Reikistjarna Satúrnus: Reikistjarna í sólkerfinu

Satúrnus er sjötta reikistjarnan frá sólu.

Hann er næststærsta reikistjarna sólkerfisins og einn af gasrisunum. Radíus plánetunnar er að meðaltali níu og hálfum sinnum meiri en radíus jarðar. Hann hefur aðeins einn áttunda af þéttleika jarðar, en vegna stærðar sinnar hefur hann 95 sinnum meiri massa.

Satúrnus ♄
Reikistjarna Satúrnus: Reikistjarna í sólkerfinu
Satúrnus í réttum litum. Mynd frá Cassini.
Einkenni sporbaugs
Viðmiðunartími J2000.0
Sólnánd
  • 1.353.572.956 km
  • 9,04807635 AU
Sólfirrð
  • 1.513.325.783 km
  • 10,11595804 AU
Hálfur langás
  • 1.433.449.370 km
  • 9,58201720 AU
Miðskekkja0,055723219
Umferðartími
  • 10.759,22 d
  • 29,4571 ár
  • 24.491,07 Satúrnusdagur
Sólbundinn umferðartími378,09 dagar
Meðal sporbrautarhraði9,69 km/s
Meðalbrautarhorn320,346750°
Brautarhalli
  • 2,485 240° miðað við sólbaug
  • 5,51° miðað við miðbaug sólar
  • 0,93° miðað við fastasléttu
Rishnútslengd113,642811°
Stöðuhorn nándar336,013862°
Tungl~200 hafa sést (62 á föstum sporbrautum, þar af 53 sem hafa verið nefnd)
Eðliseinkenni
Miðbaugsgeisli
  • 60.268 ± 4 km
  • 9,4492 jarðir
Heimskautageisli
  • 54.364 ± 10 km
  • 8,5521 jarðir
Pólfletja0,09796 ± 0,00018
Flatarmál yfirborðs
  • 4,27×1010 km²
  • 83,703 jarðir
Rúmmál
  • 8,2713×1014 km3
  • 763,59 jarðir
Massi
  • 5,6846×1026 kg
  • 95,152 jarðir
Þéttleiki0,687 g/cm3
(léttari en vatn)
Þyngdarafl við miðbaug
  • 10,44 m/s²
  • 1,065 g
Lausnarhraði35,5 km/s
Snúningshraði við miðbaug
  • 9,87 km/s
  • 35.500 km/h
Möndulhalli26,73°
Stjörnulengd norðurpóls40,589°
Stjörnubreidd norðurpóls83,537°
Endurskinshlutfall
  • 0,342 (Bond)
  • 0,47 (gagnskin)
Yfirborðshiti lægsti meðal hæsti
við 1 bar 134 K
við 0,1 bar 84 K
Sýndarbirta+1.47 to −0.24
Sýndarþvermál14,5"–20,1"
(fyrir utan hringa)
Lofthjúpur
Stigulshæð59,5 km
Samsetning
~96% vetni (H2)
~3% helín
~0,4% metan
~0,01%ammóníak
~0,01%sameindir vetnis og tvívetnis (HD)
0,0007%etan
Ís:
ammóníak
vatn
ammóníakshýdrósúlfíð(NH4SH)

Líkt og Júpíter er Satúrnus að mestu leyti úr vetni (75%) og helíni (25%), vatni, metani, ammoníaki og bergi, og er því svipaður að samsetningu og upprunalega geimþokan sem sólkerfið myndaðist úr. Innviðum Satúrnusar svipar til innviða Júpíters. Þeir eru kjarni úr bergi, lag úr fljótandi vetni og lag úr vetni í sameindaformi. Ýmis afbrigði af ís eru einnig til staðar.

