Björk Guðmundsdóttir: íslensk söngkona

Björk Guðmundsdóttir (f.

21. nóvember 1965 í Reykjavík), best þekkt sem Björk, er íslenskur tónlistarmaður sem hefur náð alþjóðlegri hylli. Hún hóf tónlistarferil sinn með píanónámi þegar hún var ellefu ára. Ári síðar, eða 1977, kom út platan Björk þar sem hún söng meðal annars þekkt íslensk barnalög. Stuttu síðar fór pönktónlist að hafa áhrif á hana en einnig djasstónlist.

Björk
Mynd af Björk
Björk árið 2022
Fædd
Björk Guðmundsdóttir

21. nóvember 1965 (1965-11-21) (58 ára)
Störf
  • Söngvari
  • lagahöfundur
  • tónskáld
  • upptökustjóri
  • leikari
Ár virk1975 – í dag
MakiÞór Eldon
(g. 1986; sk. 1987)
Matthew Barney
(2002–2013)
Börn2
ForeldrarGuðmundur Gunnarsson
Tónlistarferill
Stefnur
Hljóðfæri
  • Rödd
  • flauta
  • píanó
Útgefandi
Áður meðlimur í
Vefsíðabjork.com
Undirskrift
Björk Guðmundsdóttir: Plötur, Kvikmyndir, Tengt efni
Björk Guðmundsdóttir: Plötur, Kvikmyndir, Tengt efni
Björk (2001)

Snemma á ferli sínum var hún í nokkrum pönk- og djass-fusion hljómsveitum. Árið 1983 stofnaði hún ásamt fimm öðrum hljómsveitina KUKL, sem síðan þróaðist út í hljómsveitina Sykurmolarnir. Með þeirri hljómsveit hlaut Björk fyrst heimsfrægð. Þegar Sykurmolarnir hættu árið 1992 hóf hún sólóferil og hefur á honum gefið út 10 plötur, þar af 3 safndiska og einn með tónlistinni við kvikmynd Lars von Triers, Myrkradansarinn, en hún bæði lék aðalhlutverkið og samdi tónlistina við myndina. Björk var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir lagið „I've Seen It All“ úr Myrkradansaranum árið 2000.

Björk hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir tónlist sína, meðal annars Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 1997 og nokkrar tilnefningar til Grammy-verðlauna.

Björk lét húðflúra galdrastafinn Vegvísi á vinstri handlegg sinn.

Foreldrar Bjarkar eru Guðmundur Gunnarsson (f. 1945) fyrrverandi formaður RSÍ og Hildur Rúna Hauksdóttir (1946–2018) hómopati og náttúruverndarsinni.

Plötur

Tappi Tíkarrass

KUKL

  • Söngull (1983)
  • Satt 3 (1984)
  • The Eye (1984)
  • KUKL í Paris 18.9.84 (1984)
  • Holidays In Europe (The Naughty Nought) (1986)

Sykurmolarnir

  • Life's Too Good (1988)
  • Here Today, Tomorrow, Next Week! (1989)
  • Stick Around For Joy (1992)
  • It's-It (1992) (endurhljóðblandanir)

Annað með Sykurmolunum

  • Sugarcubes Interview Disc (1988)
  • The Great Crossover Potential (1998) (greatest hits)

Björk

  • Debut (1993)
  • Post (1995)
  • Homogenic (1997)
  • Vespertine (2001)
  • Medúlla (2004)
  • Volta (2007)
  • Biophilia (2011)
  • Vulnicura (2015)
  • Utopia (2017)
  • Fossora (2022)

Annað

  • Björk (1977)
  • Gling-Gló (1990)
  • Telegram (1997) (remixes)
  • Greatest Hits (2002)
  • Family Tree (2002)
  • Live Box (2003)
  • Voltaic (2008)
  • Bastards (2012)

Ásamt öðrum

  • „Ooops“ (með 808 State) (1988)
  • „Qmart“ (með 808 State) (1988)
  • „Play Dead“ (titillagið úr myndinni The Young Americans) (með David Arnold) (1993)
  • „My Spine“ (með Evelyn Glennie) (1996)
  • „Oxygen“ (með Evelyn Glennie) (1996)
  • „Lilith“ (með Plaid) (1997)
  • „I've Seen It All“ (með Thom Yorke) (2000)
  • „Submarine“ (með Robert Wyatt) (2004)

Kvikmyndir

Tengt efni

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Björk Guðmundsdóttir PlöturBjörk Guðmundsdóttir KvikmyndirBjörk Guðmundsdóttir Tengt efniBjörk Guðmundsdóttir TilvísanirBjörk Guðmundsdóttir TenglarBjörk GuðmundsdóttirDjassPíanóPönkReykjavíkÍsland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

PlayVertu til er vorið kallar á þigÁhrifavaldurAnders Behring BreivikPóllandA Clockwork Orange (bók)HeimskautarefurSendiráð ÍslandsSúrnun sjávarÍbúar á ÍslandiSeyðisfjörðurListi yfir íslensk íþróttaliðNapóleon BónaparteSterk beygingAtviksorðRósa GuðmundsdóttirSkreiðGuðmundar- og GeirfinnsmáliðBaltasar KormákurGrímseyAsíaVestfirðirFonografSuðumarkRómaveldiIfigeneia í ÁlisBjór á ÍslandiTékklandGuðbjörg MatthíasdóttirÞorgeir LjósvetningagoðiGreinarmerkiBoðorðin tíuAtlantshafsbandalagiðÚrvalsdeild karla í körfuknattleikLitáenTækniMeltingarkerfiðNafnháttarmerkiRúnirEmmsjé GautiISO 8601Forsetakosningar á Íslandi 1980Menntaskólinn í ReykjavíkSagnmyndirBankahrunið á ÍslandiListi yfir íslenskar kvikmyndirRúmmálHvannadalshnjúkurGeðröskunMadeiraeyjarListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiGálgahraunLjóstillífunSnorralaug í ReykholtiMúmínálfarnirKríaReykjanesbærLögbundnir frídagar á ÍslandiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaVallettaSjíaIllugi JökulssonFrakklandFríða ÍsbergÞjóðvegur 1Hvíta húsið (Akranes)StórsveppirEddukvæðiIcesaveÁbendingarfornafnHávamálNorðurland vestra🡆 More