Rjúpa: Fuglategund af orraætt

Rjúpa eða fjallarjúpa (fræðiheiti: Lagopus muta eða L.

mutus) er lítill fugl af orraætt, um 31–35 cm að lengd. Rjúpan er staðfugl og verpir á heimskautasvæðum og norðlægum slóðum í Evrasíu, Norður-Ameríku og einnig á Grænlandi) á heiðum, fjalllendi og á túndru.

Rjúpa
Rjúpnapar í vorbúningi í Jotunheimen, Noregi.
Rjúpnapar í vorbúningi í Jotunheimen, Noregi.
Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Fuglar (Aves)
Ættbálkur: Hænsnfuglar (Galliformes)
Ætt: Orraætt (Tetraonidae)
Ættkvísl: Rjúpnaættkvísl (Lagopus)
Tegund:
L. muta

Lars Montin (1781)
Rjúpa: Útlit og lifnaðarhættir, Lifnaðarhættir á Íslandi, Tilvísanir
Útbreiðsla.
Rjúpa: Útlit og lifnaðarhættir, Lifnaðarhættir á Íslandi, Tilvísanir
Egg Lagopus muta
Rjúpa: Útlit og lifnaðarhættir, Lifnaðarhættir á Íslandi, Tilvísanir
Lagopus muta islandorum

Útlit og lifnaðarhættir

Rjúpan er sérstök meðal fugla að því leyti að hún skiptir um hluta fjaðurhams þrisvar á ári. Breytir um lit eftir árstíðum, á sumrin og haustin er rjúpan brúnleit með svörtum flikrum, í vetrarbúningi eru bæði kynin alhvít með svart stél. Í júlí fella rjúpur flugfjaðrir og stélfjaðrir.

Karrinn helgar sér óðal í lok apríl og kvenfuglinn kemur tveimur til þremur vikum síðar. Rjúpan verpir að jafnaði 12 eggjum. Útungunartíminn er um 3 vikur og ungarnir yfirgefa hreiðrið strax. Þeir fylgja móður sinni eftir í 6 - 8 vikur. Rjúpan er jurtaæta, en ungar hennar nærast þó nokkuð á skordýrum. Fullorðnar rjúpur lifa á rjúpnalaufi (blöðum holtasóleyjar), kornsúru, krækilyngi (berjum og greinum), aðalbláberjalyngi (blaðbrumi og berjum), birki (reklar, blaðbrum), grasvíði og fleiri jurtum.

Myndir af rjúpum

Lifnaðarhættir á Íslandi

Rjúpa er algeng um allt land. Hún er staðfugl en ferðast innanlands utan varptímans. Yfir varptímann eru rjúpur algengar í móum, mýrum og kjarrlendi. Á veturnar halda rjúpur til fjalla og upp á heiðar en þær eru einnig í hraunum og kjarrlendi. Fram eftir vetri stýrast ferðir rjúpu af leit að bestu beitilöndunum. Rjúpur geta halda sig á fjöllum að deginum en flogið langa leið til beitilanda og náttstaða neðar á heiðum þegar rökkvar.

Rjúpan er lykiltegund í íslensku vistkerfi og einn einkennisfugla íslenskrar náttúru. Rjúpnaveiðar eru vinsælt tómstundagaman og eru rjúpur hluti af jólahefð margra íslenskra fjölskyldna.

Stofnstærð er talin mjög breytileg, frá 50 þúsund til 200 þúsund pör á sumrin en allt að 1 milljón fuglar að vetri. Rjúpnastofninn er sveiflóttur og um tíu ár hafa liðið á milli toppa, þessar sveiflur eru taldar vera náttúrulegar og að skotveiðar stjórni þeim ekki. Rannsóknir hafa sýnt að stofnbreytingarnar, það er hvort stofninn vex eða minnkar, ráðast af vetrarafföllum, þ.e. veðri og fæðuframboði. Hóflegar veiðar eru ekki taldar hafa áhrif á stöðu og hlutverk rjúpunnar í vistkerfinu. Rjúpan var friðuð frá hausti 2003 til hausts 2005.

Stofninn var talinn vera 297.000 árið 2022.

Tilvísanir

Heimildir

Tenglar

Rjúpa: Útlit og lifnaðarhættir, Lifnaðarhættir á Íslandi, Tilvísanir 
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
Rjúpa: Útlit og lifnaðarhættir, Lifnaðarhættir á Íslandi, Tilvísanir   Þessi fuglagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Rjúpa Útlit og lifnaðarhættirRjúpa Lifnaðarhættir á ÍslandiRjúpa TilvísanirRjúpa HeimildirRjúpa TenglarRjúpaEvrasíaFræðiheitiFuglGrænlandNorður-AmeríkaOrraætt

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnuGuðni Th. JóhannessonDymbilvikaNelson MandelaEinar Már GuðmundssonTenerífePjakkurSódóma ReykjavíkHlutlægniAusturland1936EiginnafnEyjafjallajökullListi yfir íslensk póstnúmerÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaDonald TrumpÞorlákshöfnDaniilEritreaAdam Smith28. maíFlugstöð Leifs EiríkssonarGuðmundar- og GeirfinnsmáliðVesturfararHindúismiAustur-SkaftafellssýslaSpjaldtölvaHaraldur ÞorleifssonTékklandEdda FalakHelle Thorning-SchmidtVesturlandÁbendingarfornafnSúdanSamnafnKGB29. marsHellissandurSkjaldbreiðurÖnundarfjörðurAfturbeygt fornafnSvíþjóðÞingvallavatnListi yfir morð á Íslandi frá 2000BarnafossLaosKleppsspítaliÍsraelHeimspekiLilja (planta)VestmannaeyjagöngBandamenn (seinni heimsstyrjöldin)GervigreindEmomali RahmonGuðrún frá LundiEnskaAgnes MagnúsdóttirJacques DelorsSkapahárGrænmetiÞýskalandSveitarfélagið Stykkishólmur28. marsMúmínálfarnirLettlandListi yfir fugla ÍslandsSeðlabanki ÍslandsÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaRagnhildur GísladóttirTryggingarbréfTeBolludagurBoðhátturFallin spýtaBjarni FelixsonNorðurland vestra🡆 More