San Marínó er höfuðborg örríkisins San Marínó en er þó í raun aðeins þorp með um 4.100 íbúa (janúar 2022), í vesturhlíðum fjallsins Monte Titano.
Það er ekki fjölmennasti þéttbýlisstaður ríkisins, þorpin Dogana og Borgo Maggiore eru stærri.
San Marínó Città di San Marino (ítalska) | |
---|---|
Hnit: 43°56′4.56″N 12°26′50.28″A / 43.9346000°N 12.4473000°A | |
Land | San Marínó |
Stofnun | 3. september 301 |
Flatarmál | |
• Samtals | 7,09 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 749 m |
Mannfjöldi (Janúar 2022) | |
• Samtals | 4.061 |
• Þéttleiki | 582,23/km2 |
Tímabelti | UTC+1 (CET) |
• Sumartími | UTC+2 (CEST) |
Póstnúmer | RSM-47890 |
Heilagur Marínus og aðrir kristnir flóttamenn settust þarna að árið 301 og stofnuðu þorpið og jafnframt lýðveldið San Marínó, sem upphaflega náði aðeins yfir þorpið og næsta nágrenni en íbúarnir stækkuðu smám saman ríkið með kaupum og samningum uns það náði yfir allar hlíðar og topp Monte Titano. Bærinn er mjög vinsæll ferðamannastaður og þangað koma um þrjár milljónir ferðamanna árlega.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article San Marínó (borg), which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.