Biskup (áður skrifað byskup) er titill embættismanna í hinum ýmsu kristnu kirkjum, og hlutverk þeirra mismunandi eftir kirkjudeildum.
Orðið biskup (επισκοπος) á uppruna sinn að rekja til gríska orðsins episkopos sem þýðir sá sem skyggnist um, eða hefur eftirlit með eða einu orði skyggnari, en það er einnig gamalt heiti á biskupi í íslensku. Biskupar voru einnig nefndir klerkagoðar í skáldamáli. Fyrst eftir siðaskiptin voru biskupar á íslandi nefndir súperintent. Lýðbiskup (eða ljóðbiskup) voru undirbiskupar nefndir hér áður fyrr, og voru undirmenn erkibiskups.
Biskupsdæmi eru misvaldamikil og oft fer vald biskupa eftir trúarlegu hlutverki þeirra og hefðum. Í sumum kirkjudeildum (svo sem þeim rómversk-kaþólsku og rétttrúnaðarkirkjunni) eru til fleiri en ein gerð biskupa, sem hafa mismunandi valdsvið, til dæmis erkibiskupar og patríarkar. Páfinn í Róm er formlega rómversk-kaþólski biskup Rómaborgar og jafnframt æðsti biskup rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Meðal þess sem biskupar sjá oft um er að vígja presta og guðshús og stjórna ýmsum athöfnum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Biskup, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.