Frumbyggjar: Fyrstu íbúar á tilteknu svæði

Frumbyggjar eru þeir sem taldir eru fyrstu íbúar í tilteknu landi eða ríki.

Þegar talað er um frumbyggja er yfirleitt átt við samfélög sem hafa tiltekna menningu og eru yfirleitt valdalítill einangraður hópur sem misst hefur völd og áhrif í kjölfar landtöku eða nýlendustefnu.

Alþjóðastofnanir sem vinna að málefnum frumbyggja hafa ekki komið sér saman um eina ákveðna skilgreiningu á frumbyggjum, en engu að síður eru þrír meginþættir sem aðgreina frumbyggja.

  1. Frumbyggjar búa yfirleitt innan skilgreindra hefðbundinna landsvæða og telja sig hafa sterk tengsl við þessi landsvæði.
  2. Frumbyggjar viðhalda eigin menningu, atvinnuháttum og stjórnarháttum innan eigin landsvæða. Þá leggja flestir frumbyggjar áherslu á að samlagast ekki almennu þjóðfélagi meirihlutans.
  3. Grundvallarskilyrði fyrir því að hópar séu skilgreindir sem frumbyggjar er að þeir sjálfir skilgreini sig sem frumbyggja.

Sameinuðu þjóðirnar áætla að frumbyggjar í heiminum séu rúmlega 370 milljónir talsins og að þeir búi í rúmum 70 þjóðríkjum. Flestir frumbyggjar búa í Asíu og Suður-Ameríku. Í langflestum tilvikum eru frumbyggjar valdalitlir og einangraðir minnihlutahópar, sem búa við meiri fátækt, lakara heilsufar og verri aðgang að menntun en aðrir sambærilegir hópar. Þá eru fordómar gagnvart frumbyggjum afar algengir.

Frumbyggjar hafa á síðustu áratugum 20. aldarinnar og í upphafi 21. aldar stundað mikla réttindabaráttu á alþjóðavettvangi sem hefur borið umtalsverðan árangur. Helst ber að nefna stofnun Frumbyggjaráðs Sameinuðu þjóðanna og „Réttindayfirlýsingu frumbyggja“ sem Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna tók til umfjöllunar haustið 2006.

Tenglar

Frumbyggjar: Fyrstu íbúar á tilteknu svæði   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

LandMenningRíki

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Barnavinafélagið SumargjöfSýndareinkanetPálmi GunnarssonSeyðisfjörðurHugmyndEl NiñoÞóra HallgrímssonBárðarbungaBjarni Benediktsson (f. 1908)Gunnar Helgi KristinssonTinJakobsvegurinnJólasveinarnirKleópatra 7.FrumaÆvintýri TinnaEinar Þorsteinsson (f. 1978)Bubbi MorthensKrónan (verslun)Friðrik DórForsetakosningar á Íslandi 1980SkuldabréfÞunglyndislyfLeikurSporger ferillForsetakosningar á Íslandi 2024TáknGrettir ÁsmundarsonSaga ÍslandsJörundur hundadagakonungurSveindís Jane JónsdóttirHafnarfjörðurLundiListi yfir íslensk kvikmyndahúsForsetakosningar á Íslandi 2012Litla hryllingsbúðin (söngleikur)ÞýskalandKviðdómurHaffræðiKapítalismiBikarkeppni karla í knattspyrnuÍslandsbankiEinar Már GuðmundssonDiskurGarðabærBarónMeðalhæð manna eftir löndumÁlftJöklar á ÍslandiMaría meyHafskipsmáliðKnattspyrnufélag ReykjavíkurStuðmenn2020Ómar RagnarssonKennimyndUppstigningardagurLýðræðiKentuckySýslur ÍslandsKróatíaAndlagSigurjón KjartanssonBlaðamennskaGoogleRíkissjóður ÍslandsWayback MachineÍslensk sveitarfélög eftir sveitarfélagsnúmerumÞróunarkenning DarwinsKansasLaufey Lín JónsdóttirPáll ÓskarLöggjafarvaldListi yfir íslensk skáld og rithöfundaÞjóðhátíð í Vestmannaeyjum🡆 More