Alzheimer-Sjúkdómur

Alzheimer-sjúkdómur er þrálátur hrörnunarsjúkdómur sem lýsir sér meðal annars í minnisleysi, skapsveiflum, missi á orðaforða og ruglingi og hrjáir um 25 milljón manns í heiminum.

Meðallífslíkur fólks eftir greiningu eru þrjú til tíu ár Ekki er til nein lækning við Alzheimer og allar fáanlegar meðferðir, sem telja aðeins fjögur samþykkt lyf og óífarandi meðferðir sem og líkamlegar æfingar, minnisæfingar, draga aðeins tímabundið úr einkennum Alzheimer og geta jafnframt skapað óæskilegar aukaverkanir.

Alzheimer-Sjúkdómur
Samanburður á heilum aldraðra einstaklinga án (til vinstri) og með Alzheimer-sjúkdóm (til hægri).

Einkenni

Stig Alzheimer

    Áhrif öldrunar á minni, en er ekki Alzheimer
  • Gleymir hlutum stundum
  • Týnir stundum hlutum
  • Minniháttar skammtímaminnisleysi
  • Muna ekki öll smáatriði
  • Gleyma stundum nöfnum, en muna seinna


    Fyrsta stig Alzheimer
  • Upplifa tímabil gleymsku og minnisleysi
  • Gleyma nöfnum fjölskyldumeðlima
  • Aðeins nánustu aðilar taka eftir breytingum
  • Ruglingur í aðstæðum sem ekki eru vanalegar


    Annað stig Alzheimer
  • Miklir erfiðleikar við að muna atriði
  • Mikill ruglingur í mörgum aðstæðum
  • Erfiðleikar við svefn
  • Villast oft


    Þriðja stig Alzheimer
  • Erfiðleikar við að hugsa
  • Erfiðleikar við að tjá sig
  • Endurtekur samræður
  • Kvíði, árásargirni og ofsóknaræði

Framgangi sjúkdómsins er skipt í fjóra hluta, þar sem tekið er tillit til mynsturs í hegðun, hugsun og líðan.

Kenningar um orsakir

Kenning Amyloid Beta

Samkvæmt kenningu um Amyloid útfellingar orsakast Alzheimer af útfellingum og uppsöfnun af amyloid beta (Aβ) skellum utan um taugafrumur og veldur eitrunaráhrifum. Önnur meinafræðileg einkenni Alzheimer sem og taugaþráðaflækjur (e. neurofibrillary tangles) innan í taugafrumum, minnkuð virkni átfrumna, frumudauði, æðskemmdir og vitglöp orsakist af uppsöfnun Aβ skellna. Krufningar á heila Alzheimer-sjúklinga hafa sýnt fram á óeðlilegrar uppsöfnunar af Aβ skellum og taugaþráðaflækjum og að magn og dreifð skellnanna og taugaþráðaflækjanna hefur háa fylgni við framrás sjúkdómsins. Þessi kenning er þó ekki staðfest en fræðimenn deila um hvort Aβ skellur sé í raun orsök Alzheimer, en lyfjameðferðir sem minnka Aβ skellur í heila virðast ekki minnka einkenni Alzheimer.

Kenning Tau próteina

Kenningin um hlutverk Tau próteina leggur til að umbreyting á tau próteinum innan í taugafrumum valdi taugaþráðaflækjum sem þaðan af veldur eitrun og taugafrumudauða.

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Alzheimer-Sjúkdómur EinkenniAlzheimer-Sjúkdómur Kenningar um orsakirAlzheimer-Sjúkdómur TilvísanirAlzheimer-Sjúkdómur TenglarAlzheimer-Sjúkdómur

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

ÍraksstríðiðManchester City23. marsÍsafjörðurMálmurKárahnjúkavirkjunEvrópskur sumartímiVíetnamstríðiðSymbianLýðveldið FeneyjarBlaðlaukurKlara Ósk ElíasdóttirJökulgarðurÍslenski hesturinnBrennivínEistlandÖxulveldinAlþingiKísillWilliam ShakespeareÍslendingasögurKirkjubæjarklausturRómaveldiRagnhildur GísladóttirAlþingiskosningar 2021Faðir vorKanaríeyjarListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiMinkurSýrlenska borgarastyrjöldinEgill Skalla-GrímssonLissabonÓðinnÚkraínaNorskaListi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærðKosningaréttur kvennaHelMenntaskólinn í ReykjavíkSpænska veikinMollSankti PétursborgBjór á ÍslandiTröllHarðfiskurLægð (veðurfræði)Albert EinsteinÓeirðirnar á Austurvelli 1949Afleiða (stærðfræði)SvissAsmaraManchester UnitedRamadanHraðiÞór (norræn goðafræði)Íslenskir stjórnmálaflokkarSigurjón Birgir SigurðssonDiljá (tónlistarkona)LandsbankinnElly VilhjálmsBalfour-yfirlýsinginÍslensk mannanöfn eftir notkun3. júlíHáskóli ÍslandsVarmafræðiJóhannes Sveinsson KjarvalOpinbert hlutafélagEllert B. SchramTata NanoNeskaupstaðurListi yfir kirkjur á ÍslandiBroddgölturSamlífiBaugur GroupUrður, Verðandi og SkuldBlönduhlíðListi yfir morð á Íslandi frá 2000🡆 More