Sumarólympíuleikarnir 1984

Sumarólympíuleikarnir 1984 voru haldnir í Los Angeles, Kaliforníu í Bandaríkjunum 28.

júlí til 12. ágúst 1984. Lukkudýr leikanna var Ólympíuörninn Sámur. Forseti Bandaríkjanna, Ronald Reagan, setti leikana.

Sumarólympíuleikarnir 1984
Fánar dregnir að húni fyrir verðlaunaafhendingu í skotfimi.

Vegna þeirrar ákvörðunar Bandaríkjamanna að hunsa Ólympíuleikana í Moskvu 1980 ákváðu fjórtán lönd í Austurblokkinni og bandamenn þeirra að hunsa þessa ólympíuleika. Þar á meðal voru Sovétríkin, Austur-Þýskaland og Kúba. Íran og Líbýa hunsuðu einnig leikana, en af öðrum ástæðum. Þessi lönd skipulögðu Vináttuleikana í níu löndum Ólympíuleikunum til höfuðs.

Aðdragandi og skipulag

Hryðjuverkin á leikunum í München 1972 og gríðarlegt tap á leikunum í Montréal 1976 ollu því að borgir heims voru hikandi við að falast eftir Ólympíuleikum þegar komið var fram á seinni hluta áttunda áratugarins. Í taun bárust bara tvö boð í að halda leikana árið 1984, annað frá Los Angeles sem falast hafði eftir að halda tvær fyrri keppnir og frá Teheran, sem var talið langsótt frá upphafi. Ekki kom til þess að kjósa þyrfti á milli borganna tveggja því Íranska byltingin í upphafi árs 1978 gerði það að verkum að sjálfhætt var með umsókn Teheran. Los Angeles er því í hópi örfárra borga sem hreppt hefur Ólympíuleika án keppni.

Keppnisgreinar

Keppt var í 221 grein. Fjöldi keppna í einstökum íþróttaflokkum er gefinn upp í sviga.

Handknattleikskeppni ÓL 1984

Vegna sniðgöngu nokkurra Austur-Evrópuríkja bauðst íslenska handknattleiksliðinu að taka þátt á leikunum. Keppt var í tveimur sex liða riðlum.

Íslenska liðið hóf keppni gegn Júgóslövum og missti góða forystu niður í jafntefli á lokasprettinum. Því næst kom stórtap gegn Rúmenum. Í kjölfarið komu góðir sigrar gegn Japönum, Alsír og Sviss. Loks tapaði íslenska liðið fyrir Svíum í leik um fimmta sætið.

Júgóslavar urðu Ólympíumeistarar eftir sigur á Vestur-Þjóðverjum í úrslitum og Rúmenar höfnuðu í þriðja sæti. Með árangri sínum tryggðu Íslendingar sér sæti á heimsmeistaramótinu í Sviss 1986.

Þátttaka Íslendinga á leikunum

Auk handknattleikslandsliðsins, sendu Íslendingar fjóra sundmenn, sjö frjálsíþróttamenn, tvo júdókappa og tvo kappsiglingarmenn á leikana.

Bjarni Friðriksson varð hetja Íslendinga á leikunum þegar hann hlaut bronsverðlaun í -95 kílógramma flokki í júdó. Voru það fyrstu verðlaun Íslands frá því í Melbourne 1956.

Einar Vilhjálmsson náði langbestum árangri frjálsíþróttafólksins. Hann varð sjötti í spjótkastskeppninni. Kringlukastarinn Vésteinn Hafsteinsson féll á lyfjaprófi og var árangur hans strikaður út.

Fjögur Íslandsmet litu dagsins ljós í sundkeppninni, þar sem Guðrún Fema Ágústsdóttir og Tryggvi Helgason slógu tvö met hvort.

Siglingamennirnir Gunnlaugur Jónasson og Jón Pétursson kepptu í siglingu á 470-tvímenningskænu og höfnuðu í 23. sæti af 28.

