Narendra Modi: 14. og núverandi forsætisráðherra Indlands

Narendra Damodardas Modi (f.

17. september 1950) er fjórtándi og núverandi forsætisráðherra Indlands, í embætti síðan í maí 2014. Hann var yfirráðherra Gújarat-héraðs frá 2001 til 2014 og situr á indverska þinginu fyrir Varanasi-kjördæmi. Modi er meðlimur í hægrisinnaða Bharatiya Janata-flokknum (BJP) og sjálfboðasamtökunum Rashtriya Swayamsevak Sangh (RSS). Hann er hindúskur þjóðernissinni.

Narendra Modi
Narendra Modi: 14. og núverandi forsætisráðherra Indlands
Modi árið 2022.
Forsætisráðherra Indlands
Núverandi
Tók við embætti
24. maí 2014
ForsetiPranab Mukherjee
Ram Nath Kovind
Droupadi Murmu
ForveriManmohan Singh
Persónulegar upplýsingar
Fæddur17. september 1950 (1950-09-17) (73 ára)
Vadnagar, Gújarat, Indlandi
StjórnmálaflokkurBharatiya Janata-flokkurinn (BJP)
MakiJashodaben (g. 1968; aðskilin)
TrúarbrögðHindúismi
UndirskriftNarendra Modi: 14. og núverandi forsætisráðherra Indlands

Æviágrip

Modi fæddist í Vadnagar og hjálpaði föður sínum við tesölu sem drengur. Hann var kynntur fyrir RSS-hópnum þegar hann var átta ára og hóf langt starf fyrir samtökin. Hann flutti að heiman eftir að hafa lokið skólagöngu, að hluta til vegna þess að hann hafði hafnað kvonfangi sem fjölskylda hans valdi honum. Modi ferðaðist um Indland í tvö ár og lagði för sína til margra helgireita. Hann sneri aftur til Gújarat-héraðs og flutti til Ahmedabad árið 1969 eða 1970. Árið 1971 fékk hann fullt starf hjá RSS. Þegar Indira Gandhi lýsti yfir neyðarlögum árið 1975 neyddist Modi til að fara í felur. RSS veitti honum stöðu í BJP-flokknum árið 1985 og hann gegndi þar ýmsum ábyrgðarstöðum til ársins 2001, þegar hann varð aðalritari flokksins.

Modi var útnefndur yfirráðherra Gújarat árið 2001 vegna vanheilsu Keshubhai Patel og óvinsælda eftir að jarðskjálftar höfðu skekið Bhuj. Stuttu síðar var Modi kjörinn á löggjafarþing fylkisins. Héraðsstjórn Modi hefur verið bendluð við uppþot og óeirðir í Gújarat-héraði árið 2002 þar sem talið er að um 2.000 manns hafi látist í kynþáttadeilum hindúa og múslima. Stjórn Modi var gagnrýnd fyrir viðbrögð hennar við átökunum, en indverskum dómstólum þótti ekki nægt tilefni til þess að sækja Modi til saka. Stefnumálum hans sem yfirráðherra héraðsins hefur verið hrósað vegna áherslu þeirra á hagvöxt og uppbyggingu sterkara efnahagskerfis. Einnig var stjórn hans þó gagnrýnd fyrir að takast ekki að bæta heilsufar, fátækt og menntastig íbúanna.

Modi leiddi BJP til sigurs í indversku þingkosningunum árið 2014. Flokkurinn náði hreinum þingmeirihluta, en þetta er í fyrsta skipti sem nokkrum flokki hefur tekist slíkt frá árinu 1984. Modi sjálfur var kjörinn í þingsæti Varanasi. Síðan Modi tók við embætti hefur ríkisstjórn hans reynt að auka erlendar fjárfestingar í indverska efnahagnum, aukið ríkisútgjöld til innviða landsins en dregið úr útgjöldum til velferðamála. Modi hefur beitt sér fyrir einföldun indverska stjórnsýslukerfisins og fyrir aukinni miðstýringu ríkisins. Modi hefur á stjórnartíð sinni vikið indverskum stjórnmálum talsvert til hægri. Hann er vinsæll en þó nokkuð umdeildur heima fyrir og erlendis vegna hindúskrar þjóðernishyggju sinnar og hlutverks síns í óeirðunum í Gújarat árið 2002.

