X-gluggakerfið (oft aðeins kallað X eða X11) er myndrænt viðmót (gluggakerfi) fyrir nettengdar tölvur.
Það var upphaflega þróað sem hluti af Athena-verkefninu sem snerist um þróun tölvunets í Massachusetts Institute of Technology árið 1984. Kerfið var nefnt X þar sem það var hugsað sem arftaki annars kerfis, W-gluggakerfisins sem var þróað fyrir stýrikerfið V. X var fyrsta gluggakerfið sem var algerlega óháð bæði stýrikerfi og söluaðila.
X-gluggakerfið er nú aðallega notað á Unix-legum stýrikerfum á borð við Linux og FreeBSD. Apple OS X studdi X11 í útgáfu 10.3 til 10.7 í forritinu X11.app en vísar nú á frjálsa XQuartz verkefnið í staðinn.
Kerfið er hannað sem biðlaraþjónusta þar sem notendaforritin eru biðlarar sem óska eftir tilteknu myndrænu úttaki (glugga) frá X-þjóni (miðlara). X-þjónninn sendir á móti inntaksboð á borð við músahreyfingar, lyklaborðsslátt o.s.frv. aftur til forritsins. X-gluggakerfið er hægt að setja upp þannig að gluggaþjónninn sé á einni vél (t.d. annarri tölvu eða nettengdum prentara) en forritin sem nýta sér hann á annarri vél.
Sumt fólk hefur reynt að búa til valmöguleika við X-glugakerfið. Sögulega séð var NeWS frá Sun og "Display PostScript" frá NeXT notað. Núverandi valmöguleikar eru:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article X-gluggakerfið, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.