Kaba

21°25′21.08″N 39°49′34.25″A / 21.4225222°N 39.8261806°A / 21.4225222; 39.8261806

Kaba

Kaba (arabíska: الكعبة al-Ka‘abah eða الكعبة المشرًّفة al-Ka‘aba al-Musharrafah, einnig kölluð البيت العتيق al-Bait ul-‘Atīq eða البيت الحرام al-Bait ul-Ḥarām), er ferhyrnd bygging í miðju þeirrar mosku í Mekka sem nefnd er Masǧid al-Ḥarām, eða Stóra moskan. Moskan var byggð í kringum Kaba, og er Kaba álitin heilagasti staður í íslam.

Kaba er stór steinbygging, sem er nokkurn veginn í laginu eins og teningur, en nafnið kaba kemur úr arbabísku og þýðir kubbur. Byggingin er gerð úr graníti úr fjöllunum í umhverfi Mekka. Hún er um það bil 15 metra há, 10 metra breið og 12 metra löng. Byggingin er þakin svörtu silkiefni skreyttu með gullútsaumuðum áletrunum. Þetta klæði er kallað Kiswah og er endurnýjað árlega.

Einn af undirstöðusteinum Kaba er Ḥaǧar ul-Aswad (hinn „Heilagi svarti steinn“) sem múslimar álíta að hafi verið gjöf frá Guði til Adams eftir að hann kom til jarðar. Mikil helgi var á steininum þegar fyrir tíma Múhameðs.

Múslimum ber að snúa sér að Kaba þegar þeir biðjast fyrir.

Tags:

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

UnuhúsVestfirðirGuðrún AspelundKnattspyrnaC++1918ReykjanesbærMadeiraeyjarTenerífeVestmannaeyjarEfnaformúlaMargföldunDanmörkIkíngutSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024Santi CazorlaAladdín (kvikmynd frá 1992)Sameinuðu þjóðirnarTjaldurAriel HenryIngvar E. SigurðssonKnattspyrnufélagið VíkingurLaxdæla sagaMargit SandemoBjörgólfur Thor BjörgólfssonNáttúrlegar tölurSvissPersóna (málfræði)Lánasjóður íslenskra námsmannaBaldur ÞórhallssonLjóðstafirSeldalurWashington, D.C.VorJón Jónsson (tónlistarmaður)BreiðholtFjalla-EyvindurNáttúruvalValdimar2020MarokkóLaufey Lín JónsdóttirBotnssúlurLýsingarorðAndrés ÖndGeysirPálmi GunnarssonISO 8601Háskóli Íslands25. aprílFyrsti vetrardagurHólavallagarðurFuglJón Múli ÁrnasonKjartan Ólafsson (Laxdælu)Keflavík, íþrótta- og ungmennafélagKári SölmundarsonDavíð OddssonThe Moody Blues2024ISBNBergþór PálssonMorðin á SjöundáMánuðurÓfærufossSigurboginnTíðbeyging sagnaBjörk GuðmundsdóttirStari (fugl)Merik TadrosNorður-ÍrlandGunnar Smári EgilssonHljómar🡆 More