Sen (eða zen) er form af búddisma, sem leggur megináherslu á hugleiðslu umfram dýrkun guðdóms, helgirita og regluverks.
Í raun er það andstætt sen (zen) að það sé skilgreint, því hugmyndafræðin gengur út á að ekkert er í föstu formi. Allt er háð breytingum og það sem við höldum að sé veruleikinn er í raun okkar eigin túlkun samkvæmt hugmyndum zen. Sen varð til í Kína á 7. öld en breiddist þaðan til Víetnam, Kóreu og Japans. Japanski rithátturinn er zen en sá kínverski er chan (禪) en kínverska orðið er komið af orðinu dhyāna í sanskrít, sem merkir „hugleiðsla“.
Sen (zen) hugleiðsla, kölluð zazen gengur í stuttu máli út á að leyfa hugsunum að koma og fara og ekki dæma það sem kemur upp heldur einungis leyfa því að vera og taka eftir því. Þannig er ætlunin að hafa hugann í nútíð og draga úr egóisma með því að gera ekki tilkall til neinnar útkomu.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Sen, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.