Eignarfall

Áhrifsfall Ávarpsfall Deildarfall Eignarfall Eignartilvísunarfall Fjarverufall Forsetningarfall Íferðarfall Íverufall Nefnifall Nærverufall Samanburðarfall Samvistarfall Staðarfall Sviptifall Tilgangsfall Tækisfall Úrferðarfall Verufall Virðingarfall Þágufall Þolfall Þollsfallsleysingisfall

Föll í málfræði
Íslensk föll
Nefnifall
Þolfall
Þágufall
Eignarfall
Ávarpsfall
Tímaeignarfall
Föll í öðrum tungumálum

Eignarfall (skammstafað sem ef.) er fall sem fallorð geta staðið í. Ýmsar forsetningar stýra eignarfalli og í sumum málum stýra ýmsar sagnir eignarfalli. Einnig getur eignarfallið staðið með öðru fallorði og gefið til kynna ákveðin tengsl þess, sem orðið í eignarfalli stendur fyrir, og þess, sem stýrandi orð stendur fyrir.

Eignarfall getur m.a. gefið til kynna:

  • uppruna („menn Rómar“, þ.e. menn frá Róm)
  • einkenni („maður margra orða“)
  • stærð („tveggja metra langur“)
  • heild sem stýrandi orð er hluti af („helmingur þjóðarinnar“)
  • eign („bók Halldórs“)
  • geranda sagnarmerkingar stýrandi orðs („dómur Jóns“, þ.e. Jón dæmir)
  • andlag sagnarmerkingar stýrandi orðs („sýknun Guðmundar“, þ.e. Guðmundur var sýknaður)
  • tíma („kvölds og morgna“)

Mörg tungumál hafa eignarfall, þeirra á meðal: arabíska, enska, finnska, georgíska, gríska, hollenska, írska, íslenska, latína, litháíska, pólska, rússneska, sanskrít, og þýska.

Eignarfall í íslensku

Föll í íslensku
Nefnifall
Þolfall
Þágufall
Eignarfall

Eignarfall er eitt af fjórum föllum í íslensku. Auk þess að vera notað með forsetningum, eins og „til“, og með örfáum sögnum, eins og „sakna“, getur aukafallsliður í eignarfalli verið notaður á eftirfarandi hátt í íslensku:

  • Eiginlegt eignarfall: Gefur til kynna eiganda. Dæmi: „Þetta er bók Guðmundar“.
  • Eignarfall heildarinnar: Gefur til kynna heildina sem stýrandi orð er hluti af. Dæmi: „Margir þingmannanna“.
  • Leiðareignarfall: eignarfall án sérstakt fallvalds sem vísar til ferðarinnar eða leiðarinnar sem farin er, t.d. „fara leiðar sinnar“.
  • Tímaeignarfall: Gefur til kynna hvenær eitthvað gerist. Dæmi: „Drengurinn les ljóð kvölds og morgna“.
  • Útskýringar- eða skilgreiningareignarfall (genetivus definitivus): Er eignarfall sem skilgreinir eða útskýrir. Dæmi: Gjallarhorn. Eignarfallið Gjallar- er hér ekki fall eignarinnar. Þetta merkir ekki: hornin hennar Gjallar. Gjallarhorn er þá hornið sem er eða heitir Gjöll, hin háværa, enda Gjallarhorn lúður. Þetta sama skilgreinandi eignarfall er trúlega að finna í Fenrisúlfur (úlfurinn Fenrir) og í nútímamáli er það í nokkrum samsetningum, svo sem Ísafjarðarkaupstaður og Akureyrarbær.

Sjá einnig

Eignarfall í forngrísku

Eignarfall í forngrísku getur m.a. verið notað á eftirfarandi hátt:

  • Genitivus subiectivus: Eignarfall gerandans; gefur til kynna geranda sagnarmerkingar stýrandi orðs.
  • Genitivus obiectivus: Andlagseignarfall; gefur til kynna andlag sagnarmerkingar stýrandi orðs.
  • Genitivus possessivus: Eiginlegt eignarfall; gefur til kynna eiganda.
  • Genitivus partitivus: Eignarfall heildarinnar; gefur til kynna heildina sem stýrandi orð er hluti af.
  • Genitivus descriptivus: Eignarfall lýsingarinnar; lýsir nánar stýrandi orði.
  • Genitivus qualitatis: Eignarfall einkennis; gefur til kynna eiginleika sem stýrandi orð hefur.
  • Genitivus definitivus: Eignarfall skilgreiningarinnar; getur staðið með stýrandi orði til að skilgreina nánar.
  • Genitivus pretii: Eignarfall verðleikans; gefur til kynna hvers virði eitthvað er.
  • Genitivus temporis: Tímaeignarfall; gefur til kynna innan hvaða tíma eitthvað á sér stað.
  • Genitivus separativus: Eignarfall aðskilnaðarins; gefur til kynna aðskilnað einkum með sögnum sem merkja að hætta, sleppa, mistakast, skorta, þarfnast og vera fjarri.
  • Genitivus comparativus: Eingarfall samanburðarins. Gefur til kynna eitthvað sem eitthvað annað er borið saman við.
  • Genitivus causae: Eignarfall orsakarinnar; gefur til kynna orsök einhvers.
  • Genitivus absolutus: Sjálfstætt eignarfall; nafnorð og lýsingarorð eða lýsingarháttur geta staðið í eingarfalli, málfræðilega ótengt restinni af setningunni og gefið til kynna tíma, skilyrði, orsök, eða viðurkenningu.

