Þjóðgarður Grænlands, á grænlensku Nunap Eqqissisimatitap og dönsku Grønlands Nationalpark nær yfir allt norðaustur Grænland norðan við Ittoqqortoormiit, Scoresbysund.
Garðurinn nær frá Knud Rasmussens-land í norðri til Meistaravíkur í suðaustri. Þetta er stærsti þjóðgarður í heimi og er að flatarmáli 970.000 km². Strandlengja hans er um 16.000 km og innan hans má, utan jökulskjaldarins, finna nyrstu landsvæði í heimi þar sem búið hefur verið. Nú býr þar enginn að staðaldri en áður bjó þar heimskautafólk í þúsundir ára þótt á milli kæmu aldalöng tímaskeið þar sem landið var óbyggt.
Um 30 manns hafast við að staðaldri í þjóðgarðinum og eiga þeir um 110 hunda: [1] Geymt 21 apríl 2011 í Wayback Machine
Áætlað er að á bilinu 5000 til 15.000 sauðnaut hafist við á strandsvæðunum í þjóðgarðinum auk fjölda ísbjarna og rostunga. Önnur spendýr eru meðal annars heimskautarefir, hreysikettir, læmingjar og pólhérar. Hreindýr mynduðu eigin undirtegund á Norðaustur-Grænlandi en þeim var útrýmt um aldamótin 1900. Úlfum var útrýmt um 1934, en þeir hafa á síðustu árum flutt sig aftur inn á svæðið. Af sjávarspendýrum innan þjóðgarðsins má nefna hringanóra, kampsel, vöðusel og blöðrusel auk náhvals og mjaldurs. Fuglategundir sem verpa á svæðinu eru fjölmargar, meðal annars himbrimi, helsingi, heiðagæs, æðarfugl, æðarkóngur, fálki, snæugla, sanderla, rjúpa og hrafn.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Þjóðgarður Grænlands, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.