Hormón (stundum kallað vaki eða kirtlavaki) eru öll þau boðefni sem fjölfruma lífvera framleiðir í kirtli og sendir með æðakerfinu til þess að hafa áhrif á líffæri og stýra starfsemi þeirra.
Helstu efnagerðir hormóna eru eikosanóíðar, sterar, og amínósýrur (amín, peptíð, og prótein).
Hormón geta haft áhrif á meltingu, efnaskipti, öndun, vefi, skynjun, svefn, útskilnað með þvagi og saur, mjólkurmyndun, streituviðbragð, frumuvöxt, æxlun, og skap. Þetta gera þau með því að bindast ákveðnum viðtökum í frumum, oft fer þá af stað kerfi sem eykur umritun ákveðinna próteina, þó að sum hormón hafi fljótari áhrif.
Dæmi um hormón sem flestir kannast við eru adrenalín, testósterón og estrógen.
Þessi greinarhluti þarfnast hreingerningar svo hann hæfi betur hér á Wiki Íslenska. Eftir að greinin hefur verið löguð má fjarlægja þessi skilaboð. |
Helstu hormón mannslíkamans eftir innkirtlum:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Hormón, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.