Ludwig van Beethoven (skírður 17.
desember">17. desember 1770 – 26. mars 1827) var þýskt gullaldartónskáld sem bjó mestan hluta ævi sinnar í Vín, Austurríki. Hann var í fararbroddi umskiptatímabils sígildrar tónlistar og rómantíkur. Beethoven nýtur almennt mikils álits og er af mörgum talinn einn af helstu tónskáldum af vestrænum sið. Orðspor hans hefur blásið í brjóst tónskálda, tónlistarmanna og áheyranda sem lifðu hann. Á meðal þekktustu verka hans eru; fimmta, níunda og sjötta sínfónían auk píanóverksins Fyrir Elísu, „Pathétique“–sónötunnar og Tunglskinssónötunnar.
Beethoven fæddist í Bonn, Þýskalandi. Faðir hans hét Johann van Beethoven (1740–1792) og var af flæmskum ættum. Móðir hans hét Magdalena Keverich van Beethoven (1744–1787). Þar til fyrir skömmu var fæðingardagur hans álitinn vera 16. desember sökum þess að hann var skírður 17. desember og börn á þeim tíma voru oftast skírð degi eftir fæðingu. Nútíma fræðimennska getur hinsvegar ekki fallist á slíka ályktun. Fyrsti tónlistarkennari Beethoven var faðir hans.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Ludwig van Beethoven, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.