Aleksej Navalnyj: Rússneskur stjórnmálamaður og aðgerðarsinni (1976-2024)

Aleksej Anatoljevítsj Navalnyj (rússneska: Алексей Анатольевич Навальный; f.

4. júní 1976, d. 16. febrúar 2024) var rússneskur stjórnmálamaður og aðgerðasinni gegn spillingu. Hann var einn af helstu leiðtogum stjórnarandstöðunnar gegn ríkisstjórn Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. Rússnesk stjórnvöld handtóku Navalnyj margsinnis og bönnuðu honum að gefa kost á sér í kosningum.

Aleksej Navalnyj
Алексе́й Нава́льный
Aleksej Navalnyj: Æviágrip, Viðurkenningar, Tengt efni
Fæddur4. júní 1976 (1976-06-04) (47 ára)
Dáinn16. febrúar 2024 (47 ára)
Kharp, Rússlandi
ÞjóðerniRússneskur
StörfStjórnmálamaður
FlokkurRússland framtíðarinnar
TrúRússneska rétttrúnaðarkirkjan
MakiJúlía Navalnaja
Börn2
VerðlaunSakharov-verðlaunin (2021)
Vefsíðanavalny.com
Undirskrift
Aleksej Navalnyj: Æviágrip, Viðurkenningar, Tengt efni

Í ágúst árið 2020 var eitrað fyrir Navalnyj með taugaeitrinu Novítsjok. Navalnyj var fluttur á sjúkrahús í Þýskalandi en sneri aftur til Rússlands í janúar 2021 og var handtekinn. Hann lést í fangavistinni þann 16. febrúar árið 2024.

Æviágrip

Navalnyj kom fram á sjónarsviðið sem baráttumaður gegn spillingu í Rússlandi árið 2007 þegar hann keypti hlutabréf í fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkisins og fór að mæta á ársfundi þeirra til að yfirheyra stjórnendur þeirra. Hann stofnaði bloggsíðu þar sem hann skrifaði um fjársvik og spillingu sem viðgekkst innan rússneskra stórfyrirtækja.

Navalnyj varð þjóðþekktur í Rússlandi sem einn af skipuleggjendum mótmæla sem fóru fram veturinn 2011-2012 gegn kjöri Vladímírs Pútín til síns þriðja kjörtímabils í forsetaembætti. Um var að ræða fjölmennustu mótmæli frá valdatöku Pútíns við upphaf aldarinnar. Eftir þátttöku Navalnyj í mótmælunum var hann ákærður fyrir fjárdrátt í embætti sem ráðgjafi rússneskra stjórnvalda varðandi timburkaup í borginni Kírov árið 2009. Navalnyj sagðist saklaus af ásökununum og vændi stjórnvöld um að reyna að sverta mannorð hans til að koma í veg fyrir að hann gæti boðið sig fram til pólitísks embættis. Navalnyj var dæmdur í fimm ára fangelsi en samherjar hans vændu stjórnvöld um að standa að sýndarréttarhöldum gegn honum.

Vegna mótmæla gegn dómnum var Navalnyj leystur úr haldi innan við sólarhring eftir að hann var felldur. Á meðan dómstólar tóku mál hans til endurskoðunar var honum leyft að gefa kost á sér í borgarstjórakosningum í Moskvu sem fóru fram í september 2013 á móti samherja Pútíns, sitjandi borgarstjóranum Sergej Sobjanín. Navalnyj bað ósigur en hlaut um þrjátíu prósent atkvæða, sem þótti mjög góður árangur fyrir stjórnarandstæðing í Rússlandi. Í október 2013 komst áfrýjunardómstóll að þeirri niðurstöðu að Navalnyj væri sekur um þjófnað en dómurinn var gerður skilorðsbundinn. Navalnyj var því frjáls ferða sinna en honum meinað að bjóða sig aftur fram til opinbers embættis. Mál Navalnyj var síðar tekið upp að nýju vegna athugasemda sem Mannréttindadómstóll Evrópu gerði við málsmeðferð hans. Niðurstaðan var hins vegar sú að rússneskir dómstólar felldu nákvæmlega sama dóm og áður yfir Navalnyj með sömu sönnunargögnum án þess að taka tillit til athugasemda MDE.

Navalnyj hafði haft hug á að bjóða sig fram til forseta Rússlands gegn Pútín árið 2018 en honum var meinað að gefa kost á sér vegna dómsins. Navalnyj hefur nokkrum sinnum verið fangelsaður fyrir að skipuleggja mótmæli gegn rússneskum stjórnvöldum án þess að fá formlegt leyfi fyrir því.

Eitrun og fangelsun

Aleksej Navalnyj: Æviágrip, Viðurkenningar, Tengt efni 
Navalnyj árið 2020 í mótmælagöngu til minningar myrta stjórnarandstöðuleiðtogans Borísar Nemtsov.

Þann 20. ágúst 2020 féll Navalnyj í dá og var lagður inn á gjörgæslu í Omsk í Síberíu. Upplýsingafulltrúi hans sagðist telja að eitrað hefði verið fyrir Navalnyj í tebolla sem hann keypti á flugvellinum í Tomsk. Flogið var með Navalnyj meðvitundarlausan til Berlínar og hann lagður inn á Charité-sjúkrahúsið í borginni. Þýskir læknar komust að þeirri niðurstöðu að Navalnyj hefði verið byrlað taugaeitrið Novítsjok. Eitrað hafði verið fyrir rússneska fyrrum njósnaranum Sergej Skrípal og dóttur hans, Júlíu Skrípal, með sama eitri í Salisbury á Englandi árið 2018. Navalnyj vaknaði úr dáinu þann 7. september.

