Volfram (stundum skrifað wolfram) eða þungsteinn er frumefni með efnatáknið W og sætistöluna 74 í lotukerfinu.
Volfram er mjög harður hliðarmálmur, stálgrár eða hvítur. Volfram er að finna í nokkrum steintegundum, þar á meðal volframíti og scheelíti, og er markvert vegna magnaðra efniseiginleika sinna. Í hreinu formi er það aðallega notað í raffræðilegum tilgangi, en mörg efnasambönd og málmblöndur þess eru víða notuð (einkum í glóðarþræði í ljósaperur og í framúrstefnulegar ofurmálmblöndur).
Mólýbden | |||||||||||||||||||||||||
Tantal | Volfram | Renín | |||||||||||||||||||||||
Seborgín | |||||||||||||||||||||||||
|
Litur hreins volframs er frá stálgráu yfir í tinhvítt og það er harður málmur. Hægt er að saga það í sundur með járnsög ef það er mjög hreint (í óhreinu formi er það stökkt og erfitt í vinnslu) en að öðru leyti er það unnið með því að móta, teygja eða pressa það. Þetta frumefni hefur hæsta bræðslumark (3422 °C), lægsta gufuþrýsting og hæsta togþol, við hitastig yfir 1650 °C, allra málma. Viðnám þess gegn tæringu er framúrskarandi, eingöngu ólífrænar sýrur vinna á því, og þá aðeins lítillega. Volfram myndar verndandi oxíð við snertingu við loft. Þegar volframi er blandað í litlum mæli við stál, eykur það styrk stálsins verulega.
Volfram er málmur sem er víða notaður. Mest er hann notaður í volframkarbíð (W2C) í sindruðum harðmálmum. Sindraðir harðmálmar eru slitþolin efni sem notuð eru í málmiðnaði, námugreftri, olíu- og byggingariðnaði. Volfram er einnig mikið notað í glóðarþræði í ljósaperur og útvarpslampa, og sömuleiðis rafskaut, vegna þess að hægt er að draga það í fíngerðan vír með hátt bræðslumark.
Önnur not:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Volfram, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.