Manmohan Singh: 13. forsætisráðherra Indlands

Manmohan Singh (f.

26. september 1932) er indverskur hagfræðingur sem var forsætisráðhera Indlands frá 2004 til 2014. Singh var fyrsti síkinn sem gegndi embættinu og að auki fyrsti forsætisráðherrann frá dögum Jawaharlal Nehru sem var endurkjörinn eftir að hafa setið heilt fimm ára kjörtímabil.

Manmohan Singh
Manmohan Singh: 13. forsætisráðherra Indlands
Manmohan Singh árið 2014.
Forsætisráðherra Indlands
Í embætti
22. maí 2004 – 26. maí 2014
ForsetiA. P. J. Abdul Kalam
Pratibha Patil
Pranab Mukherjee
ForveriAtal Bihari Vajpayee
EftirmaðurNarendra Modi
Persónulegar upplýsingar
Fæddur26. september 1932 (1932-09-26) (91 árs)
Gah, breska Indlandi (nú Pakistan)
StjórnmálaflokkurIndverski þjóðarráðsflokkurinn
MakiGursharan Kaur (frá 1958)
TrúarbrögðSíkismi
Börn3
HáskóliPanjab-háskóli
Cambridge-háskóli
Oxford-háskóli

Singh fæddist í Gah í Pakistan en flutti ásamt fjölskyldu sinni til Indlands við skiptingu þess árið 1947. Eftir að hafa útskrifast með doktorsgráðu í hagfræði úr Oxford-háskóla vann Singh fyrir Sameinuðu þjóðirnar á árunum 1966-69. Hann hóf síðan feril sinn í stjórnsýslu þegar Lalit Naryan Mishra réð hann sem ráðgjafa í efnahags- og iðnaðarráðuneyti Indlands. Á áttunda og níunda áratugnum gegndi Singh ýmsum ábyrgðarstörfum í indversku ríkisstjórninni, t.d. stöðu efnahagsráðgjafa (1972-76), bankastjóra og formanns fimmáraáætlananefndarinnar (1985-87).

Árið 1991, þegar Indland átti við mikinn efnahagsvanda að glíma, réð nýi forsætisráðherrann P. V. Narasimha Rao hinn ópólitíska Singh sem fjármálaráðherra. Næstu árin stóð Singh, gegn miklum andmælum, fyrir ýmsum kerfisumbótum sem gerðu efnahagskerfi Indlands frjálslyndara. Með umbótunum tókst að bæta efnahaginn og Singh vann sér inn orðspor sem framsýnn og umbótasinnaður hagfræðingur. Þrátt fyrir það gekk hinum sitjandi indverska þjóðarráðsflokki illa í kosningunum árið 1996. Singh gerðist því leiðtogi stjórnarandstöðunnar á efri deild indverska þingsins á stjórnarárum Atal Bihari Vajpayee frá 1998-2004.

Þegar Sameinaða framsóknarbandalagið undir stjórn Þjóðarráðsflokksins komst til valda árið 2004 steig formaðurinn Sonia Gandhi öllum að óvörum til hliðar og leyfði Singh að taka við forsætisráðherraembætti. Fyrsta ríkisstjórn Singh kom ýmsu í verk, þar á meðal heilsufarsátaki á landsbyggðinni, nýju kennitölukerfi til að sanna búsetu á Indlandi, nýjum atvinnulögum til að tryggja vinnuréttindi og frumvarpi um upplýsingafrelsi. Árið 2008 urðu ósættir með kjarnorkusamning Indlands við Bandaríkin næstum því til þess að ríkisstjórn Singh hrundi þegar Vinstrifylkingin dró stuðning sinn til baka. Efnahagur Indlands óx mjög undir fyrstu ríkisstjórn Singh en öryggi Indlands var hins vegar ógnað af hryðjuverkaárásum og áframhaldandi uppreisn maóista.

Í þingkosningum árið 2009 vann flokksbandalag Singh endurkjör og Singh varð áfram forsætisráðherra. Næstu árin var ríkisstjórn Singh nokkrum sinnum ásökuð um spillingu. Þegar kjörtímabilinu lauk árið 2014 ákvað Singh að bjóða sig ekki fram aftur. Singh var aldrei meðlimur á neðri deild þingsins í Lok Sabha en situr enn á efri þingdeildinni sem fulltrúi ríkisins Assam, á fimmta kjörtímabili sínu í röð frá 1991.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Atal Bihari Vajpayee
Forsætisráðherra Indlands
(22. maí 200426. maí 2014)
Eftirmaður:
Narendra Modi


Tags:

IndlandJawaharlal NehruSíkar

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

XXX RottweilerhundarEiríkur blóðöxIKEATékklandYrsa SigurðardóttirÁstandiðListeriaAkureyriStuðmennSanti CazorlaSvampur SveinssonKýpurHelga ÞórisdóttirHættir sagna í íslenskuHalla TómasdóttirListi yfir skammstafanir í íslensku2024Jónas HallgrímssonHringadróttinssagaGuðlaugur ÞorvaldssonListi yfir lönd eftir mannfjöldaÚtilegumaðurTímabeltiÁstþór MagnússonJón Baldvin HannibalssonSnæfellsjökullLögbundnir frídagar á ÍslandiAaron MotenOrkumálastjóriHermann HreiðarssonSam HarrisTyrklandParísarháskóliSeldalurBrúðkaupsafmæliFylki BandaríkjannaHelsingiListi yfir elstu manneskjur á ÍslandiLandspítaliKonungur ljónannaLandnámsöldListi yfir íslensk kvikmyndahúsÞrymskviðaLakagígarÚlfarsfellJeff Who?Kristrún FrostadóttirÖspFuglÓlympíuleikarnirSpánnSovétríkinTikTokJohannes VermeerHjaltlandseyjarEnglar alheimsins (kvikmynd)Innflytjendur á ÍslandiTaugakerfiðÚrvalsdeild karla í körfuknattleikStúdentauppreisnin í París 1968Íþróttafélag HafnarfjarðarSýndareinkanetHljómarStigbreytingRisaeðlurSeglskútaFjaðureikXHTMLKnattspyrnufélagið VíkingurListi yfir forsætisráðherra ÍslandsÁgústa Eva ErlendsdóttirMarokkóFrumtalaVopnafjarðarhreppurMiðjarðarhafiðBaldurMæðradagurinnSædýrasafnið í Hafnarfirði🡆 More