Fourier-vörpun er vörpun, sem varpar falli yfir í fallagrunn sínuslaga grunnfalla, þ.e.a.s.
lýsir fallinu sem línulegri samantekt sínuslaga falla. Nefnd eftir stærðfræðingnum Jean Baptiste Joseph Fourier.
Fourier-vörpunin hefur margvíslegt notagildi í vísindum s.s. í eðlisfræði, talnafræði, talningafræði, merkjafræði, líkindafræði, tölfræði, dulkóðun, hljóðtækni, sjómælingum, ljósfræði, rúmfræði og á fleiri sviðum. (Í merkjavinnslu og skyldum greinum er hugsunarhátturinn sá að Fourier-vörpunin skipti falli upp í hina mismunandi tíðniþætti sína og skili útslagi og fasa fyrir hvern tíðniþátt.) Þetta fjölbreytta notagildi helgast af nokkrum gagnlegum eiginleikum vörpunarinnar:
Sérhvert fall f(t) með endanlega orku má tákna sem summu tvinnveldisfalla með horntíðnir ω og tvinngilt útslag F(ω):
Þetta er reyndar andhverfa samfellda Fourier-vörpunin, en sjálf Fourier-vörpunin táknar F(ω) út frá f(t). Upprunalega fallið og vörpun þess kallast Fourier-par. Sjá Samfelld Fourier-vörpun (á ensku) með frekari upplýsingum, þ.m.t. töflu yfir mikilvæg Fourier-pör, upplýsingum um eiginleika vörpunarinnar og fleira.
Samfellda Fourier-vörpunin er í raun alhæfing eldri hugmyndar, Fourier-raðarinnar, sem er eingöngu skilgreind fyrir lotubundin (eða endanleg í tíma) föll f(x) (með lotu 2π), og setur slík föll fram sem summu raðar sínuslaga falla:
þar sem er (tvinngilt) útslag. Fyrir raungild föll má einnig tákna Fourier-röðina svo:
þar sem an og bn eru (raungilt) útslag fyrir Fourier-röðina.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Fourier–vörpun, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.