Scott Morrison: 30. forsætisráðherra Ástralíu

Scott John Morrison (f.

13. maí 1968) er ástralskur stjórnmálamaður og fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu. Hann er formaður Frjálslynda flokksins og var fjármálaráðherra Ástralíu frá 2015 til 2018.

Scott Morrison
Scott Morrison: 30. forsætisráðherra Ástralíu
Forsætisráðherra Ástralíu
Í embætti
24. ágúst 2018 – 23. maí 2022
ÞjóðhöfðingiElísabet 2.
LandstjóriSir Peter Cosgrove
David Hurley
ForveriMalcolm Turnbull
EftirmaðurAnthony Albanese
Persónulegar upplýsingar
Fæddur13. maí 1968 (1968-05-13) (55 ára)
Sydney, Nýja Suður-Wales, Ástralíu
ÞjóðerniÁstralskur
StjórnmálaflokkurFrjálslyndi flokkurinn
MakiJenny Warren
Börn2
HáskóliHáskólinn í Nýja Suður-Wales

Morrison fæddist í Sydney og nam efnahagslandafræði við Háskólann í Nýja Suður-Wales. Hann var framkvæmdastjóri ferðamanna- og íþróttaskrifstofu Nýja-Sjálands frá 1998 til 2000 og var síðan framkvæmdastjóri áströlsku ferðamannaskrifstofunnar frá 2004 til 2006. Morrison var jafnframt héraðsformaður Frjálslynda flokksins í Nýja Suður-Wales frá 2000 til 2004.

Morrison var kjörinn á ástralska þingið fyrir Cook-kjördæmi árið 2007. Eftir að bandalag Frjálslynda flokksins vann kosningasigur árið 2013 var Morrison útnefndur ráðherra innflutnings- og landvarnarmála í ríkisstjórn Tony Abbott. Í því embætti bar hann ábyrgð á aðgerðum til að koma í veg fyrir komu ólöglegra innflytjenda til Ástralíu. Þegar stjórnin var stokkuð upp árið 2014 varð Morrison félagsmálaráðherra. Hann varð síðan fjármálaráðherra árið 2015 þegar Malcolm Turnbull varð forsætisráðherra.

Í ágúst árið 2018 skoraði Peter Dutton Turnbull á hólm í formannskjöri Frjálslynda flokksins. Turnbull sigraði Dutton en flokkurinn var áfram klofinn í afstöðu sinni til formennsku hans og því var kallað til annarra formannskosninga síðar sama ár og Turnbull ákvað að bjóða sig ekki fram. Í formannskjörinu sigraði Morrison Dutton og Julie Bishop og var kjörinn formaður Frjálslynda flokksins. Hann tók við embætti sem forsætisráðherra Ástralíu síðar sama dag. Morrison og Frjálslyndi flokkurinn unnu síðan óvæntan sigur gegn stjórnarandstöðunni í þingkosningum árið 2019.

Frjálslyndi flokkurinn tapaði þingkosningum í maí 2022 og Anthony Albanese, leiðtogi Verkamannaflokksins, tók því við af Morrison sem forsætisráðherra.

Eftir að Morrison lét af embætti forsætisráðherra var upplýst um að hann hefði á stjórnartíð sinni útnefnt sjálfan sig ráðherra í fimm ráðuneytum til viðbótar án þess að gera það opinbert. Þannig var Morrison heilbrigðis-, fjármála-, iðnaðar-, vísinda- og orkumálaráðherra samhliða því sem hann gegndi forsætisráðherraembættinu. Ráðherrum þessara ráðuneyta var ekki tilkynnt um að Morrison hefði gert sjálfan sig að meðráðherra þeirra og því töldu þeir sig fara einir fyrir þessum málaflokkum. Morrison sagði þetta hafa verið neyðarúrræði vegna kórónuveirufaraldursins.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Malcolm Turnbull
Forsætisráðherra Ástralíu
(24. ágúst 201823. maí 2022)
Eftirmaður:
Anthony Albanese


Tags:

Ástralía

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Listi yfir íslenska tónlistarmennForsetakosningar á Íslandi 2016MáfarAlþingiskosningar 2017Svampur SveinssonBúdapestEigindlegar rannsóknirIndriði EinarssonSauðanes (N-Þingeyjarsýslu)Einar JónssonÞjórsáMaríuerlaVorKalkofnsvegurHrafninn flýgurNorður-ÍrlandStríðKosningarétturMannakornBretlandFreyjaHringtorgNorræna tímataliðListi yfir morð á Íslandi frá 2000LungnabólgaHallgerður HöskuldsdóttirEsjaNíðhöggurKnattspyrnufélag AkureyrarIngvar E. SigurðssonJón EspólínMorð á ÍslandiMargrét Vala MarteinsdóttirGuðmundar- og GeirfinnsmáliðLandnámsöldFyrsti vetrardagurBreiðdalsvíkKnattspyrnufélagið ValurAgnes MagnúsdóttirKorpúlfsstaðirÍslandsbankiÖspGylfi Þór SigurðssonSæmundur fróði SigfússonEnglar alheimsins (kvikmynd)Stórar tölurTyrkjarániðÞjóðminjasafn ÍslandsJóhannes Haukur JóhannessonLýðræðiListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðBaltasar KormákurTaívanFornafnMargföldunÚlfarsfellLeikurÓlafsvíkÁstralíaKnattspyrnudeild ÞróttarFjalla-EyvindurAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)SjómannadagurinnUngfrú ÍslandÍslenski hesturinnFrakklandRíkisútvarpiðÍslenska kvótakerfiðForsíðaSauðféAlþýðuflokkurinnHalla TómasdóttirTilgátaHrefna🡆 More