Grunnuppbygging stera eru 17 kolefnisfrumeindir sem mynda fjóra hringi. Með því að bæta mismunandi efnum á þessa hringi og með því að breyta oxunar ástandi fást fram mismunandi gerðir af sterum. Í dýrum eru allir sterar búnir til með því að umbreyta lanósteróli, í plöntum eru sterar búnir til með því að umbreyta hring-artenóli.
Sterar í mönnum
Helstu flokkar stera í mönnum eru:
Barksterar sem framleiddir eru í nýrnahettuberkinum.
Sykursterar draga úr bólgu, bæla ónæmiskerfið, draga úr frumuskiptingu, hafa áhrif á efnaskipti, og láta æðar dragast saman. Helstu sykursterarnir sem líkaminn framleiðir eru kortisól og kortisón. Kortisón er oft notað sem lyf til að draga úr bólgu.
Saltsterar stýra jafnvægi vatns, natríums og kalíums í líkamanum með því að hafa áhrif á útskilnað í nýrum. Þar með hafa þeir áhrif á magn blóðs í líkamanum og á blóðþrýsting. Helsti saltsterinn er aldósterón.
Prógesterón stýrir breytingum í legslímhúðinni á tíðahringnum og viðheldur þungun.
Estrógen stýra líka tíðahringnum og hvetja þroska kvenlegra einkenna eins og brjósta og fitusöfnunar á mjöðmum.
Karlhormón hvetja þroska karllegra einkenna, þau láta fóstur þróa með sér karlkynfæri og valda kynþroska hjá strákum. Karlhormón eru framleidd í eistunum í körlum, í eggjastokkunum í konum, og í nýrnahettunum. Konur hafa líka karlhormón, en mun minna er karlar. Karlhormón auka kynhvöt, láta axlir víkka, láta vöðva stækka, draga úr fitusöfnun, hvetja sæðismyndun, og valda árásargirni. Aðalkarlhormónið er testósterón. Til eru margar gerðir vefaukandi stera(anabólískra stera) sem framleiddir eru sem lyf og eru stundum misnotaðir af íþróttamönnum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Sterar, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses. ®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.