Abd Al-Fattah As-Sisi: 6. og núverandi forseti Egyptalands

Abdel Fattah Saeed Hussein Khalil el-Sisi (عبد الفتاح سعيد حسين خليل السيسي á arabísku) (f.

19. nóvember 1954) er sjötti og núverandi forseti Egyptalands, í embætti frá árinu 2014.

Abd al-Fattah as-Sisi
عبد الفتاح السيسى
Abd Al-Fattah As-Sisi: 6. og núverandi forseti Egyptalands
Sisi forseti árið 2017.
Forseti Egyptalands
Núverandi
Tók við embætti
8. janúar 2014
ForsætisráðherraIbrahim Mahlab
Sherif Ismail
Moustafa Madbouly
ForveriAdlí Mansúr (starfandi)
Persónulegar upplýsingar
Fæddur19. nóvember 1954 (1954-11-19) (69 ára)
Kaíró, Egyptalandi
StjórnmálaflokkurÓflokksbundinn
MakiEntissar Amer (g. 1977)
Börn4
StarfHerforingi, stjórnmálamaður
UndirskriftAbd Al-Fattah As-Sisi: 6. og núverandi forseti Egyptalands

Sisi fæddist í Kaíró og var staðsettur sem hermaður í Sádi Arabíu eftir að hafa gengið í herinn. Hann stundaði hernám í herstjórnarskóla Egyptalands og frá árinu 1992 í herstjórnarháskólanum í Watchfield, Oxfordshire í Bretlandi. Árið 2006 hlaut hann þjálfun í stríðsháskóla Bandaríkjanna í Carlisle, Pennsylvaníu. Eftir egypsku byltinguna árið 2011 og kjör Mohameds Morsi til forseta var Sisi útnefndur varnarmálaráðherra þann 12. ágúst 2012.

Sem varnarmálaráðherra og yfirforingi egypska hersins tók Sisi þátt í valdaráni gegn Morsi þann 3. júlí árið 2013 í kjölfar fjöldamótmæla gegn forsetanum. Hann leysti upp stjórnarskrá ársins 2012 og lagði fram tillögu ásamt höfuðpaurum stjórnarandstöðunnar og helstu trúarleiðtoga um að kosið yrði um nýja stjórnarskrá, nýtt þing og nýjan forseta. Morsi var leystur af hólmi af bráðabirgðastjórn sem hófst síðan handa við að uppræta Múslimabræðralagið sem Morsi tilheyrði og íslamista sem studdu það. Síðan sneri stjórnin sér að því að berja niður frjálslynda andstæðinga ríkisstjórnarinnar. Þann 13. ágúst 2013 drap egypska lögreglan hundruð almennra borgara og særði þúsundir í hinu svokallaða „Rabaa-blóðbaði“.

Þann 26. mars 2014 hætti Sisi hernaðarferli sínum og lýsti því yfir að hann myndi gefa kost á sér í egypsku forsetakosningunum sama ár. Kosningarnar fóru fram frá 26. til 28. maí á milli Sisi og eins mótframbjóðanda, Hamdeen Sabahi. Sisi hlaut afburðasigur með um 97% atkvæða og þátttöku um 47% kjósenda. Sisi tók við forsetaembætti þann 8. júní 2014. Ríkisstjórn Sisi hefur veitt egypska hernum ótakmörkuð völd og því líta margir á Sisi sem einræðisherra.

Sisi var endurkjörinn forseti í apríl árið 2018, aftur með 97% atkvæða. Eini mótframbjóðandi hans sem leyft var að gefa kost á sér var lítið þekktur stjórnmálamaður, Moussa Mostafa Moussa, sem studdi sjálfur endurkjör Sisi.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Adlí Mansúr
(starfandi)
Forseti Egyptalands
(8. janúar 2014 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Tags:

ArabískaEgyptaland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

FallbeygingFáskrúðsfjörðurSeglskútaUngfrú ÍslandFriðrik DórKnattspyrnufélag ReykjavíkurJohn F. KennedyPétur Einarsson (flugmálastjóri)EinmánuðurSam HarrisVallhumallNellikubyltinginSovétríkinKírúndíJohannes VermeerÞVestfirðirSeljalandsfossIkíngutSkákMagnús Kjartansson (tónlistarmaður)BrúðkaupsafmæliRagnar loðbrókEgill Skalla-GrímssonKleppsspítaliEvrópusambandiðAlþingiskosningar 2009Listi yfir markahæstu og leikjahæstu knattspyrnumennDimmuborgirÍslenskir stjórnmálaflokkarMáfarKaupmannahöfnKópavogurÞingvellirLundiDjákninn á MyrkáMagnús EiríkssonMadeiraeyjarEggert ÓlafssonTaugakerfiðÞóra FriðriksdóttirVorNafnhátturSoffía JakobsdóttirFlateyriKínaVerg landsframleiðslaMerki ReykjavíkurborgarSólstöðurÓlympíuleikarnirJakob Frímann MagnússonMiðjarðarhafiðJón Baldvin HannibalssonBenito MussoliniLögin úr söngleiknum Deleríum BúbónisKúbudeilanInnrás Rússa í Úkraínu 2022–c1358Jörundur hundadagakonungurSagnorð1918Einar BenediktssonUnuhúsVerðbréfLokiListi yfir íslenskar kvikmyndirStella í orlofiÍrlandGísli á UppsölumHjálparsögnSagan af DimmalimmListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslenski fáninnSauðárkrókurSilvía Nótt🡆 More