Satúrnus er með kjarna úr járn-nikkelblöndu og bergi (kísli og súrefni). Umhverfis kjarnann er fljótandi lag af vetnismálmi, millilag úr fljótandi vetni og helíni, og loks ytra gaslag. Ammóníakskristallar í lofthjúpi Satúrnusar gefa stjörnunni ljósgult yfirbragð. Talið er að rafstraumur í vetnismálmslaginu búi til segulsvið sem er veikara en segulsvið jarðar, en hefur 580 sinnum meira segulvægi vegna stærðarmunar. Styrkur segulsviðs Satúrnusar er um einn tuttugasti af styrk segulsviðs Júpíters. Ysta lag lofthjúpsins er móðukennt og án sterkra andstæðna. Vindhraði á Satúrnusi getur náð 1.800 km/klst, sem er meira en á Júpíter en minna en á Neptúnusi.

Helsta einkenni Satúrnusar eru hringir sem eru mjög umfangsmiklir og aðallega úr ís og grjóti. Satúrnus er með 83 þekkt tungl á braut um sig, þar af 53 sem hafa fengið opinber nöfn. Þá eru ekki meðtalin hundruð smátungla í hringjunum. Stærsta tungl Satúrnusar, og það stærsta í sólkerfinu, er stærra en Merkúr þótt það sé massaminna. Það er eina tunglið í sólkerfinu sem er með lofthjúp að ráði. Þyngdarkraftur við yfirborð er aðeins lítið eitt sterkari en á jörðinni. Maður sem vegur 100 kíló á jörðinni myndi vega 115 kíló á Satúrnusi ef það væri hægt að standa á yfirborðinu.

Heiti

Satúrnus heitir eftir rómverska guðinum Satúrnusi, sem var guð auðæfa og landbúnaðar. Í grísku var stjarnan nefnd eftir títaninum Krónosi og stjörnutáknið fyrir Satúrnus er myndað úr grísku stöfunum kappa og hró (kr fyrir Krónos). Seinna var þverstriki bætt við. Í kínverskri, japanskri, kóreskri og víetnamskri menningu er hún kölluð „Jarðstjarnan“, byggt á frumefnunum fimm.

Rómverjar nefndu sjöunda dag vikunnar eftir Satúrnusi, Saturni dies, sem varð heiti hans á ensku, Saturday.

Tilvísanir

Tenglar

Reikistjarna Satúrnus: Reikistjarna í sólkerfinu   Þessi stjörnufræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

GasrisiReikistjarnaSólinSólkerfið

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

HjálpPragGeorges PompidouListi yfir íslensk póstnúmerBárðarbungaJóhann Berg GuðmundssonJóhannes Sveinsson KjarvalMassachusettsTaílenskaÍslensk krónaJakob Frímann MagnússonBoðorðin tíuLungnabólgaGuðmundar- og GeirfinnsmáliðKeflavíkÓlafur Ragnar GrímssonJakobsvegurinnEvrópska efnahagssvæðiðEiður Smári GuðjohnsenÍslenskt mannanafnDraumur um NínuEiríkur Ingi JóhannssonLandvætturAaron MotenPortúgalMörsugurMerki ReykjavíkurborgarSagan af DimmalimmÓlafur Egill EgilssonJón Jónsson (tónlistarmaður)Adolf HitlerKlukkustigiJaðrakanBjörgólfur Thor BjörgólfssonJapanMerik TadrosSveitarfélagið ÁrborgEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024KosningarétturÁrni BjörnssonFóturFullveldiFrakklandElísabet JökulsdóttirKatrín JakobsdóttirIstanbúlKínaSmokkfiskarSigurboginnLýðstjórnarlýðveldið KongóLánasjóður íslenskra námsmannaListi yfir landsnúmerÓlafur Grímur BjörnssonAlþingiskosningar 2009MaineVopnafjarðarhreppurFylki BandaríkjannaÍbúar á ÍslandiForsetningÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaBaltasar KormákurVladímír PútínSveitarstjórnarkosningar á Íslandi 2022Felix BergssonYrsa Sigurðardóttir1918Laufey Lín JónsdóttirListi yfir íslenskar kvikmyndirVerðbréfLaxdæla sagaBessastaðirVafrakakaJón Baldvin HannibalssonHvalirSteinunn Ólína Þorsteinsdóttir🡆 More