Kórónaveirur (eða kórónuveirur) eru hópur af skyldum veirum sem valda sjúkdómum í spendýrum og fuglum.
Í mannfólki valda kórónaveirur venjulega vægum öndunarfærasýkingum, svo sem kvefi. Það eru líka til týpur af kórónaveirum sem valda alvarlegum öndunarfærasýkingum, svo sem HABL, MERS og COVID-19, en það eru þekktustu tegundirnar.
Kórónaveirur valda mismunandi einkennum í mismunandi dýrategundum. Til dæmis valda kórónaveirur einkennum í efri-öndunarvegi í kjúklingum, og niðurgangi í nautgripum og svínum.
Eftir HABL (2002) faraldurinn var fundin aðferð til að greina sjúkdóminn og þegar MERS (2012) kom upp var haldið áfram að vinna í erfðagreiningu og þróun bóluefna gegn þeim.
Kórónaveirur tilheyra ættinni Coronaviridae, sem aftur er undir Nidovirales.
Nýtt afbrigði af kórónaveiru uppgötvaðist í Wúhan í desember2019. Nýja afbrigðið nefnist SARS-CoV-2. Fyrir fólk með veiklað ónæmiskerfi getur veiran komið sér fyrir í neðri hluta öndunarvegar og valdið lungnabólgu eða berkjubólgu.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kórónaveira, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses. ®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.