Navalnyj sneri aftur til Rússlands þann 17. janúar 2021 en var umsvifalaust handtekinn þegar þangað var komið. Hann var dæmdur í 30 daga gæsluvarðhald fyrir að rjúfa skilorð sitt með ferðinni til Þýskalands og síðan dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar. Handtaka Navalnyj leiddi til fjöldamótmæla í Rússlandi þar sem þúsundir voru handteknir. Í lok febrúar var Navalnyj fluttur til fanganýlendu í Vladímírfylki til þess að afplána fangelsisdóminn.

Pólitísk samtök Navalnyj voru úrskurðuð öfgasamtök af rússneskum stjórnvöldum og starfsemi þeirra bönnuð með lögum þann 10. júní 2021. Fangelsismálayfirvöld í Rússlandi veittu Navalnyj stöðu hryðjuverkamanns í október sama ár.

Navalnyj var á lista Amnesty International yfir samviskufanga. Hann var tekinn af listanum í stuttan tíma árið 2021 vegna gamalla hatursfullra ummæla sinna um innflytjendur. Navalnyj var aftur settur á lista samtakanna yfir samviskufanga stuttu síðar.

Navalnyj var dæmdur til þrettán ára fangelsisvistar í viðbót fyrir fjársvik þann 22. mars 2022. Í ágúst 2023 var dómurinn lengdur um nítján ár vegna ákæru gegn Navalnyj um að fjármagna og styðja starfsemi öfgasamtaka.

Í desember 2023 hafði Navalnyj verið færður til fanganýlendu í Síberíu.

Andlát

Navalnyj lést í fangelsi þann 16. febrúar árið 2024. Fangelsismálayfirvöld í Rússlandi sögðu hann hafa veikst og hnigið niður eftir gönguferð um morguninn. Tilraunir til að endurlífga hann hafi ekki borið árangur. Navalnyj hafði átt við ýmis heilsuvandamál að stríða í fangelsinu vegna slæms aðbúnaðar og illrar meðferðar. Stuðningsmenn Navalnyj kenndu Vladímír Pútín og stjórn hans um andlátið og bentu á að Navalnyj hafði virst við góða heilsu fáeinum dögum áður en hann dó.

Viðurkenningar

Evrópuþingið veitti Navalnyj Sakharov-verðlaunin í október 2021. Vegna fangelsisdóms síns gat Navalnyj ekki veitt verðlaununum viðtöku. David Sassoli, forseti Evrópuþingsins, sagði við tilkynninguna á veitingu verðlaunanna að Navalnyj hefði „barist ötullega gegn hinni spilltu stjórn Vladímírs Pútín“ og hefði „fyrir það goldið með frelsi, og næstum lífi sínu.“ Verðlaunin væru viðurkenning á hugrekki hans og ítrekun á kröfu um lausn hans úr fangelsinu.

Tengt efni

Tilvísanir

Tags:

Aleksej Navalnyj ÆviágripAleksej Navalnyj ViðurkenningarAleksej Navalnyj Tengt efniAleksej Navalnyj TilvísanirAleksej Navalnyj16. febrúar2024RússlandSpillingVladímír Pútín

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

1. maíBubbi MorthensKnattspyrnufélagið ValurLettlandHelga ÞórisdóttirXHTMLKárahnjúkavirkjunBretlandListi yfir úrslit MORFÍSAdolf HitlerGoðafossViðskiptablaðiðTjörneslöginBerserkjasveppurHafskipsmáliðHrafna-Flóki VilgerðarsonMenntaskólinn í ReykjavíkForsetakosningar í BandaríkjunumHrafn Gunnlaugsson24. aprílVeik beygingSnorri SturlusonFornafnKjördæmi ÍslandsSveppirFiskurÍslenski þjóðbúningurinnÓlympíuleikarnirSan FranciscoAkranesKatrín JakobsdóttirÞórunn Elfa MagnúsdóttirUppstigningardagurÞunglyndislyfHeilkjörnungarKjölur (fjallvegur)Íslamska ríkiðÞjóðhátíð í VestmannaeyjumBrúttó, nettó og taraSelfossWikiListi yfir íslenska tónlistarmennEyjafjallajökullBessastaðirGuðrún ÓsvífursdóttirEkvadorTáknÍslenski hesturinnJava (forritunarmál)Hólar í HjaltadalNjáll ÞorgeirssonSiðaskiptinHagstofa ÍslandsNifteindAlþingiskosningarRómverskir tölustafirWilliam SalibaMS (sjúkdómur)Íslensk mannanöfn eftir notkunEiður Smári GuðjohnsenJóhannes Sveinsson KjarvalSýndareinkanetSvartfjallalandHólmavíkBorgaralaunEsjaLatibærGunnar HámundarsonPýramídiPólýesterHaffræðiGarðabærGunnar HelgasonListi yfir íslenska sjónvarpsþættiÁramótaskaup 2016Ljóðstafir🡆 More