Írska (Gaeilge), einnig þekkt sem gelíska eða írsk gelíska, er keltneskt tungumál sem er talað á Írlandi, sérstaklega á svokölluðum Gaeltacht-svæðum, sem flest eru á vesturströnd Írlands, sérstaklega í nágrenni Galway.
Margir Írar sem hafa áhuga á tungu sinni og menningu reyna að halda henni lifandi, en enn sem komið er hafa tilraunir þessar borið takmarkaðan árangur. Skilti á Írlandi eru bæði á ensku og á írsku. Írska er eitt af 23 opinberum tungumálum Evrópusambandsins.
Írska Gaeilge | ||
---|---|---|
Málsvæði | Írland | |
Heimshluti | Írland | |
Fjöldi málhafa | 280.000 sem móðurmál, 1 milljón sem annað mál í Írska lýðveldinu, 65.000 sem annað mál á Norður-Írlandi | |
Ætt | Indóevrópskt Keltneskt Eyjakeltneskt Gelískt Írska | |
Skrifletur | Latneskt stafróf | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál | Írland Evrópusambandið | |
Viðurkennt minnihlutamál | Bretland (Norður-Írland) | |
Stýrt af | Foras na Gaeilge | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | ga | |
ISO 639-2 | ga | |
SIL | gle | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Elsta írskan notaði Ogham-skriftina frá 4. öld fram á 6. öld, en síðan var latneska stafrófið notað. Fornírska var töluð frá 6. öld fram á 10. öld, og miðírska frá 10. öld fram á 12. öld.
Margir landnámsmenn á Íslandi komu frá Írlandi, Skotlandi og öðrum hlutum Bretlandseyja. Því er eðlilegt að nokkurra írskra áhrifa gæti í íslensku, en stundum getur verið um skosk gelísk áhrif að ræða. Í færeysku gætir einnig nokkurra írsk- og skosk- gelískra áhrifa.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Írska, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.