Rigoberta Menchú Tum

Rigoberta Menchú Tum (f.

9. janúar 1959) er gvatemalskur aðgerðasinni, rithöfundur og stjórnmálamaður af ætt Quiché-frumbyggja. Hún hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1992 fyrir baráttu sína í þágu réttinda kvenna og frumbyggja á tíma borgarastyrjaldarinnar í Gvatemala (1960–1996). Menchú er í dag góðgerðasendiherra fyrir UNESCO og hefur lengi verið virk í stjórnmálum Gvatemala. Hún bauð sig fram til forseta árin 2007 og 2011 en náði litlu fylgi.

Rigoberta Menchú Tum
Rigoberta Menchú Tum
Rigoberta Menchú árið 2009.
Fædd9. janúar 1959 (1959-01-09) (65 ára)
Laj Chimel, Quiché, Gvatemala
ÞjóðerniGvatemölsk
StörfAðgerðasinni, rithöfundur, stjórnmálamaður
TrúKaþólsk
MakiÁngel Canil (g. 1995)
VerðlaunRigoberta Menchú Tum Friðarverðlaun Nóbels (1992)

Æviágrip

Rigoberta Menchú fæddist til frumbyggja af Quiché-þjóðerni í Laj Chimel í Quiché-sýslu í Gvatemala. Herforingjar höfðu tekið völdin í landinu fáeinum árum áður en hún fæddist og borgarastyrjöld braust út gegn einræðisstjórninni þegar hún var tæplega tveggja ára. Sem barn og unglingur vann hún við jarðyrkju ásamt fjölskyldu sinni á hálendinu og við Kyrrahafsströnd Gvatemala. Hún varð snemma virk í félagsumbótastörfum kaþólsku kirkjunnar í landinu og varð áhrifamikil innan kvennahreyfinga í kirkjunni. Störf hennar mættu andstöðu gvatamalskra stjórnvalda þar sem Rigoberta og samstarfsmenn hennar lágu undir grun um að starfa með skæruliðasveitum uppreisnarmanna sem voru virkar á svæðinu. Faðir hennar var um hríð fangelsaður og pyntaður vegna ásakana um að vera aðili að uppreisnarhreyfingum.

Rigoberta gekk ung ásamt föður sínum í einingarsamtök gvatemalskra bænda. Eftir að faðir hennar, móðir og bróðir voru handtekin, pyntuð og líflátin af öryggissveitum stjórnvalda fyrir meint andóf gerðist Rigoberta æ virkari innan einingarsamtakanna. Hún lærði bæði spænsku og tungumál annarra þjóðflokka Maja-indíána og stóð ásamt öðrum verkalýðsleiðtogum fyrir stórtæku verkfalli landbúnaðarverkamanna árið 1978. Þann 1. maí árið 1981 tók hún þátt í mótmælagöngu gegn stjórninni og gekk í andófshreyfingu sem kenndi sig við 31. janúar. Nafn hreyfingarinnar (spænska: Frente patriotico 31 de enero) var komið til vegna þess að þann 31. janúar árið 1980 höfðu stjórnvöld Gvatemala brennt spænska sendiráðið í Gvatemalaborg eftir að bændur af frumbyggjaættum tóku það yfir til að mótmæla mannránum og morðum hersins. Faðir Rigobertu, Vicente, hafði verið meðal 36 manns sem létust í brunanum.

Hlutverk Menchú í hreyfingunni var að kenna verkamönnum af frumbyggjaættum að verjast árásum hersins. Árið 1981 neyddist hún til að fara í felur og síðan til að flýja til Mexíkó. Þaðan skipulagði hún á næstu árum réttindabaráttu gvatemalskra bænda og tók þátt í stofnun sameinaðrar andófshreyfingar gegn einræðisstjórninni árið 1982. Árið 1983 samdi hún ásamt Elisabeth Burgos-Debray ævisöguna Ég, Rigoberta Menchú, þar sem hún lýsti hlutskipti frumbyggja í Rómönsku Ameríku og voðaverkum einræðisstjórnarinnar í Gvatemala. Bókin vakti mikla athygli á ævi og störfum Menchú og stuðlaði að því að árið 1992 var hún sæmd friðarverðlaunum Nóbels.

Eftir að borgarastríðinu í Gvatemala lauk árið 1996 var meðal annars stuðst við framburð Menchú í réttarhöldum yfir herforingjunum sem höfðu ráðið yfir landinu síðustu áratugina. Hún talaði fyrir því að réttað yrði yfir meðlimum ríkisstjórnarinnar fyrir stríðsglæpi á spænskum dómsstólum.

Gagnrýni á frásögn Menchú

Bókin Ég, Rigoberta Menchú hefur í seinni tíð orðið umdeild vegna ásakana um að Menchú hafi farið frjálslega með staðreyndir við gerð hennar. Í bók sinni hélt bandaríski mannfræðingurinn David Stoll því fram að flestar reynslusögur Menchú væru tilbúningur og að hún hefði ýkt þátt sinn í tilteknum atburðum eða logið því að hafa verið viðstödd atburði sem hún kom hvergi nærri. Aðrir hafa staðfest að nokkur ósannindi sé að finna í bók Menchú (m.a. að hún hafi sjálf verið vitni að morði bróður síns) en telja þó að myndin sem hún dregur upp af aðstæðum frumbyggja í borgarastyrjöldinni sé í megindráttum sönn. Málsvarar Menchú benda einnig á að hún hafi með bókinni verið að skrifa sig inn í hið suður-ameríska testimonio til að gefa yfirsýn af atburðum og að staðreyndavillurnar í bókinni séu í samræmi við stílbrögð slíkrar sagnahefðar.

Tilvísanir

Tags:

Friðarverðlaun NóbelsGvatemalaUNESCO

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Bóndadagur24. marsFriðurÞorskastríðinMúmíurnar í GuanajuatoSameindSkotfæriEilífðarhyggjaÞvermálLögmál FaradaysJónsbók28. marsEllen DeGeneresGamli sáttmáliEvrópusambandiðHringadróttinssaga17. öldinSaga ÍslandsÍslensk matargerðGuðni Th. JóhannessonHraunLiechtensteinHlutlægniIðunn (norræn goðafræði)The Open UniversityFæreyjarListi yfir íslenskar hljómsveitirJóhannes Sveinsson KjarvalRúnirXRæðar tölur1936IndlandTígrisdýrÞjóðaratkvæðagreiðslaFlugstöð Leifs EiríkssonarGrikkland hið fornaListi yfir forseta BandaríkjannaM1. öldinSveinn BjörnssonSigga BeinteinsHafþór Júlíus BjörnssonStuðlabandiðHeklaSkákJón Sigurðsson (forseti)Hallgrímur PéturssonÍsbjörnBarnafossFenrisúlfurÍslandsklukkanHerðubreiðNapóleonsskjölinHellissandurFiskurLandvætturAngelina JolieAgnes MagnúsdóttirHeimdallurSíðasta veiðiferðinGullæðið í KaliforníuUÓrangútanSuður-AmeríkaHarry S. Truman29. marsSóley TómasdóttirGísla saga Súrssonar2005ÁsynjurHeimsmeistari (skák)Ólafur Ragnar GrímssonPíka🡆 More