Flugslysið Í Ljósufjöllum: Flugslys á Snæfellsnesi árið 1986

Flugslysið í Ljósufjöllum var flugslys sem varð 5.

apríl 1986 um klukkan 13:26 er Piper PA-23-250 Aztec vél Flugfélagsins Ernis, TF-ORM, brotlenti í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi. Flugvélin var í leiguflugi frá Ísafirði til Reykjavíkur og með henni voru sex farþegar, þar af hjón með 11 mánaða gamalt barn, ásamt flugmanni. Talið er að flugvélin hafi lent í niðurstreymi og steypst niður í hlíðar Ljósufjalla, suður af Sóleyjardal. Flak vélarinnar fannst í norðurhlíðum Ljósufjalla, í 700 metra hæð, rétt fyrir miðnætti sama dag. Menn frá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík komust fyrstir á slysstað og voru þá þrír farþegar á lífi í flakinu en einn farþeginn lést í snjóbíl á leið niður af fjallinu.

Flugslysið Í Ljósufjöllum: Eftirmálar, Sjá einnig, Tengt efni
Piper PA-23-250 Aztec vél, sambærileg þeirri sem fórst.

Slysið var eitt það mannskæðasta í flugsögu Íslands og leiddi af sér breytingar á reglugerðum og vinnubrögðum til að auka flæði veðurupplýsinga til flugmanna.

Eftirmálar

Þremur dögum eftir slysið, tók Morgunblaðið viðtal við Pálmar Gunnarsson, sem lifði slysið af við illan leik en missti eiginkonu sína og kornabarn í slysinu. Viðtalið við hann olli talsverðu fjaðrafoki og fékk Morgunblaðið og læknar á Borgarspítalanum sem leyfðu það talsverða gagnrýni fyrir.

Niðurstaða rannsóknar Flugslysanefndar og Flugmálastjórnar var að flugvélin hafi lent í niðurstreymi sem leiddi til þess að hún hrapaði í hlíðum Ljósufjalla. Hún komst einnig að þeirri niðurstöðu að hluti orsakarinnar hafi verið flugmaðurinn hafi verið með ófullnægjandi veðurfarsupplýsingar af svæðinu. Það leiddi af sér breytingar í reglugerðum og verklagi til að auka flæði uppfærðra veðurspáa á milli flugmanna og Veðurstofu Íslands. Það leiddi einnig af sér endurskoðun á aðgerðarskrám flugmanna, bæklingum og öðru fræðandi efni sem gefið var út af Flugmálastjórn og notað við kennslu flugmanna.

Eftirmálar slysins ollu einnig deilum í landinu vegna reglugerðar ríkisins vegna bóta til farþega en bætur fyrir flugslys voru 47 sinnum minni en einstaklingur í fólksflutningabílslysi gæti fengið.

Þessir tveir lifðu slysið af:

  • Pálmar Gunnarsson, 36 – lögreglumaður á Ísafirði.
  • Kristján Jón Guðmundsson, 29 – knattspyrnumaður hjá Fylkir.

Þessi fimm létust í slysinu:

  • Smári Ferdinandsson, 34 – flugmaður
  • Auður Erla Albertsdóttir, 26 – unnusta Pálmars móðir Erlu Bjarkar
  • Erla Björk Pálmarsdóttir, 11 mánaða – dóttir Auðar Erlu og Pálmars
  • Kristján Sigurðsson, 49 – bóndi og faðir leikarans Víkings Kristjánssonar
  • Sigurður Auðunsson, 56 – efnahagsráðgjafi

Sjá einnig

Tengt efni

Heimildir

Tenglar

Tags:

Flugslysið Í Ljósufjöllum EftirmálarFlugslysið Í Ljósufjöllum Sjá einnigFlugslysið Í Ljósufjöllum Tengt efniFlugslysið Í Ljósufjöllum HeimildirFlugslysið Í Ljósufjöllum TenglarFlugslysið Í LjósufjöllumFlugbjörgunarsveitin í ReykjavíkFlugfélagið ErnirLjósufjöllReykjavíkSnæfellsnesÍsafjörður

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

PíkaKosningaréttur kvennaVöðviBenjamín dúfaNapóleon 3.SlóvakíaKári Steinn KarlssonUngmennafélagið AftureldingMuggurDavid AttenboroughSíðasta veiðiferðinGyðingar5. MósebókHHilmir Snær GuðnasonForsætisráðherra ÍsraelsKvennafrídagurinnWrocławLýðveldið Feneyjar2005EndurreisninMarseille18 KonurMilljarðurEyjaálfaFöll í íslenskuSveppirÞórsmörkFerðaþjónustaAngkor WatFallbeygingEyjafjallajökullNorskaFlugstöð Leifs EiríkssonarPáll ÓskarSkyrbjúgurMichael JacksonVaduzÞór (norræn goðafræði)Balfour-yfirlýsinginEggert PéturssonSteinbíturSólinSérhljóðTata NanoListi yfir íslensk mannanöfnGrikklandJóhanna Guðrún JónsdóttirSætistalaEintalaGamla bíóEskifjörðurLúxemborgskaÚtgarðurSteinn Steinarr1535Erwin HelmchenAnnars stigs jafnaVestmannaeyjarIcelandairLudwig van BeethovenKanadaFriggBandamenn (seinni heimsstyrjöldin)RaufarhöfnGervigreindRagnhildur GísladóttirListi yfir skammstafanir í íslenskuKennitalaÓlafur Ragnar GrímssonFrumtalaKanaríeyjarSifHrafna-Flóki VilgerðarsonEvrópaÞorgrímur ÞráinssonIðnbyltingin🡆 More