Múhameð Morsi: 5. forseti Egyptalands (1951-2019)

Múhameð Morsi (8.

ágúst 1951 – 17. júní 2019) var egypskur stjórnmálamaður sem var fimmti forseti Egyptalands, frá 30. júní 2012 til 3. júlí 2013. Þann dag framdi hershöfðinginn Abdel Fattah el-Sisi valdarán og settist á valdastól í stað Morsi eftir fjöldamótmæli gegn forsetanum. Morsi var íslamisti og meðlimur í hinu egypska Bræðralagi múslima.

Múhameð Morsi
محمد مرسي العياط
Múhameð Morsi: 5. forseti Egyptalands (1951-2019)
Forseti Egyptalands
Í embætti
30. júní 2012 – 3. júlí 2013
ForsætisráðherraKamal Ganzouri
Hesham Qandil
VaraforsetiMahmúd Mekki
ForveriMúhameð Hussein Tantawi
(starfandi)
EftirmaðurAdlí Mansúr
(starfandi)
Persónulegar upplýsingar
Fæddur8. ágúst 1951
El Adwah, Sharqia, Egyptalandi
Látinn17. júní 2019 (67 ára) Kaíró, Egyptalandi
StjórnmálaflokkurFrelsis- og réttlætisflokkurinn
MakiNaglaa Mahmoud (g. 1979)
Börn5
StarfLögfræðingur, stjórnmálamaður
UndirskriftMúhameð Morsi: 5. forseti Egyptalands (1951-2019)

Morsi var kjörinn forseti Egyptalands árið 2012 í kjölfar byltingarinnar árið áður gegn Hosni Mubarak forseta. Sem forseti setti Morsi tímabundnar stjórnartilskipanir sem gáfu honum óskoruð völd til að setja lög án aðhalds dómara og annarra lagastofnanna. Íslamistar á stjórnlagaþingi Egyptalands skrifuðu þá í flýti nýja stjórnarskrá og sendu hana forsetanum til staðfestingar og áætlaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu áður en hæstiréttur Egyptalands gat tekið ákvörðun um lögmæti stjórnlagaþingsins. Sjálfstæðir fjölmiðlar sem voru ekki á mála hjá stjórn Morsi lýstu þessum verknaði sem „valdaráni íslamista“. Þessi ágreiningsmál og kvartanir yfir ofsóknum gegn blaðamönnum og mótmælendum leiddu til nýrra fjöldamótmæla árið 2012. Til að miðla málum dró Morsi því til baka stjórnartilskipanirnar sem höfðu aukið völd hans. Þegar þjóðaratkvæðagreiðsla var haldin samþykktu u.þ.b. tveir þriðju kjósenda nýju stjórnarskrána.

Þann 30. júní 2013 brutust mótmæli út á ný um allt Egyptaland og andófsmenn kröfðust afsagnar forsetans. Egypski herinn gaf Morsi þá úrslitakosti að ef honum tækist ekki að leysa úr stjórnmálakreppunni og uppfylla kröfur þeirra innan 48 klukkustunda myndi herinn grípa inn í og „marka þeirra eigin stefnu“ fyrir landið. Morsi var síðan steypt af stóli þann 3. júlí að undirráði herráðs sem Abdel Fattah el-Sisi varnarmálaráðherra fór fyrir. Herinn nam úr gildi nýju stjórnarskrána og stofnaði nýja stjórn undir forystu Sisi hershöfðingja. Bræðralag múslima mótmælti valdaráninu en mótmæli stuðningsmanna Morsi voru kveðin niður í Rabaa-fjöldamorðunum í ágúst 2013 þar sem um 817 almennir borgarar voru drepnir.

Eftir að Morsi var steypt af stóli ákærðu ríkissaksóknarar hann fyrir ýmsa glæpi og sóttust eftir því að hann sætti dauðarefsingu. Hann var meðal annars sakaður um að leka ríkisleyndarmálum Egyptalands og Katar til Bræðralags múslima. Morsi var dæmdur til dauða en dómurinn var ógildur eftir áfrýjun og því stóð til að rétta yfir honum í annað sinn. Þegar önnur réttarhöld yfir Morsi fóru fram þann 17. júní árið 2019 hneig Morsi niður, var fluttur á sjúkrahús og úrskurðaður látinn.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Múhameð Hussein Tantawi
(starfandi)
Forseti Egyptalands
(20122013)
Eftirmaður:
Adlí Mansúr
(starfandi)


Tags:

Abdel Fattah el-SisiBræðralag múslimaEgyptalandÍslamismi

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Karlakórinn HeklaListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðGuðrún PétursdóttirKnattspyrnudeild ÞróttarÓnæmiskerfiJón EspólínFljótshlíðSvíþjóðIngvar E. SigurðssonTaílenskaLaxdæla sagaÞorriÞjórsáKalkofnsvegurÁgústa Eva ErlendsdóttirÍþróttafélag HafnarfjarðarDagur B. EggertssonSveitarfélagið ÁrborgSvartfjallalandÞóra ArnórsdóttirMarie AntoinetteSjávarföllListi yfir íslensk póstnúmerDiego MaradonaLitla hryllingsbúðin (söngleikur)NáttúruvalLandnámsöldMatthías JochumssonGarðar Thor CortesSíliGregoríska tímataliðAlmenna persónuverndarreglugerðinTaugakerfiðSkordýrSýndareinkanetSkaftáreldarEggert ÓlafssonÍslenskt mannanafnSigríður Hrund PétursdóttirÓslóHéðinn SteingrímssonLogi Eldon GeirssonBikarkeppni karla í knattspyrnuKirkjugoðaveldiEinar JónssonKaupmannahöfnHeklaKatrín JakobsdóttirBesta handrit á Kvikmyndahátíðinni í CannesFylki BandaríkjannaTjaldurHryggdýrÞXHTMLMassachusettsListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaEgill ÓlafssonElriÍslenska stafrófiðFramsöguhátturUngfrú ÍslandListi yfir lönd eftir mannfjöldaUnuhúsÓlafur Jóhann ÓlafssonÞingvellirNáttúrlegar tölurAlþingi25. aprílHarvey WeinsteinBretlandMiltaKóngsbænadagurKrákaLundiDraumur um NínuBloggÓlafur Egill Egilsson🡆 More