Modi vann endurkjör með auknum þingmeirihluta árið 2019. Þetta var í fyrsta sinn frá árinu 1971 sem neinum flokki tókst að vinna hreinan þingmeirihluta í tveimur kosningum í röð.

Annað kjörtímabil Modi hefur einkennst nokkuð af mótmælum gegn nýjum lögum um ríkisborgararétt sem stjórn hans setti árið 2019. Lögin veita fólki úr trúarlegum minnihlutum frá Afganistan, Pakistan og Bangladess flýtimeðferð til að öðlast indverskan ríkisborgararétt en skilja múslima frá þessum löndum út undan. Andstæðingar laganna telja hana brjóta í bága við veraldlega stjórnarskrá Indlands með því að veita sérréttindi eftir trúarbrögðum.

Frá árinu 2020 mótmæltu indverskir bændur jafnframt Modi af hörku vegna umdeildra landbúnaðarlaga sem stjórn hans setti. Bændur fullyrtu að lögin væru til þess fallin að gera risafyrirtækjum kleift að sölsa undir sig indverskan landbúnað. Frá nóvember 2020 mótmæltu þúsundir bænda, einkum frá Púnjab-fylki, í kringum Nýju Delí og komu sér upp búðum í kringum borgina. Í janúar næsta ár kom til átaka milli lögreglu og mótmælenda sem brutust inn í Rauða virkið og drógu þar mótmælafána að húni. Einn bóndi lést í þeim átökum og fjöldi lögreglumanna særðist. Í október 2021 létust átta mótmælendur í átökum við lögreglu í Uttar Pradesh. Langvarandi mótmæli bændanna leiddu til þess að Modi tilkynnti þann 19. nóvember að lögin umdeildu yrðu felld úr gildi.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Manmohan Singh
Forsætisráðherra Indlands
(24. maí 2014 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Tags:

17. september1950Bharatiya Janata-flokkurinnGújaratHindúatrúIndlandRashtriya Swayamsevak SanghÞjóðernishyggja

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Íslenskir stjórnmálaflokkarEgilsstaðirStigbreytingLýðstjórnarlýðveldið KongóPétur Einarsson (flugmálastjóri)SvíþjóðGæsalappirPersóna (málfræði)ÍtalíaJaðrakanÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaIndónesíaKnattspyrnufélagið VíðirKúlaMenntaskólinn í ReykjavíkNorræna tímataliðSkjaldarmerki ÍslandsOkjökullMæðradagurinnListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaÞýskalandErpur EyvindarsonEinar JónssonTíðbeyging sagnaKnattspyrnufélagið HaukarListi yfir íslensk póstnúmerSveitarfélagið ÁrborgDanmörkSeglskútaPatricia HearstKosningarétturMorðin á SjöundáTjaldurBergþór PálssonListi yfir morð á Íslandi frá 2000KúbudeilanMarylandStórborgarsvæðiLundiBrúðkaupsafmæliJapanHafnarfjörðurHallgerður HöskuldsdóttirHalla Hrund LogadóttirSamfylkinginMannshvörf á ÍslandiGuðrún AspelundÞorriKeflavík, íþrótta- og ungmennafélagVallhumallSameinuðu þjóðirnarPáll ÓskarPylsaSkaftáreldarHetjur Valhallar - Þór2020GrikklandÁstþór MagnússonÚrvalsdeild karla í körfuknattleikKalkofnsvegurNíðhöggurStari (fugl)ÞjóðleikhúsiðHarry PotterFrumtalaÍslenski hesturinnHeklaGunnar Smári EgilssonKynþáttahaturDóri DNAHrafna-Flóki VilgerðarsonEgill ÓlafssonÓfærð🡆 More