Verðlaunaskipting eftir löndum

Nr Lönd Gull Silfur Brons Alls
1 Sumarólympíuleikarnir 1984  Bandaríkin 83 61 30 174
2 Sumarólympíuleikarnir 1984  Rúmenía 20 16 17 53
3 Sumarólympíuleikarnir 1984  Vestur-Þýskaland 17 19 23 59
4 Sumarólympíuleikarnir 1984  Kína 15 8 9 32
5 Sumarólympíuleikarnir 1984  Ítalía 14 6 12 32
6 Sumarólympíuleikarnir 1984  Kanada 10 18 16 44
7 Sumarólympíuleikarnir 1984  Japan 10 8 14 32
8 Sumarólympíuleikarnir 1984  Nýja-Sjáland 8 1 2 11
9 Sumarólympíuleikarnir 1984  Júgóslavía 7 4 7 18
10 Sumarólympíuleikarnir 1984  Suður-Kórea 6 6 7 19
11 Sumarólympíuleikarnir 1984  Bretland 5 11 21 37
12 Sumarólympíuleikarnir 1984  Frakkland 5 7 16 28
13 Sumarólympíuleikarnir 1984  Holland 5 2 6 13
14 Sumarólympíuleikarnir 1984  Ástralía 4 8 12 24
15 Sumarólympíuleikarnir 1984  Finnland 4 2 6 12
16 Sumarólympíuleikarnir 1984  Svíþjóð 2 11 6 19
17 Sumarólympíuleikarnir 1984  Mexíkó 2 3 1 6
18 Sumarólympíuleikarnir 1984  Marokkó 2 0 0 2
19 Sumarólympíuleikarnir 1984  Brasilía 1 5 2 8
20 Sumarólympíuleikarnir 1984  Spánn 1 2 2 5
21 Sumarólympíuleikarnir 1984  Belgía 1 1 2 4
22 Sumarólympíuleikarnir 1984  Austurríki 1 1 1 3
23 Sumarólympíuleikarnir 1984  Kenýa 1 0 2 3
Sumarólympíuleikarnir 1984  Portúgal 1 0 2 3
25 Sumarólympíuleikarnir 1984  Pakistan 1 0 0 1
26 Sumarólympíuleikarnir 1984  Sviss 0 4 4 8
27 Sumarólympíuleikarnir 1984  Danmörk 0 3 3 6
28 Sumarólympíuleikarnir 1984  Jamæka 0 1 2 3
Sumarólympíuleikarnir 1984  Noregur 0 1 2 3
30 Sumarólympíuleikarnir 1984  Grikkland 0 1 1 2
Sumarólympíuleikarnir 1984  Nígería 0 1 1 2
Sumarólympíuleikarnir 1984  Púertó Ríkó 0 1 1 2
33 Sumarólympíuleikarnir 1984  Kólumbía 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1984  Fílabeinsströndin 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1984  Egyptaland 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1984  Írland 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1984  Perú 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1984  Sýrland 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1984  Tæland 0 1 0 1
40 Sumarólympíuleikarnir 1984  Tyrkland 0 0 3 3
Sumarólympíuleikarnir 1984  Venesúela 0 0 3 3
42 Sumarólympíuleikarnir 1984  Alsír 0 0 2 2
43 Sumarólympíuleikarnir 1984  Kamerún 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1984  Tævan 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1984  Dóminíska lýðveldið 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1984  Ísland 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1984  Sambía 0 0 1 1
Alls 226 219 243 688

Tenglar

Tags:

Sumarólympíuleikarnir 1984 Aðdragandi og skipulagSumarólympíuleikarnir 1984 TenglarSumarólympíuleikarnir 19841984BNAForseti BandaríkjannaKaliforníaLos AngelesRonald Reagan

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Eivør PálsdóttirJóhann Berg GuðmundssonViðskiptablaðiðEinmánuðurGrameðlaListi yfir páfaMyndlista- og handíðaskóli ÍslandsKnattspyrnufélag ReykjavíkurMæðradagurinnÁstralíaAlþingiskosningar 2009MoskvufylkiSædýrasafnið í HafnarfirðiNorræn goðafræðiRonja ræningjadóttirJafndægurHetjur Valhallar - ÞórHelga ÞórisdóttirPálmi GunnarssonÞóra ArnórsdóttirdzfvtMynsturAlþingiskosningar 2021GæsalappirSkákFrosinnSólstöðurEvrópaStefán Máni25. aprílJón EspólínStari (fugl)HnísaForsetakosningar á Íslandi 1980TröllaskagiKnattspyrnudeild ÞróttarParísMannakornPáll ÓskarViðtengingarhátturÓlympíuleikarnirListi yfir forsætisráðherra ÍslandsBerlínJaðrakanDraumur um NínuVorDagur B. EggertssonB-vítamínJón Múli ÁrnasonEldurSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirPúðursykurNæturvaktinSkuldabréfGaldurFjaðureikSveitarstjórnarkosningar á Íslandi 2022Sveitarfélagið ÁrborgLungnabólgaMagnús Eiríksson1974Margit SandemoSanti CazorlaÍslandsbankiForsetakosningar á Íslandi 2016Baltasar KormákurJón Sigurðsson (forseti)Listi yfir tinda á Íslandi eftir hæðNorræna tímataliðHljómarLómagnúpurReykjanesbærEinar BenediktssonLánasjóður íslenskra námsmannaKrónan (verslun)KínaDimmuborgir🡆 More