Konungur Ástralíu er Karl III.
Bretakonungur">Karl III. Þó svo að hann sé einnig konungur Bretlands og fleiri ríkja er embætti konungs Ástralíu alveg sjálfstætt embætti og hefur verið síðan 1986, þegar Ástralía sleit öll sín formlegu stjórnartengsl við Bretland árið 1986. Titillinn (sem var þá drottning Ástralíu á valdatíð Elísabetar 2.) hefur verið í notkun síðan 1973 þegar lögum frá árinu 1953 um titilinn var breytt. Fyrir breytinguna var titillinn:
Eftir breytinguna 1973 varð titillinn:
Samveldið sem átt er við er ekki Samveldið Ástralía (eins og landið heitir formlega) heldur Breska samveldið. Ein helsta breytingin, fyrir utan að taka Bretland út úr titlinum, er sú að hún er ekki lengur nefnd „verndari trúarinnar“ í Ástralíu, en það er hún í Bretlandi. Þetta er vegna þess að í Ástralíu er engin ríkiskirkja, ólíkt Bretlandi þar sem enska biskupakirkjan er ríkiskirkja. Í því samhengi er merkilegt að samkvæmt áströlskum lögum (líkt og þeim bresku) verður þjóðhöfðinginn að vera afkomandi Soffíu af Hannover, mótmælandi og ekki hafa gifst kaþólikka. Þetta segja sumir að stangist á við önnur lög í landinu þar sem kveðið er á um að algjört trúfrelsi ríki.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Konungur Ástralíu, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.