Samfélagsmiðill á við vefsíður og forrit sem gera notendum kleift að búa til og deila á milli sín rafrænu efni.
Sem dæmi má nefna Facebook, Twitter, LinkedIn, Instagram, Snapchat, Reddit, Discord, Pinterest, Tumblr eða Bland.is.
Einnig eru það samfélagsmiðlar hannaðir fyrir að deila myndskeiðum eins og TikTok, YouTube, Vimeo, Video Dailymotion og Twitch.
Svo eru það samfélagsmiðlar sérstaklega hannaðir fyrir spjall eins og Messenger, WhatsApp og Telegram.
Sumir samfélagsmiðlar greiða notendum fyrir efni sem nýtur mikilla vinsælda á miðlunum, til dæmis með hlutdeild í auglýsingatekjum miðilsins. Áhrifavaldur er manneskja sem nýtir sér fjölda fylgjenda á samfélagsmiðlum til að kynna vörur og þjónustu, stundum gegn greiðslu eða gjöfum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Samfélagsmiðill, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.