög bundið ýmist við hinn úkraínskumælandi vesturhluta eða hinn rússneskumælandi suðurhluta. Zelenskyj talar sjálfur rússnesku að móðurmáli en talar úkraínsku þó einnig reiprennandi.

Í fyrri umferð forsetakosninganna hlaut Zelenskyj um 30 prósent atkvæða, nærri því tvöfalt meira en sitjandi forseti landsins, Petro Porosjenko. Í seinni umferðinni þann 21. apríl vann Zelenskyj svo stórsigur á móti Porosjenko með um 73 prósentum atkvæða.

Eftir að Zelenskyj tók við embætti kallaði hann til snemmbúinna þingkosninga til þess að styrkja stöðu sína. Í kosningunum, sem haldnar voru þann 21. júlí, vann Þjónn fólksins um 44% atkvæða og næg þingsæti til að mynda meirihluta með hjálp eins flokks í viðbót.

Zelenskyj vakti fyrst athygli á alþjóðasenunni vegna símtals milli hans og Donalds Trump Bandaríkjaforseta árið 2019. Fyrir símtalið hafði Trump látið stöðva hernaðarstyrk til Úkraínu og í samtali sínu við Zelenskyj þrýsti hann á Zelenskyj að hefja rannsókn á meintu fjármálamisferli Hunters Biden, sonar Joe Biden, í Úkraínu. Joe Biden var þá álitinn líklegt forsetaefni Demókrataflokksins í forsetakosningum Bandaríkjanna 2020 og því sökuðu andstæðingar Trumps hann um að hafa beitt ríkisfé til að fjárkúga erlendan þjóðarleiðtoga í nafni eigin pólitísku hagsmuna. Atvikið leiddi til þess að Trump var kærður til embættismissis af Bandaríkjaþingi en síðar sýknaður. Zelenskyj neitaði að gagnrýna framkomu Trumps og sagðist ekki vilja blanda sér í stjórnmál annars ríkis.

Í kosningabaráttunni 2019 hafði Zelenskyj boðað sættir við Rússa í yfirstandandi hernaðardeilum þeirra við Úkraínu. Eftir að hann tók við embætti tókst honum hins vegar ekki að bæta samskiptin við Rússland, meðal annars þar sem hann vildi ekki fara að kröfum Vladímírs Pútín Rússlandsforseta um að Úkraína hætti að halla sér að Vesturveldunum í stjórnmálum.

Innrás Rússa 2022

Volodymyr Zelenskyj: Æviágrip, Einkahagir, Tilvísanir 
Zelenskyj (til hægri) með úkraínskum hermönnum í Kænugarði í apríl 2022 eftir að rússneska innrásarliðið var rekið þaðan.

Í febrúar 2022 gerðu Rússar innrás í Úkraínu til að „afvopna og af-nasistavæða“ landið eftir hernaðaruppbyggingu á landamærunum sem hafði staðið yfir í nokkrar vikur. Í sjónvörpuðu ávarpi kvöldið fyrir innrásina biðlaði Zelenskyj til rússnesku þjóðarinnar að stilla til friðar. Zelenskyj fékk úkraínska þingið til að lýsa yfir þrjátíu daga neyðarástandi vegna innrásarinnar.

Zelenskyj hélt sig í höfuðborginni Kænugarði á upphafsdögum innrásarinnar og neitaði að flýja þrátt fyrir að hún hafi verið umsetin rússneskum hermönnum. Snemma í innrásinni er talið að málaliðum Wagner-hópsins hafi verið falið að myrða Zelenskyj. Á meðan Rússar sátu um Kænugarð við upphaf innrásarinnar er talið að um 400 málaliðar hafi verið staðsettir í borginni til að reyna að ráða Zelenskyj af dögum.

Zelenskyj ávarpaði Alþingi Íslands í gegnum myndvarpsútsendingu þann 6. maí 2022 til að þakka stuðning Íslendinga í innrásinni. Hann er fyrsti erlendi þjóðarleiðtoginn sem hefur ávarpað þingsal Alþingis.

Einkahagir

Eiginkona Volodymyrs Zelenskyj er arkitektinn og handritshöfundurinn Olena Zelenska. Þau eiga saman tvö börn.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Petro Porosjenko
Forseti Úkraínu
(20. maí 2019 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Tags:

Volodymyr Zelenskyj ÆviágripVolodymyr Zelenskyj EinkahagirVolodymyr Zelenskyj TilvísanirVolodymyr ZelenskyjÚkraína

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Jóhann SvarfdælingurPíkaYrsa SigurðardóttirBjarni Benediktsson (f. 1970)SkandinavíuskagiFálkiMörgæsirBubbi MorthensSvala BjörgvinsdóttirSkátafélagið ÆgisbúarBesta deild kvennaAugaÍslenski fáninnMæðradagurinnHringur (rúmfræði)Pólland66°NorðurRafmagnSólmyrkvinn 12. ágúst 2026SíldSjónvarpiðLindýrÞorskastríðinAlþingiskosningar 2017RúmmálStuðmennIndóevrópsk tungumálÞjóðernishyggjaFuglFiskurMóðuharðindinBesta deild karlaAnnars stigs jafnaRíkisútvarpiðBaldur ÞórhallssonUmdæmi ÍsraelsÍslenskaFóturEnskaÁsgeir ÁsgeirssonFrumeindListi yfir íslenska tónlistarmennFermetriSundlaugar og laugar á ÍslandiEigið féGarður (bær)Knattspyrnufélagið ÞrótturFrímúrarareglanListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiÁratugurHTMLÞjóðaratkvæðagreiðslaKróatíaEiríkur Ingi JóhannssonForsetakosningar á ÍslandiRókokóBjörgvin HalldórssonDanmörkLönd eftir stjórnarfariViðskiptablaðiðMeðalhæð manna eftir löndumHvannadalshnjúkurHeyr, himna smiðurSkjaldarmerki ÍslandsSakharov-verðlauninKópaskerTaugakerfiðVefstóllKarl Ágúst ÚlfssonReykjavíkÁstþór MagnússonTölvusneiðmyndÍslensk sveitarfélög eftir sveitarfélagsnúmerumSpænska borgarastyrjöldinForseti ÍslandsVerg landsframleiðsla🡆 More