Eignarfall í latínu

Föll í latínu
Nefnifall
Ávarpsfall
Þolfall
Eignarfall
Þágufall
Sviptifall
Staðarfall
  • Genitivus subiectivus: Eignarfall gerandans; gefur til kynna geranda sagnarmerkingar stýrandi orðs. Dæmi Amor dei („ást guðs“, þ.e. það er guð sem elskar).
  • Genitivus obiectivus: Andlagseignarfall; gefur til kynna andlag sagnarmerkingar stýrandi orðs. Dæmi: Amor dei (orðrétt: „ást guðs“, þ.e. „guðsást“; þ.e.a.s. það er guð sem er elskaður).
  • Genitivus possessivus: Eiginlegt eignarfall; gefur til kynna eiganda. Dæmi: Domus Caesaris („hús Caesars“).
  • Genitivus partitivus: Eignarfall heildarinnar; gefur til kynna heildina sem stýrandi orð er hluti af. Dæmi Multi Romanorum („margir Rómverjanna“).
  • Genitivus originis: Eignarfall upprunans; gefur til kynna uppruna einhvers. Dæmi: Marci filius („sonur Marcusar“).
  • Genitivus descriptivus: Eignarfall lýsingarinnar; lýsir nánar stýrandi orði. Dæmi: Femina magnae prudentiae („kona mikillar skynsemi“).
  • Genitivus qualitatis: Eignarfall einkennis; gefur til kynna eiginleika sem stýrandi orð hefur. Dæmi talentum auri („talenta úr gulli“).
  • Genitivus definitivus: Eignarfall skilgreiningarinnar; getur staðið með stýrandi orði til að skilgreina nánar. Dæmi: Ars scribendi („listin að skrifa“, eða bókstaflega „list þess að skrifa“).
  • Genitivus pretii: Eignarfall verðleikans; gefur til kynna hvers virði eitthvað er. Dæmi: Oratio nullius momenti („Ræða einskis virði“).
Eignarfall 
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu

Tags:

Eignarfall í íslenskuEignarfall í forngrískuEignarfall í latínuEignarfallNefnifallNærverufallStaðarfallSviptifallTækisfallVerufallÁvarpsfallÍferðarfallÍverufallÞolfallÞágufall

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

EsjaVestmannaeyjaflugvöllurHlíðarfjallAlþingiLitáískaFæreyskaIowaXboxLögreglan á ÍslandiInternetiðIndlandKarl 3. BretakonungurVatnshlotLitla hryllingsbúðin (söngleikur)SjálfstæðisflokkurinnÍslandspósturAgnes MagnúsdóttirUngmennafélag GrindavíkurKarlamagnúsAlþingiskosningar 2016ÁbrystirGísla saga SúrssonarSamkynhneigðListi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurDNANáttúruvalSjónvarpiðKrýsuvíkMesópótamíaHinrik 2. EnglandskonungurMenntaskólinn í ReykjavíkSkjaldarmerki ÍslandsForseti ÍslandsLondonFiskurHerkúles (kvikmynd frá 1997)24. aprílListi yfir forsætisráðherra ÍslandsSkammstöfunListi yfir íslensk póstnúmerNærætaÍslensk krónaLaddiKristnitakan á ÍslandiFeneyjatvíæringurinnØGeorgíaPíratarSundlaugar og laugar á ÍslandiÓlafur Ragnar GrímssonÚkraínaSpænska veikinSvartfuglarÞór/KAÍslendingasögurKnattspyrnufélag ReykjavíkurBjörn Sv. BjörnssonIngólfur ArnarsonNæturvaktinJómsvíkinga sagaBárðarbungaSigmund FreudHafþór Júlíus BjörnssonHelga ÞórisdóttirKyn (málfræði)LeviathanHallgrímskirkjaHljómskálagarðurinnGulrófaJóhanna Guðrún JónsdóttirFTPBjörn Ingi HrafnssonListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969Ólafur Karl FinsenRómaveldi🡆 More