Eyja Krít

Krít (gríska: Κρήτη) er stærsta gríska eyjan og hérað í Grikklandi.

Hún sú fimmta stærsta í Miðjarðarhafinu og er ennfremur næststærsta eyja í Austur-Miðjarðarhafi, næst á eftir Kýpur. Flatarmál hennar er 8.336 km2. Krít hefur oft verið kölluð þröskuldur Evrópu.

Eyja Krít
Krít innan Grikklands.
Eyja Krít
Kort af eyjunni
Eyja Krít
Lefka Ori. Hvítufjöll.
Eyja Krít
Höfnin í Agios Nikolaos.

Söguágrip

Fyrstu landnemar á eyjunni eru taldir hafa komið fyrir 130.000 árum. Krít var miðdepill mínóísku menningarinnar (árin 2700-1420 fyrir Krist) sem er talin ein elsta siðmenning í Evrópu. Þekktustu leifar hennar eru í Knossos suður af Heraklíon. Síðar varð Mýkenumenningin frá meginlandi Grikklandi ráðandi.

Ýmis heimsveldi hafa haft yfirráð á eyjunni: Rómaveldi, Austrómverska keisaradæmið, borgríki Feneyinga og Ottómanveldið. Eftir stutt sjálfstæðistímabil varð Krít hluti af Grikklandi. Nasistar réðust á eyjuna árið 1941 í orrustunni um Krít. Þeir mættu harðri andstöðu frá heimamönnum sem drápu fallhlífahermenn þeirra. Nasistar hefndu sín grimmilega og stunduðu fjöldaaftökur í þeim bæjum þar sem andstaðan var sem mest.

Landsvæði

Krít spannar 260 kílómetra frá vestri til austurs en er aðeins um 60 kílómetra mest að breidd frá norðri til suðurs.

Fjallgarðar eru á eyjunni og í Lefka Ori (Hvítufjöllum) og Idi- og Dikti-fjöllum ná hæstu fjöllin yfir 2000 metra hæð, hæst í 2456 metra. Gljúfur skera fjöllin og er Samaria-gljúfrið þekktast þeirra.

Samfélag

Krít og nærliggjandi eyjar mynda eitt af 13 stjórnsýslusvæðum innan Grikklands. Höfuðstaðurinn og stærsta borgin er Heraklíon. Þjónusta, ferðamennska og landbúnaður eru helstu atvinnugreinarnar. Íbúar voru um 617.000 árið 2021.

Helstu borgir eru:

  • Heraklion (Iraklion):
  • Chania (Haniá)
  • Rethymno
  • Ierapetra
  • Agios Nikolaos
  • Sitia

Heimild

Fyrirmynd greinarinnar var „Crete“ á ensku útgáfu Wiki. Sótt 11. maí 2016.

Tags:

Eyja Krít SöguágripEyja Krít LandsvæðiEyja Krít SamfélagEyja Krít HeimildEyja KrítEyjaGrikklandGrískaKýpurMiðjarðarhaf

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Sjávarútvegur á ÍslandiGylfi Þór SigurðssonSvartfjallalandPerúTyggigúmmíSpænska veikinEgill Skalla-GrímssonOrkustofnunBessastaðirSímbréfC++AtlantshafsbandalagiðStofn (málfræði)KúrlandBragfræðiGyðingarKnattspyrna á ÍslandiK-vítamínSkátahreyfinginLestölvaEyjafjörðurÍslensk mannanöfn eftir notkunSamfylkinginPersónufornafnVatnajökullJosef MengeleFylkiðJóhanna af ÖrkDNAVottar JehóvaEgils sagaFiskurUpplýsinginAlþingiskosningar 2009ÍtalíaNorðurland vestraAlaskaParísVerzlunarskóli ÍslandsKárahnjúkavirkjunHækaHótel- og veitingaskólinnH.C. AndersenRíkisstjórnLettneskaÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaKirkja sjöunda dags aðventistaÍslandKommúnistaflokkur KínaStærðfræðiJón ArasonElísabet 2. BretadrottningFeneyjatvíæringurinnGuðjón SamúelssonLæsiÍslenski hesturinnFreyjaÓlafur Egill EgilssonFyrsti vetrardagurRómversk-kaþólska kirkjanDanmörkGrunnskólar á ÍslandiKaleoSteypireyðurVorCristiano RonaldoWho let the dogs outDavíð OddssonNæturvaktinKaliforníaHörViðtengingarhátturSkákFelix Bergsson🡆 More