Öld er hundrað ára tímabil.
Venjan er samkvæmt gregóríska tímatalinu að kalla tímabilið frá og með árinu 100*n+1 til og með ársins 100*n+100 (n+1)-tu öldina. Þannig var fyrsta öldin árin 1 til og með 100 og 20. öldin árin 1901 til og með 2000.
Tímatal á vesturlöndum notast yfirleitt við hið svokallaða Anno Domini kerfi, þar sem fæðingarár Krists er kallað 1. árið eftir Krist og eru þá árin talin eins og dagar mánaðarins. Árið þar á undan kallast árið 1 fyrir Krist. Þetta er skýringin á venjunni að ofan. Þetta þykir óheppilegt kerfi í sumum tilfellum í vísindum. Því notast vísindin stundum við svokallað stjörnufræðitímatal þar sem árið 0 kemur í stað ársins 1 f.Kr. og áfram er haldið með neikvæðum tölum aftur í fortíðina.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Öld, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.