Málfræði Kyn

Kyn (skammstafað sem k.) í íslenskri málfræði eru þrjú: kvenkyn, karlkyn og hvorugkyn.

Sum tungumál eins og danska hafa aðeins samkyn og hvorugkyn, þar sem samkynið er staðgengill fyrir karl- og kvennkyn.

Kyn í íslensku

Kvenkyn

Kvenkynið (skammstafað sem kvk.) í íslensku er hægt að finna með því að sjá hvort það passi að segja persónufornafnið „hún“ fyrir framan, dæmi:

„Stelpa“. Hún stelpan. 

„stelpa“ er þá í kvenkyni.

Karlkyn

Karlkynið (skammstafað sem kk.) í íslensku er hægt að finna með því að sjá hvort það passi að segja persónufornafnið „hann“ fyrir framan, dæmi:

„Bolti“. Hann boltinn. 

„Bolti“ er þá karlkyns orð.

Hvorugkyn

Hvorugkynið (skammstafað sem hk. eða hvk.) í íslensku er hægt að finna með því að sjá hvort það passi að segja persónufornafnið „það“ fyrir framan, dæmi:

„Lýsi“. Það lýsið. 

„Lýsi“ er þá hvorugkyns orð.

En vegna þess að þessi aðferð byggist á því að góð þekking í íslensku sé til staðar, geta útlendingar eða þeir sem að hafa ekki góðan skilning á íslensku ekki notað hana. Í stað ætti að læra kyn hvers nafnorðs utan að. Kyn sumra orða eru rökrétt, svo dæmi sé tekið:

„Kona“ (kvk.) „Karl“ (kk.) „Stelpa“ (kvk.) 

En kyn flestra orða er ekki á rökum reist:

„Hestur“ (kk.) „Hrísgrjón“ (hk.) „Ljón“ (hk.) „Api“ (kk.) „Geimflaug“ (kvk.) 

Þannig að ekki er hægt að „álykta“ kyn einhvers orðs.

Samsett orð

Ef orð er samsett, tekur orðið kyn síðasta orðsins:

Karl (kk.) + kyn (hk.) = Karlkyn (hk.) Tölva (kvk.) + leikur (kk.) = Tölvuleikur (kk.) 

Kyn í latínu

Kvenkyn

Fyrsta fallbeygingin í latínu (sem endar á -a) inniheldur aðallega kvenkyns orð (eins og puella (stelpa), femina (kona) og domina (frú)) en þó eru nokkur orð sem eru í karlkyni (nauta (sjómaður), agricola (bóndi)). Þessi orð fallbeygjast oftast með -ae eða -æ, svo dæmi séu tekin; „puellae“ (stelpur), „feminae“ (konur), „dominae“ (frúr), „nautae“ (sjómenn) og „agricolae“ (bændur).

Karlkyn

Önnur fallbeygingin í latínu (sem endar á -us og -um) hefur bæði karlkyns- og hvorugkynsorð. Orðin sem enda á -us eru oftast karlkyns eins og dominus (herra), agellus (lítið landsvæði) og cunarius (karlkyns barnfóstra) (og enda þau á -i í fleirtölu; Domini, agelli og cunarii). Nokkur karlkyns orð í annarri fallbeygingu enda hinsvegar ekki á -us í nefnifalli eintölu en beygjast samt eins og karlkyns orð í annarri fallbeygingu, eins og puer (strákur) sem er pueri í fleirtölu nefnifalli. Nokkur orð í annarri beygingu sem enda á -us er kvenkyns, einkum heiti borga og landa, trjáa og svo orðið humus (jörð). Orðin vulgus (almenningur), virus (eitur) og pelagus (haf) eru hvorugkyns.

Kyn í þýsku

Tilvísanir

Tags:

Málfræði Kyn Kyn í íslenskuMálfræði Kyn Kyn í latínuMálfræði Kyn Kyn í þýskuMálfræði Kyn TilvísanirMálfræði KynDanskaHvorugkynKarlkyn (málfræði)Kvenkyn (málfræði)Listi yfir skammstafanir í íslenskuMálfræðiÍslenska

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Ellen DeGeneresVera IllugadóttirFranska byltinginLandnámsöldBandamenn (seinni heimsstyrjöldin)PóllandVictor PálssonSund (landslagsþáttur)HjartaGervigreindSiglufjörðurIndóevrópsk tungumálLandhelgisgæsla ÍslandsKróatíaRafeindEggert ÓlafssonForsetakosningar á ÍslandiKristnitakan á ÍslandiHugrofKrít (eyja)Vilmundur GylfasonGrænlandMiðgildiListi yfir morð á Íslandi frá 2000MengunBríet (söngkona)FirefoxAfríkaSegulómunHaraldur ÞorleifssonBjörgólfur Thor BjörgólfssonTíðbeyging sagnaSjálfstæðisflokkurinnFaðir vorNafnorð1976VistarbandiðMúsíktilraunirLandsbankinnHeimsmeistari (skák)NapóleonsskjölinSamningur Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir gegn eyðimerkurmyndunMalasíaKarfiPersóna (málfræði)HúsavíkLögmál NewtonsVistkerfiHraunBergþórLjóstillífunÞorsteinn Már BaldvinssonSauðárkrókurBoðorðin tíuOttómantyrkneskaListi yfir íslensk millinöfnVetniMinkurÍslendingabók (ættfræðigrunnur)PlatonAfturbeygt fornafnJón Sigurðsson (forseti)Fiann PaulEgill Skalla-GrímssonSnorra-EddaHallgrímur PéturssonFramsóknarflokkurinnSagnmyndirTala (stærðfræði)Arnar Þór ViðarssonGamli sáttmáliSamgöngur1997FriðurVífilsstaðirRóbert Arnfinnsson - Ef ég væri ríkur🡆 More