60°43′N 46°02′V / 60.717°N 46.033°V / 60.717; -46.033
Stærsti bær Suður-Grænlands heitir á grænlensku Qaqortoq (ⓘ) og á dönsku Julianehåb. Bærinn er aðalbyggð í sveitarfélaginu Kujalleq. Um 3200 íbúar voru þar árið 2013. Um 300 búa utan aðalbyggðarinnar, flestir á 2 hreindýrabúum og 13 sauðfjárbúum. Nafnið Qaqortoq þýðir hið hvíta. Bærinn var stofnaður árið 1775 sem danskur verslunarstaður. Þar er nú menntasetur Suður-Grænlands með menntaskóla, verslunarskóla og háskóla. Þar er einnig eina sútunarverksmiðja Grænlands, Great Greenland, sem verkar skinn af selum og ísbjörnum. Hér var þéttbyggt og eitt aðalsvæði í Eystribyggð hinna fornu Grænlendinga. Enn má víða sjá rústir eftir bæi þeirra, meðal annars kirkjuna á Hvalsey sem er skammt frá byggðakjarnanum í Qaqortoq.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Qaqortoq, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.