Frumbyggjar Kanada

Frumbyggjar Kanada eru þeir frumbyggjar Ameríku sem búa innan landamæra Kanada.

Þeir skiptast nánar í frumþjóðirnar, inúíta og Métisa. Áður var algengt að vísa til frumbyggja sem „indíána“ og „eskimóa“ en þessi hugtök eru minna notuð í Kanada nú til dags og þykja almennt niðrandi.

Frumbyggjar Kanada
Hlutfall frumbyggja af íbúafjölda ríkja og héraða í Kanada og Bandaríkjunum.

Almennt er talið að landnám manna í Ameríku hafi átt sér stað fyrir um 14.000 árum og að fyrstu mennirnir hafi komið þangað um landbrú yfir Beringssund frá Síberíu. Elstu minjar um fornindíána í Kanada hafa fundist í Old Crow Flats og Bluefish Caves. Samfélög frumbyggja einkenndust af föstum bústöðum, landbúnaði og víðtækum viðskiptatengslum. Sum menningarsamfélög frumbyggja voru horfin af sjónarsviðinu á 15. öld og hafa uppgötvast við fornleifarannsóknir.

Talið er að frumbyggjar Kanada hafi verið milli 200.000 og 2 milljónir þegar Evrópumenn komu þangað. Talan 500.000 er notuð af Konunglegri nefnd um málefni frumbyggja sem viðmið. Í kjölfar landnáms Evrópumanna fækkaði frumbyggjum um 40 til 80% og sumar frumþjóðir, eins og Beóþúkkar, hurfu alveg. Fækkunin stafaði bæði af sjúkdómum sem Evrópumenn fluttu með sér (eins og inflúensu, mislingum og bólusótt) og frumbyggja skorti ónæmi gegn, átökum við landnema og stjórnvöld þeirra, og landráni sem takmarkaði aðgang frumbyggja að náttúruauðlindum sem þeir höfðu áður nýtt sér til viðurværis.

Þrátt fyrir átök voru samskipti frumbyggja Kanada við evrópska Kanadabúa oftast friðsamleg. Frumþjóðirnar og Métisar (afkomendur frumbyggja og evrópskra Kanadabúa) léku lykilhlutverk í nýlendustofnun Evrópubúa í Kanada, sérstaklega með því að aðstoða skinnakaupmenn og landkönnuði í skinnaversluninni. Samskipti Bresku krúnunnar og frumþjóðanna hófust á nýlendutímanum en Inúítar höfðu minna af evrópskum landnemum að segja framan af. Frá lokum 18. aldar hófu evrópskir Kanadabúar að reyna að aðlaga menningu frumþjóðanna að þeirra eigin menningu. Þetta náði hápunkti á 19. og 20. öld þegar kerfi heimavistarskóla var komið upp af ríkisstjórn Kanada þar sem börn frumbyggja voru neydd til að dveljast fjarri fjölskyldum sínum og taka upp evrópska siði og venjur, um leið og þau máttu þola margvíslegt ofbeldi og misnotkun af hálfu starfsliðs skólanna. Sérstakri sáttanefnd var komið á fót af ríkisstjórninni 2008 til að ræða viðbrögð og mögulegar bætur handa þessum börnum. Þessi mál komust í hámæli aftur 2021 þegar stórar fjöldagrafir með líkum hundraða barna komu í ljós við marga af þessum heimavistarskólum.

Samkvæmt manntali frá 2016 voru frumbyggjar Kanada 1.673.785 talsins, eða 4,9% landsmanna, þar af töldust 977.230 til frumþjóða, 587.454 Métisar og 65.025 inúítar. 7,7% af íbúum Kanada undir 14 ára aldri eru frumbyggjar. Það eru yfir 600 aðgreindir hópar frumbyggja með eigin menningu, tungumál og listir sem njóta viðurkenningar kanadískra stjórnvalda. Með sérstökum þjóðhátíðardegi frumbyggja er framlagi frumbyggja til sögu og menningar Kanada fagnað sérstaklega.

Margt fólk af frumbyggjaættum hefur náð langt í kanadísku þjóðlífi og stuðlað að því að menning frumbyggja sé orðin ríkur þáttur í sjálfsmynd Kanadabúa. Árið 2021 varð Mary Simon varð fyrsti frumbygginn til þess að gegna embætti landstjóra Kanada.

Tilvísanir

Tags:

EskimóiFrumbyggjar AmeríkuInúítarKanada

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

g5c8yKleppsspítaliSvampur SveinssonVafrakakaGunnar HelgasonBreiðdalsvíkForsætisráðherra ÍslandsHerra HnetusmjörGeorges PompidouÖspAriel HenrySöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024Listi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSnæfellsjökullXHTMLLögin úr söngleiknum Deleríum BúbónisGísla saga SúrssonarHjaltlandseyjarAlþingiskosningar 2017ÍsafjörðurSnorra-EddaNáttúrlegar tölurFrosinnRíkisútvarpiðAgnes MagnúsdóttirKýpur1974Pétur EinarssonGarðabærThe Moody BluesGregoríska tímataliðWikipediaHarpa (mánuður)GamelanHvalirJürgen KloppSnæfellsnesFljótshlíðKartaflaSjávarföllListi yfir fylki og yfirráðasvæði Bandaríkjanna eftir stærðFuglForsetakosningar á Íslandi 1980Sædýrasafnið í HafnarfirðiKeflavík, íþrótta- og ungmennafélagValurRisaeðlurÓðinnGunnar Smári EgilssonRagnar JónassonHrafninn flýgurListi yfir forsætisráðherra ÍslandsVopnafjörðurListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999SamfylkinginSveitarstjórnarkosningar á Íslandi 2022Baldur Már ArngrímssonÓlafsfjörðurBergþór PálssonParísarháskóliBubbi MorthensForsíðaÍslenskir stjórnmálaflokkarIKEAHólavallagarðurIcesaveSveitarfélagið ÁrborgFallbeygingKríaDísella LárusdóttirSauðféSeldalurLögbundnir frídagar á Íslandi🡆 More